Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.1. 2015
Heilsa og hreyfing
LISTI YFIR TÍU LÍKAMSRÆKTARÖPP SEM HÆGT
ER AÐ MÆLA MEÐ
Tækni í þágu
þjálfunar
Jóga er vel hægt að
gera heima því ekki
þarf mikinn búnað
og til eru mörg öpp
sem hjálpa til við
þjálfunina.
HÆGT ER AÐ NOTA TÆKNINA Í SÍNA ÞÁGU TIL AÐ
HJÁLPA TIL VIÐ AÐ EFNA ÁRAMÓTAHEITIN UM
BETRI HEILSU, STERKARI LÍKAMA OG LÍFSSTÍLSBREYT-
INGU TIL FRAMTÍÐAR. HÉR VERÐA TALIN UPP
NOKKUR ÖPP SEM GAGNAST TIL ÓLÍKRA ÆFINGA,
ALLT FRÁ JÓGA TIL LYFTINGA. ÖPPIN ER JAFNAN
HÆGT AÐ NOTA TIL AÐ SKRÁ ÆFINGARNAR,
DEILA ÞEIM MEÐ VINUM, FÁ KENNSLU OG FLEIRA.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Það eru ábyggilega margir sem taka fram blandarann á þessum tíma árs til að útbúa gómsæta drykki.
Þá er um að gera að setja eitthvað heilsusamlegt í drykkinn. Einn slíkur góður er með matskeið af rif-
inni engiferrót, ¼ af hvítlauksgeira, hálfu avókadó, tveimur bollum af berjum, bolla af spínati, mat-
skeið af hráu hunangi og smávegis af myntu. Öllu er síðan blandað saman með hálfum bolla af vatni.
Heilsusamlegir drykkir í janúar
Daily Yoga er ætlað jógum sem eru komnir mislangt í listinni en
ókeypis útgáfan er miðuð við byrjendur. Boðið er upp á stutta tíma
með tónlist og aðgangi að lista yfir margar mismunandi jógastellingar.
Hægt er að æfa í styttri eða lengri tíma í einu. Þegar jógaástundunin
hefur aukist er hægt að kaupa áskrift fyrir tíu dali en áskriftarútgáfan
býður upp á fleiri möguleika, svo sem að leggja áherslu á þyngdartap
eða ákveðinn líkamshluta. Þá er hægt að hlusta á kennslu í beinni og
horfa á myndbönd í HD-gæðum. Í gegnum keypta appið er líka hægt
að gera jóga fyrir hlaupara, betri svefn, heilbrigðan háls og morg-
unjóga.
Fyrir iOS, Android.
DAILY YOGA
Jóga fyrir hlaupara
og betri svefn
Vefurinn Digitaltrends.com lofsamar þetta app og
segir það þægilegt í notkun og auðvelt sé að skrá
og fylgjast með æfingum. Það sem er öðruvísi í
þessu appi er að leiðbeiningarnar eru teiknimyndir,
ekki myndbönd. Teiknimyndirnar eru spilaðar sjálf-
krafa og endurtaka sig líka sjálfkrafa svo þú þarft
ekki að setja á pásu eða endurtaka ef þú vilt fylgjast
sérstaklega vel með einhverju. Appið spyr þig
hvaða búnað þú átt áður en það stingur upp á æf-
ingu svo þú lendir ekki í því að eiga að grípa ket-
ilbjöllu eða jógabolta sem er ekki til.
Ókeypis fyrir iOS, Android.
PUMP UP
Leiðbeint með teiknimyndum
C25K er gott app fyrir þá sem
eru rétt að rísa upp úr sófanum
og að byrja að hlaupa. Það mið-
ast að því að byrjendur geti
hlaupið fimm kílómetra eftir að-
eins níu vikna æfingar ef fylgt er
planinu um að æfa að minnsta
kosti þrisvar sinnum þrjátíu mín-
útur á viku. Æfingarnar byggjast
á blöndu af hlaupum og göngu
og eiga að byggja þolið upp
hratt.
Ókeypis fyrir iOS og Android.
C25K
Rístu upp úr
sófanum
Fitocracy er samfélagsmiðill fyrir þá sem eru háðir lík-
amsrækt. Fólk notar appið til að hvetja sig áfram í æf-
ingunum og er hægt að keppa við náungann og vinna
sér inn stig. Hægt er að fylgjast með öðrum og setja
inn athugasemdir og hvatningu innan appsins. Keppni
af þessu tagi hvetur marga áfram og heldur þeim við
efnið. Hægt er að fylgja fjöldamörgum tilbúnum æfing-
um og fá næringar- og þjálfunarráð frá sérfræðingum.
Ókeypis fyrir iOS og Android en býður upp á
áskriftarleiðir.
FITOCRACY
Keppni við náungann
Styrktarþjálfun er
í tísku núna og er
hægt að nota
tæknina til hvatn-
ingar.
Getty Images/TongRo Image Stock