Dagrenning - 01.08.1956, Blaðsíða 30
einn einasti kommúnisti neins staðar í
heiminum sagt eitt orð um að afneita tak-
marki Lenins,“ sagði Robertson.
Robertson kveðst vera þeirrar skoðun-
ar, að útskúfun Stalins og hin nýja stefna
kommúnista þýddi raunverulega það, að
„kommúnistar hafi loks gert sér það ljóst,
að ekki er hægt að ógna frjálsum þjóð-
um, að valdi verður mætt með valdi. . .“
Loks sagði Robertson, að takmark
„hinnar nýju stefnu kommúnista“ sé að
„svæfa hinn frjálsa heim, einkum Banda-
ríkin, og fá hann til þess að víkja af
verðinum bæði í andlegum og verald-
legum efnum.“
Hér er áreiðanlega mjög rétt á mál
þessi litið. Því má bæta við að í veizlu
sem haldin var í Peking 14. febrúar
1955 í tilefni af því að liðin voru fimm
ár frá því að vináttusáttmáli Rússlands
og Kína var undirritaður, sagði Maó Set-
ung: „Hefji auðvaldsríkin hemaðarað-
gerðir gegn alþýðulýðveldunum munu
Sóvietríkin og Kína sameiginlega og með
aðstoð annara alþýðulýðvelda þurka þau
út af yfirborði jarðar."
Allt skraf um það að friðvænlegra sé
nú í heiminum en verið hefir síðustu
árin, er vísvitandi blekkingartilraun af
hálfu Sovietríkjanna, sem þjónar þeirra
halda fram, eða menn sem þeim hefir
tekist að slæva svo dómgreindina hjá, að
þeir mega með réttu teljast blindir.
*
Athyglisverð fyrir okkur íslendinga,
sem nú erum að hrekja burtu vamar-
liðið hér, eru eftirfarandi ummæli í
NATO-svarinu til ríkisstjómarinnar:
„Samningur þessi (þ. e. við Bandarík-
in) var gerður árið 1951. Þá höfðu horf-
ur í alþjóðamálum versnað verulega og
tilefnislausar árásir verðir gerðar á lýð-
veldið Kóreu, EN ÞAÐAN HAFÐI
BANDARÍSKT HERLIÐ ÞÁ FYRIR
SKÖMMU VERIÐ FLUTT Á
BROTT.“
Árásin á Kóreu var einmitt gerð þeg-
ar hið bandaríska herlið, sem þar dvaldi,
var nýflutt burtu. Við hliðstæðri at-
höfn mætti búast nú, ef varnarliðið frá
Keflavík yrði flutt í burtu. Sú árás yrði
e. t. v. ekki í fyrstu lotunni á ísland,
heldur sennilega á Noreg, því herstöðin
hér er bakvörn allrar Skandinavíu.
Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur
lýsa því nú yfir sem stefnu sinni í utan-
ríkismálum, að þeir vilji vinsamlegt
samstarf við vestrænar þjóðir í vamar-
málum, en að þeir vilji ekki að her
dvelji hér á „friðartímum.“ Og þeir
segja einnig, að meiri hluti Alþingis
eigi á hverjum tíma að ákveða hvað kall-
ast skuli friðartímar. Herstöð megi að
vísu standa hér, ef hún sé óvarin og
mannlaus, líkt og mótorbátur, sem ligg-
ur við ból sitt. Sjá ekki allir gegnum
þennan lævíslega blekkingavef. Með
þeim hætti er ísland ekki á neinn hátt
virkur þátttakandi í vörnum hins vest-
ræna heims. Það er með öllu óvirkur
þátttakandi, lánar aðeins land, sem
„leigjandinn“ má þó ekki stíga fæti sín-
um á nema líf hans eða annarra liggi við.
Hvaða gagn er Atlantshafshernum í
herstöðvum, sem hann ekki má koma í
fyrr en styrjöld er hafin, og óvinurinn
þá kannske búinn að taka þær? Her-
stöðin er þá liugsuð eins og fjárhúskofi,
sem bóndinn getur látið standa auðan
þegar honum sýnist, en rekur svo sauð
ina í, þegar fjárskaðaveðrið er skollið
yfir.
Slík stefna í utanríkismálum er greini-
lega gervistefna, — aðeins einn þráður-
28 DAGRENNING