Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 23

Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 23
studdur i því efni af kommúnistum, sem hafa sjö þingsæti. „The National Defence Party“ — Þjóðvarnarflokkurinn — sem hef- ur tvö þingsæti, byggir tilveru sína algjör- lega að kalla á and-amerískum áróðri, og sá flokkur hefur innan vébanda sinna margp dulbúna kommúnista." Því næst er rætt um fjárhagsástandið, hina háu skatta, hið háa kaupgjald, dýrtíð- ina, Keflavíkurvinnuna o. fl. og greinar- höfundur furðar sig mjög á hinni gífur- legu skattabyrði hér, þegar þess sé gætt, að engu fé sé varið til varnarmála eða hernað- arútgjalda. Hann segir: „Það er erfitt að gera sér fulla grein fyrir því, hverjar eru aðalorsak- ir fjárhagsörðugleikanna. — En hver sem orsökin er, þá er það víst, að gildandi fjár- lög eru framleiðslu landsins ofviða.“ Næst ræðir fréttamaðurinn um ameriska herinn og þá furðulegu andúð, sem gætir i afstöðu íslendinga til hersins og amerísks verkalýðs, sem vinnur þar við hernaðar- framkvæmdir, jafnframt því sem allt er gert til þess að hagnast sem mest á veru hans og framkvæmdum. Það er þó almennt við- urkennt, að það séu tekjurnar frá hernum og framkvæmdum hans, sem að miklu leyti bera nú uppi þjóðarbúskap íslendinga. Höf. segir, að „Sósíaldemokratar (Al- þýðuflokkurinn) hafi gengið svo langt að krefjast þess, að allur amerískur verkalýð- ur, sem á íslandi vinnur, verði brottrekinn og íslendingar teknir í staðinn." Þá víkur höf. að landhelgisdeilunni við Breta og segir, að í því máli sé þjóðin mjög einhuga. En ein afleiðing þeirrar deilu er sú, segir fréttamaðurinn, að Sovétríkin hafa náð að gera mikla viðskiptasamninga við íslendinga og kaupa nú fisk þeirra á hærra verði en fáanlegt er fyrir hann í Bretlandi." Allt þetta er, segir höf., vatn á myllu kommúnista. Starfsemi þeirra hefur aukizt og er studd með erlendu fjármagni. „Þess skyldi minnzt,“ segir höf., „að í styrjaldar- lokin voru kommúnistar f ríkisstjórn, og þeir eiga enn vini á ecðri stöðum. Þeir eiga og gefa út vel ritað dagblað í Reykjavík — Þjóðviljann." Þá víkur fréttamaðurinn að hinum rúss- neska áróðri, og skipulagi hans með MÍR sem aðalstofnun og rússneskar filmur og heimsóknir, „friðarhreyfingar" og fleira slíkt, sem öllum hér er vel kunnugt. Hann telur að þetta beri allt nokkurn árangur og hafi nokkur áhrif út fyrir hinn eiginlega hring kommúnistanna sjálfra. Að lokum segir svo í tímaritsgreininni: „Enda þótt núverandi ríkisstjórn sé ákveðið fylgjandi Atlantshafsbandalaginu er Island ekki sterkur hlekkur i þeim sam- tökum. Fréttamaður vor telur, að möguleiki sé á því, ef nýjar kosningar færu fram nú, eða mjög bráðlega, að kommúnistar, eða vinir þeirra, mundu vinna verulega á.“ Hér hafa verið rakin þau atriðin, sem mestu skipta í tímaritsgrein þessari og er af þeim augljóst, að i flestu er rétt með farið og hér hefur gestsaugað reynzt glöggt, eins og svo oft áður.“ í grein minni er því næst rakið, hvað gerzt hafi þá að undanförnu, sem allt stefnir að sama markinu. Rakin er af- staða blaðanna og segir þar: „Tvö dagblöð hafa það að aðalefni svo til daglega að rægja og níða hið erlenda varnarlið og framkvæmdir þess hér á landi. Það eru Þjóðviljinn og Alþýðublaðið. Auk þess birti Tíminn vikulega eða oftar margs konar árásargreinar á varnarliðið og störf þess hér, meðan annar maður en Fram- sóknarmaður fór með utanríkismálin. Má því segja, að mest allt síðast liðið ár hafi þrjú af dagblöðunum í Reykjavík, Alþýðu- blaðið, Þjóðviljinn og Timinn, haft sam- stöðu um að svívirða og rógbera það vam- arlið, sem hingað var komið að beiðni Al- þingis og með fullu samþykki yfirgnæfandi meirihluta íslenzku þjóðarinnar, til þess að fullnægja þeim skuldbindingum, sem þjóð- in tók á sig með Atlantshafsamningnum, en var ekki sjálf fær um að inna af hendi, og fékk þvi aðra þjóð til að gera fyrir sig. Er hægt að hugsa sér öllu ódrengilegri fram- komu? Á Þjóðviljanum furðar sig enginn, en sú breyting, sem orðið hefur á hinum blöð- unum, stafar af hinum auknu áhrifum ný- kommúnista i þessum flokkum." Síðan er rakin stofnun Þjóðvamar- flokksins og hlutverk hans, stofnun landshreyfingar „gegn-her-í-landi“, hinar DAGRENNING 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.