Dagrenning - 01.08.1956, Side 62
N eðanjarðarprentsmidja
samseerismanna.
ein kona, mótmæltu harðlega þessum að-
förum og kváðust ekki vita, hverju þær
sættu. En hermennirnir höfðu þau mót-
mæli að engu og héldu áfram að leita.
Er klukkustund var liðin án þess að
nokkurs staðar yrði vart við hina leyni-
legu prentsmiðju, varð Bakhtiar og fé-
lögum hans allt í einu starsýnt ú útbúnað
vatnssalernis, sem var við hliðina á bíl-
skúrnum. Það leit ekki út fyrir, að það
hefði verið notað nýlega, þar var allt
svo þurt. Einhverjum datt í hug að revna
vatnsleiðsluna; en hún var tóm! Þeir
tóku þá á sætinu; og það reyndist vera
laust. En undir því var stórt gat á gólf-
inu, og lá stigi þar niður í neðanjarðar-
göng, sem enduðu í stórum, vel upp-
lýstum, Jtvítkölkuðum sal!
Á einu þili stofunnar ofan jarðar hafði
getið að líta glæsilega mynd af keisaran-
um. En hér niðri skreyttu myndir af
Lenin, Stalin og Aíao þrjá veggi. Á
gólfi neðanjarðarsalarins stóðu tvær stór-
ar prentvélar og skápar með letri; en ný-
prentuð blöð og bæklingar lágu í bunk-
um meðfram veggjunum. Lítil bjalla var
yfir mynd Stalins, og var henni hringt til
aðvörunar, ef nauðsyn þótti, vegna um-
ferðar í kringum húsið, svo að prent-
ararnir gætu stöðvað vélarnar og þar með
hávaðan af þeim. Athugun á vélunum
leiddi í Ijós, að prentsmiðjunni hafði
verið komið þarna fyrir um leið og hús-
ið var byggt, 1950, og þá áður en gengið
var frá gólfi þess. Þetta var sannkallað
meistaraverk kommúnistísks moldvörpu-
starfs. Bakhtiar taldi það líklegt, að
Stalin sjálfur hefði lagt á ráðin um það,
því að sem kunnugt er, hafði hann á
yngri árum sýnt mikla leikni í því að
fela prentsmiðjur flokks síns.
Ósigur Thudehflokksins.
Fyrir Tudehflokkinn var uppgötvun
prentsmiðjunnar mikið áfall, já, kann-
ski ekki mikið minna en afhjúpun sjálfs
liðsforingjasamsærisins. Bakhtiar sýndi
nú, að einnig hann kunni list áróðurs-
ins, því að hann lét þessa neðanjarðar-
prentsmiðju vera til sýnis öllum almenn-
ingi í marga mánuði, svo að íbúar Teher-
ans mættu sjá, hvernig Rússar færu að
því að grafa undan stoðum vinsamlegs
60 DAGRENNING