Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 58

Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 58
morðstilraunina, gerði hann sig tvisvar sinnum líklegan til þess að láta uppi leyndardóm dulmáls síns, en sá sig um hönd í bæði skiptin og hætti við að gera það. Bakhtiar og aðstoðarmenn hans voru að vonum óþolinmóðir. Þeir vissu, að hver dagur, sem leið án þess að þeim tækist að ráða gátu dulmálsins, hlyti að auðvelda kommúnistum alls konar lodd- aralistir til þess að bregða nýjum huliðs- hjálmi yfir samsærið. íransstjórn bjóst því til að leita aðstoð- ar erlendra dulmálssérfræðinga. En einn af sérfræðingum hennar sjálfrar var þá kominn það langt, að ráða gátuna, að hann hélt sig mundu geta það eftir að hann hefði átt tal við Mobasheri og hler- að hugsanir hans. Mobasheri var í fyrstu þverari en nokkru sinni áður o£ fullviss- aði hann um, að það væri tímaeyðsla ein fyrir hann, að ætla sér að ráða dulmálið. En hvort, sem það hefir verið af einhverri óafvitandi samúð sérfræðingsins með öðrum áhugamanni á sviði hans eða ekki, þá varð endirinn á viðtali þeirra sá, að Mobasheri viðurkenndi, að hinn væri á réttri leið. En Bakhtiar fannst vera búið að eyða allt of löngum tíma í árangurslausar til- raunir til þess að ráða dulmálið. Þann 3. sept., rúmlega þremur vikum eftir að Abbasi var handtekinn, ákvað hann að senda ljósmyndir af dulmálsskjölunum til útlanda. Leynilögreglumaðurinn, sem skyldi fara með þær, var þegar kominn upp í flugvél, og farið var að reyna hreyfl- ana áður en lagt væri af stað. Þá komu þau hraðboð til flugvallarins, að för flug- vélarinnar væri orðin óþörf. Hinum þrautseiga, íranska sérfræðingi hafði loksins tekizt að ráða táknmál Mo- basheris. Það tók þó enn nokkra daga, að lesa skjölin og ganga úr skugga um, hvar hver hinna seku liðsforingja væri staðsettur. Sumir samsærismannanna áttu, ef allt hefði verið með felldu, að vera í hópi þeirra, sem stjómuðu handtökunum, en nú varð einnig að handtaka þá, þar á meðal yfirmann heils herfylkis. En engu að síður var allt skipulagt fyrirfram, skeyti meira að segja send út um land, um fangelsun þeirra, sem þar vom. Vinnubrögð Sovétnjósnaranna. Næstu vikur voru hvorki meira né minna en 570 liðsforingjar teknir fastir. Samsæri kommúnista í hemum var þar með úr sögunni, og Bakhtiar og félagar hans gátu nú loksins gefið sér tíma til þess að grannskoða skjölin og spyrja fang- ana. Þá varð þeim fyrst að fullu ljóst, hvernig kommúnistískt samsæri er skipu- lagt. Meðal annars urðu þeir þessa vísari: Áður en nokkur var tekinn í liðsfor- ingjasamsærið, héldu njósnarar Rooz- behs uppi nákvæmum spumum um for- tíð hans, framkomu og skoðanir; en sjálf- ur hélt Roozbeh ýtarlega skrá um það, sem þeir urðu áskynja. Þar var fyrst á blaði eins konar mannlýsing í tuttugu og tveimur liðum, á ætterni, eðli og ævi- ferli, lærdómi, lestri, stjómmálaskoðun- um, skapsmunum, já, hverjum hinum lítilfjörlegasta ljóði á ráði hans. Maður, sem lét í ljós hatur á Bandaríkjunum og Bretlandi, eða talaði illa um íranskeisara, þótti fyrirfram líklegur til trúnaðar. Maður, sem auk þess lét í ljós aðdáun á Sovétríkjunum var talinn svo til sjálf- kjörinn í samsærið. Aðild að einhverju kirkjufélagi þótti hins vegar viðsjárverð. Einn njósnarinn gerði svofellda athuga- semd við tiltekinn liðsforinga í skrá Roozbehs: „Ekki tækur, — biðst fyrir.“ Miklu álitlegri þótti umsögn hans um 56 DAGRENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.