Dagrenning - 01.08.1956, Blaðsíða 63

Dagrenning - 01.08.1956, Blaðsíða 63
nágrannaríkis, og hvað þeir létu sig kosta það. Af þeim 570 liðsforingjum, sem tekn- ir voru fastir, voru 26 teknir af lífi. Fangelsisdóm fengu 539, minnst 18 mán- uði, en sumir ævilangt. Síðan hafa þó 14 verið látnir lausir. Aðeins örfáir sam- særismenn komust undan með því að flýja land; en á meðal þeirra var Rooz- beh, sem talið er að komist hafi til Rússlands. Abbasi mun hafa verið lát- inn laus og honum leyft að fara úr landi, en nauðsynlegar ráðstafanir jafnframt verið gerðar til þess að tryggja líf hans gegn eftirsókn kommúnista eins og Bakhtiar hét honum. í dag er allt með kyrrð og spekt í íran og stjórn keisarans stendur þar föstum fótum. Þetta er svo almennt viðurkennt, að jafnvel Sovétríkin hafa séð sér það ráð vænzt, að setja í bili upp blíðubros og bjóða keisaranum til Moskvu. Hann mun væntanlegur þangað með drottn- ingu sinni, Soróyu hinni fögru, einhvem tíma í vor. f -N Til kaupenda Daárennináar Um leið og beiðst er afsökunar á því að þetta hefti er aðeins síðbún- ara en ætlast var til, — það átti að koma út í ágúst — er rétt að skýra kaupendunum frá því, að vel getur svo farið að nokkur breyting verði gerð á útkomutilhögun Dagrenningar nú á næstunni. Eins og kaupendur muna var gert ráð fyrir því, að Dagrenning kæmi út í 3 heftum nú í ár. Hið fyrsta kæmi í apríl, annað í ágúst og hið þriðja í desember. Það er ljóst af þeirri reynslu sem fengin er af breytingunni, sem nú hefir verið gerð, að hún er ekki til bóta, þó það verði ekki frek- ar rætt að sinni. — Er því helzt í ráði að stækka ritið og láta það koma út mánaðarlega. Yrði þá hvert hefti 16—20 síður eftir því sem á stæði um efni hverju sinni, og heftin 12 á ári. Til þess að þetta verði hægt þarf auðvitað að hækka áskriftarverðið næsta ár upp í 75—100 krónur, en það yrði samt lægra en verð rita af sambærilegri stærð. Breyting, slík sem þessi, mundi auðvitað krefjast mun meiri launaðrar aðstoðar við ritið en nú er. Líklegt er, að ég muni gera tilraun í þessa átt nú í haust, og í stað þess að draga allt efni saman til desemberheftisins, að láta koma út þrjú hefti til áramóta. Mundi fyrsta heftið þá koma í október, annað í nóvem- ber og hið þriðja í desember. — Kaupendur mundu þá kynnast betur hinum breyttu viðhorfum og geta gert það upp við sig hvort þeir vildu kaupa ritið áfram í því formi næsta ár. Með þessari breytingu mundi ritið þjóna betur þeim tilgangi, sem það nú hefir, og kaupendum var skýrt frá í desemberheftinu 1955. Reykjavík, í ágúst 1956. Jónas Guðmundsson. v_____________________________________________________________________/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.