Dagrenning - 01.08.1956, Blaðsíða 31
inn í blekkingavef nýkommúnismanns.
Hitt er og jafn fráleitt að miða nú við
þær aðstæður sem voru 1949. Hinar
stórfelldu breytingar sem síðan hafa
orðið á öllum sviðum, og ekki sízt í
samskiptum þjóðanna, segja hér til
sín eins og annars staðar.
Aðeins um tvennt getur verið að
tala, ef íslendingar vilja vera virkir
þátttakendur í vömum vestrænna þjóða,
og hafa vinsamlega afstöðu til þeirra.
Annað er það að hafa hér ákveðinn
fjölda hermanna, til að gæta varnar-
stöðvanna, frá þeirri þjóð, sem við telj-
um okkur mestan styrk í að hafa — og
þá eru það tvímælalaust Bandaríkin. —•
Hitt er að stofna íslenzkan her, sem að
nokkrum árum liðnum gæti verið þess
umkominn að taka við gæzlu varnar-
stöðvanna hér, undir yfirstjórn Atlants-
hafsbandalagsins, eins og hinar Norður-
landaþjóðirnar gera.
Fjárkofa-stefna núverandi ríkisstjórn-
ar í utanríkismálum, er gervistefna, búin
til og borin fram í þeim tilgangi að vera
einn áfanginn á þeirri leið að hrekja ís-
land út úr samtökum vestrænna þjóða,
svo það fái sem fyrst ástæðu til að leita
skjóls fyrir austan tjald.
#
Aðeins eitt er nú fyrir hendi fyrir ís-
lenzku þjóðina og það er að rísa ein-
huga upp gegn því glæfraspili, sem nú
er verið að leika með framtíð hennar,
heiður og líf. Með loforðum, sem ekki
á að efna, og blekkingum, voru margir
tældir til að kjósa Framsóknar- og Al-
þýðuflokkinn í trausti þess, að þeir
flokkar tækju ekki upp samstarf við
kommúnista. Allt þetta fólk á nú að
segja skilið við þessa flokka og fylkja
sér í nýjan stjómmálaflokk, sem vill af
einlægni vestrænt þjóðasamstarf, og vill
að ísland vanefni ekki eða svíkist und-
an þeim skuldbindingum, er það tekst
á hendur sem frjálst og fullvalda ríki.
Þessi nýi flokkur verður einnig að
hefja miskunnarlausa herferð gegn
kommúnismanum í öllum myndum
hans.
Þetta fólk getur ekki gengið í Sjálf-
stæðisflokkinn, né fylgt sér undir merki
hans, af mörgum ástæðum, og ekki hvað
sízt af þeirri, að honum er ekki treyst-
andi til fullrar andstöðu við kommún-
ista. Hann hefir myndað með þeim rík-
isstjórn. Hann hefir unnið með þeim í
verkalýðsfélögunum, og afhent Jieim
yfirráðin þar, og hann hefir nú síðast
léð máls á því að þiggja hjálp þeirra til
að vinna ótrúlegt óhæfuverk á öðrum
stjórnmálaflokkum í landinu. Margir
sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu
kosningum, eiga þar ekki heima, heldur
gerðu það í mótmælaskyni við stefnu
hinna flokkanna, því þeir áttu engra
annarra kosta völ. Það er einnig mjög
líklegt, að margir aðrir úr þeim flokki
skipuðu sér í nýjan flokk, sem hefði
ákveðna stefnu í hinum þýðingarmestu
málum þjóðarinnar, öðrum en varnar-
málinu, en slíka stefnu skortir alla þá
stjórnmálaflokka, sem nú eru til á ís-
landi.
Stofnun slíks flokks þolir tæpast
bið öllu lengur. Það verður að hefjast
handa nú þegar, því eftir eitt ár getur
það verið of seint.
DAGRENNING 29