Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 45

Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 45
eða innflutningsskrifstofunni. Hinar miklu tekjur af Keflavíkurherstöðinni hafa allar farið til að standa undir styrkj- unum og hömlulitlum innflutningi á hátollaðri vöru, til þess að fá tekjur í ríkissjóðinn. Húsnæðisvandræði eru enn stór- kostleg, sérstaklega í Reykjavík, kaup- stöðunum við Faxaflóa og jafnvel á Ak- ureyri, og skipulag á þeim málum mjög ófullkomið og fálmkennt. í því eins og öðru er lítið miðað við skynsemi og þörf, lieldur fyrst og fremst flokkspólitísk hagsmunasjónarmið. Viðskipti þjóðar- innar eru að meira en helmingi komin „austur fyrir tjald“ og þaðan verður að kaupa dýra, og oft vonda — og stundum óþarfa — vöru, fyrir þau matvæli, sem við flytjum þangað. Landhelgismálið er ó- leyst og viðskiptin við þau lönd, sem hafa frjálsan gjalddeyri og frjálsa verzl- un dragast rneira og meira saman. Kapp- hlaupið milli kaupgjalds og verðlags heldur stöðugt áfram og það er ómögu- legt að stöðva það, vegna hinna hat- römmu stéttaátaka, sem hrista þetta litla þjóðfélag um hver áramót svo mjög, að það riðar til falls. Svona mætti lengi telja en við þetta verður að sitja að sinni. Stjórn Ólafs Thors, sem setið hef- ir síðan 1953, er einhver veikasta stjóm sem verið hefir á íslandi nú um langt skeið, þrátt fyrir það, að hún hafði að baki sér meiri þingstyrk, en margar fyrri ríkisstjómir hérlendis. , Kosningabrellur. Nokkuð hefur verið um það rætt að undanfömu, að stórfelldar kosninga- brellur hafi verið hafðar í frammi í síð- ustu kosningum til Alþingis, og Fram- sóknarflokkur og Alþýðuflokkur hafi þar hagnast um of á því, að notfæra sér til hins ítrasta ágalla núverandi kosn- ingaskipulags. í þessu er nokkur sann- leikur, en þó ekki mikill. Það er hvergi bannað í íslenzkum kosningalögum, að flokkar geri með sér bandalag, eða láti vera að bjóða fram í ýmsum kjördæm- um, og mælist til þess við sína kjósend- ur þar, leynt eða ljóst, að þeir greiði öðrum flokki atkvæði. Þetta hefur oft verið gert og aldrei að því fundið fyrr en nú. Samfylking Alþýðuflokksins og Framsóknar í síðustu kosningum var þess vegna ekkert nýtt fyrirbrigði að öðru leyti en því, að þessi samfylking var nú algjör, þ. e. a. s., að þeir sam- fylktu í öllum kjördæmum landsins. Og það er enginn eðlismunur á því að hafa þetta fyrirkomulag í fáum kjördæmum, eins og oft hefur verið, eða í öllum kjör- dæmum, eins og nú var. Hið eina, sem athugavert var við þennan framboðs- máta Framsóknar og Alþýðuflokksins, voru listarnir í Reykjavík og Ámessýslu. Þar var framboðum hagað með þeim hætti, að vafasamt er að samrýmst geti anda kosningalaganna, þó ekkert ákvæði sé um það í lögunum sjálfum, enda geta þau framboð skapað mikil flokks- leg óþægindi, ef til varamanna þarf að taka. Afstaða Jóns Ásbjömssonar hæsta- réttardómara og formanns í landskjör- stjórn, var því greinilega rétt, er hann, í landskjörstjórn, lagði til, að þessir list- ar yrðu taldir utan flokka, nema sú breyting yrði gerð á þeim, að um hrein flokksframboð yrði að ræða. Það er ákaf- lega einkennilegt, að sú skoðun skyldi ekki sigra í landskjörstjórn, svo aug- ljóst, sem það er, að hún er rétt. Það er því alveg rangt, að telja, að hér hafi verið um nokkurn stjórnmálaglæp að ræða, sem refsiverður sé, og furðulegt, að nokkur skuli hafa látið sér til hugar DAGRENNING 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.