Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 35
og Bandaríkj unum er kristindómurinn
ófrávíkjanleg undirstaða stjórnmálabar-
áttunnar.“ Þessi skoðun hins norska
prests á ekki síður reindi til vor íslend-
inga, en til frænda vorra í Noregi.
„En hér vil ég einnig benda á það,“
sagði fyrirlesarinn, „sem ég raunar sagði
í fyrirlestri mínum, að Kristilegi flokkur-
inn hefur orðið til þess að skapa starfs-
vettvang fyrir kristið fólk í þessu landi,
sem áður hvorki þori né gat tekið þátt
í stjórnmálum. Flokkurinn hefur kallað
til starfa fólk, sem var að vísu kristilega
vakandi, en stjórnmálalega sofandi, og
fyrir þessa stjórnmálalegu vakningu
meðal hins kristna hluta þjóðarinnar
á Kristilegi flokkurinn fullan heiður
skilinn."
Viðtalinu lýkur með þessum orðum:
„Það mun skaða bæði ríkið og kirkj-
una, ef kristindómi og pólitík er bland-
að saman, eða réttara sagt, ef pólitík
kemst í kristindóminn.
En hitt þýðir óhjákvæmilega fullkom-
in endalok hinna demokratisku skipulags-
hátta ef kristindómurinn verður skilinn
frá stjórnmálalífinu. Hann verður að vera
þar með, en ekki sem pólitískt vald, held-
ur sem hinn fasti grundvöllur þeirra sí-
gildu verðmæta sem demókratíið byggir
á tilveru sína.“
V.
Um þetta mættum vér einnig hugsa
hér á íslandi. Hin kristna menning er
hér liöfð að háði og spotti og skólarnir,
æðri sem lægri, flestir alveg heiðnir orðn-
ir. Þjóðin er á greinilegri hnignunarleið
í andlegum efnum og æskulýðurinn ráð-
villtur og rótlaus. Enginn stjórnmála-
flokkanna hvorki getur né vill taka á þess-
um málum á grundvelli kristindómsins.
Þeir vilja það ekki vegna hræðslu við
að verða þá að athlægi, og þeir geta
það ekki af því, að í engum þeirra
velst það fólk til forystu, sem borið
getur uppi kristilega stefnu.
Verkefnin sem bíða kristilegs stjórn-
málaflokks hér á landi eru bæði mörg og
mikil og svo að kalla á öllum sviðum
þjóðlífsins.
Kristilegur stjórnmálaflokkur mun hér
eins og í Noregi leysa úr læðingi sterk,
heilbrigð, kristileg öfl, sem nú „sofa“
vegna þess, að það er enginn vettvangur
til fyrir þau að starfa á. Sá grundvöllur
verður ekki til innan hinna flokkanna,
lieldur aðeins innan vébanda nýs, kristi-
legs flokks, sem skilur hlutverk sitt rétt.
Kristilegum flokki geta allir þeir fylgt
sem vilja varðveita kristilega og þjóðlega
menningu, og forðast þó „internationali-
seringu" sem nú fer fram í öllum lönd-
um, og á upptök sín í alþjóðakommún-
ismanum, en hann stefnir og markvist að
útrýmingu kristindómsins svo sem kunn-
ugt er.
Kristilegur flokkur verður að byggja
tilveru sína á þessum meginatriðum:
1. Virðingu fyrir einstaklingnum, rétti
hans og frelsi. Heilbrigð demókrat-
isk stjórnmálastefna verður ávallt
að miða að því að skapa sem best
skilyrði fyrir frelsi einstaklingsins
og persónulegum þroska hans, jafn-
framt því, sem ábyrgðartilfinning
hans er vakin og glædd. Þetta þýðir
að ríkið á að vera til vegna einstak-
lingsins, en einstaklingurinn ekki
vegna ríkisins.
2. Vitundinni um bræðralag allra
manna, er ekki verður takmörkuð
við flokk, hóp, stétt eða kynþátt,
eins og núverandi lýðræði gerir víð-
ast hvar. Kristileg stjórnmálastefna
verður að gera sér grein fyrir hinu
DAGRENNING 33