Dagrenning - 01.08.1956, Page 22

Dagrenning - 01.08.1956, Page 22
JÓNAS GUÐMUNDSSON: NATO OG ÍSLAND Spádómur Dagrenningar frá 1954, sem nú er fram kominn ---------------------------------------------^ „Verður ísland látið hverfa úr Atlantshafsbandalaginu?" hét grein, sem birtist í febrúarhefti Dagrenningar 1954. í þeirri grein var flest það sagt fyrir, sem nú er fram komið í viðskiptum íslands við Atlantshafsbandalagið (NATO), og það hefur gerzt með ná- kvæmlega sama hætti og þar var sagt fyrir. í eftirfarandi grein er þetta efni nú tekið til meðferðar á ný og reynt að sjá fyrir næsta áfangann. .--------------------------------------------- í fyrsta hefti Dagrenningar 1954 er grein, sem heitir: Verður ísland látið hverfa úr Atlantshafsbandalaginu? Þar er það sagt fyrir, að eftir 1—2 ár muni að því koma, að ísland verði látið hverfa úr þessum samtökum, „eftir að það hefur vanefnt og svikið flest eða allt, sem því var til trúað.“ Þar sem nú er að þessu komið, og ekki geta liðið nema fáeinir mánuðir þang- að til ísland verður látið hverfa úr Atlantshafsbandalaginu, verði heims- styrjöld ekki skollin á áður, eða banda- lagið sundrað, m. a. fyrir aðgerðir íslend- inga, þykir mér rétt að rifja hér upp nokkur atriði úr grein minni frá 1954 til þess að sýna hversu rétt var þá séð og sagt fyrir. í greininni er fyrst rakið aðalefni greinar, sem birtist í erlendu tímariti í janúar 1954, um ástandið hér á landi og er sá kafli á þessa leið: „í brezku tímariti einu birtist nú í jan- úar s. 1. (1954) grein um ísland og málefni þess, sem kalla mætti á íslenzku „Hið óró- lega ísland." í grein þessari er frá því sagt, að fréttamaður ritsins hafi farið til íslands og dvalizt þar um skeið til þess að kynna sér stjórnmálaástandið þar. Af greininni er það Ijóst, að fréttamaðurinn hefur kynnt sér íslenzk stjórnmál og aðstæður allar hér eftir beztu föngum og átt aðgang að sönn- um og réttum upplýsingum. í greininni segir, að sú sé skoðun frétta- mannsins, að á þessu „hernaðarlega þýðing- armikla eylandi“ sé talsverður ókyrrleiki og „stjórnmálaástandið þar sé fremur viðsjár- vert.“ Þá er i grein þessari réttilega sagt, að þingmeirihluti fyrir samstarfi íslands við vestrænar þjóðir sé á yfirborðinu mikill, og svo virðist sem fullkomð öryggi ætti í því að felast, en hins vegar séu andstæðingar Atlantshafsbandalagsins „mjög ötulir og illvígir" (very active and aggressive). Um andstöðu flokka ríkisstjórnarinnar segir í tímaritsgreininni: „Sosialdemokratar (Alþýðuflokkurinn), sem ræður sex sætum (á Alþingi), er mjög andvígur vernd ameríska hersins og er 20 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.