Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Blaðsíða 17
M
inecraft er ólíkur öll-
um öðrum tölvu-
leikjum. Grafíkin er
einföld, hljóðheim-
urinn fábrotinn og enginn sögu-
þráður til að fylgja eða prins-
essur til að bjarga úr köstulum.
En um leið býður leikurinn
upp á nánast ótæmandi mögu-
leika, því Minecraft-heimurinn er
einn stór sandkassi þar sem leik-
menn geta skapað sín eigin æv-
intýri og smíðað heilu borgirnar.
Minecraft er aðgengilegur og
flókinn í senn. Leikmaðurinn
byrjar að spila án hvers kyns
leiðbeininga. Hann er lentur í
heimi sem forritið hefur skapað
af handahófi, með fjöllum, slétt-
um og vötnum, plöntum og dýr-
um. Fljótega lærist að hafa þarf
hraðan á, smíða verkfæri og
byggja eins og einn lítinn kofa
því þegar sólin sest fara skrímsli
á stjá og þá er ekki gott að
vera varnarlaus undir berum
himni.
Sköpunargleðin ræður
Leikmenn geta spilað einir eða
með öðrum, grafið djúpar námur
lengst ofan í jörðu eða smíðað
turna sem ná upp í skýin. Þeir
geta skapað og skemmt, byggt
margslungin draumahús eða
sprengt upp heilu tindana með
dínamíti.
Er nema von að börn, og
raunar fullorðnir líka, eigi auðvelt
með að gleyma sér í þessum
undraverða sandkassa?
En fæstir komast langt án
þess að leita út fyrir sjálfan leik-
inn, og þar er komið enn eitt
sérkenni Minecraft því í kringum
leikinn hefur orðið til risastórt
samfélag sem deilir brögðum og
brellum á wiki-síðum og gegnum
YouTube-myndbönd. Á meðan
Minecraft-heimurinn er staður til
að þroska sköpunargáfurnar
kennir þessi ytri stuðningsheimur
börnunum að bera sig eftir fróð-
leik á netinu.
Þannig skrifar tæknivefritið
Wired um hvernig Minecraft
virðist vera að hjálpa börnum að
öðlast aukinn lesþroska. Þau
sökkva sér ofan í leikinn og því
fylgir að lesa í gegnum hand-
bækur á netinu sem margar eru
skrifaðar á allt öðru en einföldu
máli.
Handbækurnar kenna spil-
urunum að blanda saman hinum
ýmsu „frumefnum“ úr Mine-
craft-heiminum til að smíða bæði
einfalda hluti og flókna, allt frá
skóflum og sverðum yfir í málm-
bræðsluofna eða kökur með
kremi. Meðfram þessu er svo
óhjákvæmilegt að öðlast
einhvern skilning á t.d.
jarðfræði, efna-
fræði og land-
búnaði: þegar
grafið er
niður í
jörðina
koma í
ljós ólík
jarðlög,
málmar og
kol, jafnvel
logandi hraun, og
þegar ráðist er á granda-
lausan grís á förnum vegi skilur
hann eftir sig kjötbita.
Ekki er ástæða fyrir foreldra
til að hafa miklar áhyggjur af
Minecraft-áhuga barna sinna. Er
samt ágætt að hafa hæfilegar
gætur á spiluninni og t.d. passa
upp á að spilatíminn fari ekki úr
hófi og að
barnið sé að
skoða leið-
beininga-
myndbönd
og hand-
bækur sem
eru við
hæfi.
Þá
verður
að muna
að ekki
leika allir sér
fallega í Minecraft og
ef spilað er með öðrum er
möguleiki á að núningur skapist
milli þeirra sem vilja t.d. byggja
og hinna sem vilja sprengja í loft
upp. ai@mbl.is
EINSTAKUR SANDKASSALEIKUR
Af hverju eru börnin óð í Minecraft?
Í Minecraft má til dæmis byggja lítið miðaldaþorp frá grunni, upp á grínið.
TÖLVULEIKURINN MINE-
CRAFT NÝTUR MIKILLA
VINSÆLDA HJÁ YNGSTU
KYNSLÓÐINNI. EN HVAÐ
GERIR ÞENNAN SKRÍTNA
LEIK SVONA SKEMMTI-
LEGAN, OG HVAÐ KENNIR
HANN BÖRNUNUM?
Grafíkin er sér-
deilis einföld.
Finna má varasöm
skaðræðisdýr í
Minecraft.
Ljósmynd/Mike Prosser - Flickr (CC)
Bala Kamallakharan fjárfestir hefur verið áberandi í ís-
lenska frumkvöðlasamfélaginu undanfarin ár. Bala er
upphaflega frá Indlandi en er löngu búinn að skjóta rótum
hér á landi og býr í Fossvoginum með konu sinni Ágústu
Berg og dóttur þeirra Miru Esther, að ógleymdum heim-
ilishundinum Nölu Kamalakharn.
Þátturinn sem allir geta horft á? Okkur finnst mjög
gaman að horfa saman á góða fjölskylduþætti eins og t.d.
Merlin og Sherlock. Þessir þættir eru í miklu uppáhaldi
hjá dótturinni.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum? Mexikóskur og ítalskur
matur er nokkuð sem allir í fjöl-
skyldunni eru mjög hrifnir af
og er mikið í boði. Indverskur
matur er einnig í miklu uppáhaldi og
reynum við oft nýjar og spennandi uppskriftir
heima.
Skemmtilegast að gera saman? Við sem fjöl-
skylda ferðumst mikið saman bæði til að heim-
sækja vini og ættingja um allan heim sem og til að
kynnast nýjum stöðum. Einnig eyðum við tíma á sumarhúsi okkar
og förum mikið út að ganga með hundinn hana Nölu.
Borðið þið morgunmat saman? Þegar við getum og alltaf um helgar en
þá gefum við okkur góðan tíma til að tala saman og plana daginn.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Förum út að
ganga, lesum (við lesum öll mjög mikið), vinnum í garðinum (Mira kýs
þó kannski frekar að horfa á), leikum við Nölu og horfum á góða bíó-
mynd.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Horfa saman á Sherlock
Bala með
konu sinni
Ágústu og
dóttur
þeirra Miru
Esther.
11.1. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Á vef Þjóðminjasafnsins er að finna sniðugar
dúkkulísur af landnámsfjölskyldu til að prenta út
og klippa. Á forsíðu er smellt á flipann „fyrir börn-
in“ neðst til hægri. Þá er hægt að velja dúkkulísur.
Landnámsdúkkulísur
Nú er vorönn að hefjast hjá mörgum íþróttafélögum. Gott er að hafa í
huga að hjá flestum gildir sú regla að krökkum er velkomið að prófa áður
en þau ákveða að hefja æfingar í tiltekinni íþrótt. Það getur verið fínt að
nýta sér prufutíma eða kynningar til að finna út hvar áhuginn liggur.
Gott að leyfa krökkum að prófa
Kæru gestir, verið velkomnir í nýja
húsnæðið okkar í Austurstræti 22.
Eftir viðburðaríkan desember hjá okkur
er stefnan tekin á að stemningin verði
jafn notaleg hér í Austurstrætinu og
hún var í Þingholtunum. Það eru þið og
við, kæru gestir, sem skapa hið rómaða
Caruso andrúmsloft og skulum við
halda því áfram á nýjum stað.
Nýja og gamla viðskiptavini bjóðum við
hjartanlega velkomna í nýtt húsnæði að
Austurstræti 22
Borðapantanir í síma 562 7335
eða á caruso@caruso.is.
Caruso, Austurstræti 22, 101 Reykjavík