Ægir - 01.03.2014, Qupperneq 14
Ný gerð verksmiðju frá Héðni til
framleiðslu á próteinmjöli og
fiskolíu úr fiskúrgangi þykir
lofa góðu en prófanir fóru fram
nú á fyrri hluta ársins. Hug-
myndir eru uppi um að leigja
verksmiðjur til fyrirtækja sam-
hliða sölu á búnaðinum. Verk-
smiðjan verður framleidd í
nokkrum stærðareiningum,
jafnt til framleiðslu á landi sem
og til sjós. Helsti kostur hennar
er nýtt framleiðsluferli sem er
nógu lítið og hagkvæmt fyrir
framleiðslu mjöls og fiskolíu úr
annars ónýttum úrgangi. Hún
hentar því við aðstæður þar
sem verðmætavinnsla af þessu
tagi hefur ekki áður komið til
greina.
Frumgerð smíðuð
Verksmiðjan er hugarsmíð
Gunnars Pálssonar, þróunar-
stjóra hjá Héðni, sem hefur
unnið að þróun hennar undan-
farin tíu ár. Hún er hönnuð til
að skila próteinríku gæðamjöli
með lághitaþurrkun og fiskolíu
í hæsta gæðaflokki.
Heiti verksmiðjunnar, HPP,
er stytting á Héðinn Protein
Plant. Gunnar segir að litlar
framfarir hafi orðið um langt
árabil í þeirri tækni sem
próteinverksmiðjur búa yfir.
Markmiðið var að smíða litla
verksmiðju sem nýtir allan
fiskúrgang. Margar einfaldari
verksmiðjur skila ekki öllu þurr-
efninu heldur skilja vökvann frá
sem síðan er hent. Gunnar segir
að í honum sé mikið mjöl og
með mestu próteininnihaldi.
„Þrjátíu prósent af þeim
próteinum sem eru í úrgangin-
um fara fyrir borð með vökvan-
um ef honum er hent,“ segir
Gunnar.
Fyrir fimm árum hófst mark-
viss vinna við þróun og smíði
verksmiðjunnar. Byrjað var að
smíða einstaka hluti verksmiðj-
unnar en fyrir fjórum árum var
frumgerð hennar smíðuð og
prufuvinnsla á próteini hafin.
Fyrir tveimur árum hófst smíði á
minnstu gerð verksmiðjunnar
sem heitir HPP-300 og hefur
hún verið í rekstri hjá Próteini
ehf. í Garði í eitt ár. Eins og
Byltingarkennd prótein-
verksmiðja frá Héðni
14
„Við höfum náð öllum okkar
markmiðum með
verksmiðjunni og hún býr
yfir meiri afköstum en við
reiknuðum með og með
minni orkunotkun. Hún er
algjörlega sjálfvirk að öðru
leyti en því að það þarf að
sjá henni fyrir hráefni og
taka frá henni afurðirnar.“
Gunnar Pálsson, þróunarstjóri hjá Héðni, hefur
unnið við þróun verksmiðjunnar undanfarin ár.
T
æ
k
n
i