Dagrenning - 01.08.1956, Side 59

Dagrenning - 01.08.1956, Side 59
annan liðsforingja, sem stjómaði skrið- dreka: „Hlustar á fréttir útvarpsins í Moskvu . . . hefur losað sig að miklu leyti af klafa trúarinnar . . . aldrei átt nein mök við óvini kommúnismans ... er vin- ur Sovétríkjanna." Hann var tekinn taf- arlaust í samsærið. En þetta var ekki nema byrjunin. Þeg- ar Bakhtiar var orðinn kunnugur þeim aðferðum, sem kommúnistar beittu til þess að velja og skóla fimmtu herdeild- armenn sína, undraðist hann, að sér skyldi hafa tekizt að hafa hendur í hári nokkurs þeirra. Jafn skjótt og einhver hafði verið tekinn í samsærið hófst fyrir hann hálfs árs reynslutími, sem notaður var til þess að kenna honum kommún- istísk fræði. Fyrsta námsgrein hans var saga mannkynsins frá sjónarmiði komm- únista; en þar var raunar aðalkennslu- bókin „Saga kommúnistaflokks Sovét- ríkjanna," samin og gefin út undir stjóm ltins þekkta „sagnfræðings" Jósefs Stal- ins! Að lestri hennar lokinni var læri- sveinninn látin snúa sér að eldri ritum kommúnismans, svo sem „Kommúnista- ávarpinu" og nokkrum helztu ritum Lenins. En honum var einnig kennt ýmislegt annað. Eitt af því var það, að ágætt væri að eiga konu, sem væri sovétvinur og kommúnisti. Um það bil ári áður en Abbasi var handtekinn, höfðu kommún- istar stofnað sérstakt kvenfélag til þess að þjálfa konur hinna kommúnistísku liðs- foringja, svo að heimili þeirra yrðu ekki aðeins þægilegt og öruggt athvarf fyrir flokksmenn, heldur og ákjósanlegar upp- eldisstofnanir fyrir börn, sem skyldu alin upp í anda kommúnismans. En til þess að nokkur kona fengi upptöku í þetta félag varð maður hennar að láta komm- únistum í té ýmsar upplýsingar um eigin- leika hennar, áhugamál og menntunar- stig. Einkennandi fyrir þessar trúnaðar- skýrslur eiginmannanna er eftirfarandi lýsing, sem einn liðsforinginn gaf komm- únistum af konu sinni: „1. Menntun: Sex ára skólanám. 2. Áhugamál: Sýnir ekki mikinn áhuga, enda komin af jarðeignaaðli. En það er óhætt að treysta henni, og henni þykir mjög vænt um mig. 3. Skoðanir: Hatar Bretland og Bandaríkin, en er vel við Sovétríkin og alþýðuríkin. 4.Félagar: Eru allir úr hópi „menntamanna." Hún þekkir Mansur, en veit ekki að hann er í flokknum." En þótt farið væri fögrum orðum við nýliðana um tilgang „flokksins" og sam- særisins, var höfuðatriðið að njósna fyrir Sovétríkin, og fyrr eða síðar var það af- dráttarlaust viðurkennt. Allir áttu að vera njósnarar fyrir þau. Liðsforingi, sem starfaði í herforingjaráði írans, átti, til dæmis, að skýra kommúnistum frá öllu því, sem hann yrði vísari þar. Sérfræð- ingur, sem tók við öllum dulmálsskeyt- um til herforingjaráðsins, átti að láta þeim í té bæði dulmálslykilinn og afrit af sjálfum dulmálsskeytunum. Liðsfor- ingi, sem var í njósnadeild hersins, átti að skýra þeim frá öllu, sem varðaði störf hennar. Starfsmaður við vopnabúr hers- ins var látinn stela sýnishornum af hand- sprengjum og skotfærum, sem Banda- ríkin höfðu birgt fran að. „Okkur var sagt, að skýra frá öllu, sem við sæjum,“ sagði einn fanginn. Og af skjölunum, sem gerð voru upptæk á skrif- stofum liðsforingjasamsærisins — öllum bréfunum, sem farið höfðu á milli Mossa- deghs forsætisráðherra og Anglo-Iranian Oil Company, fjölmörgum orðsending- um utanríkismálaráðuneytisins til er- lendra stjómarvalda, afritum af hér um DAGRENNING S7

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.