Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Síða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Síða 48
Viðtal 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.1. 2015 L ífið er núna, þetta er ekki búningaæfing, það er mitt lífsmottó,“ segir Dröfn Ösp Snorradóttir Rozasmurphsem hefur í mörg ár verið áberandi sem svoköll- uð DD unit. Fyrir þá sem ekki þekkja DD unit þá tók það alter egó Drafnar til við að skrifa um erlend- ar stjörnur, slúðrið í Hollywood, af mikilli þekkingu, fyrst á hinu óg- urlega vinsæla bloggi í kringum árið 2006 og síðar í ýmsum dagblöðum og að lokum á Rás 2 í ein þrjú ár þar sem hún flutti vikulega pistla alla leið frá Los Angeles. Þá var hún flutt, fyrir tilviljun reyndar, langleiðina heim til stjarnanna, eftir að hafa hitt þarlendan lífsförunaut á netinu. Margt hefur Dröfn bardúsað síð- an hún flutti út, hún starfar í dag í auglýsingageiranum í LA og starfar að gerð auglýsinga fyrir stór fyr- irtæki þar en eiginmaður hennar, Johnny Rozas, vinnur einnig í sama geira. Þá opnaði hún verslun í félagi við aðra Íslendinga í LA, sem sér- hæfir sig í að selja og kynna ís- lenska hönnun en verslunin er í einu svalasta hverfi Los Angeles. Reykjavík Outpost, eins og hún heitir, var opnuð með pompi og prakt fyrir nokkrum mánuðum og hefur hlotið góðar viðtökur hjá íbú- um borgarinnar. Þar hafa einnig verið haldnar listasýningar, bíósýn- ingar og tónlistarmenn eins og Ás- geir Trausti tekið lagið í versl- uninni. Dröfn sjálf er (með jákvæðri yfir- skrift, athugið) óvenjulega lifandi og skrautlegur persónuleiki. Ef fólk rekst á hana úti á götu er gull- tryggt að hún er að tala við ein- hvern og það er ekki ólíklegt að hún sé að hitta hann í fyrsta skipti þótt það líti út fyrir að þau hafi þekkst alla tíð. Hún er ein af þeim sem vinda sér upp að villuráfandi útlend- ingum hér heima og bjóða fram persónulega leiðsögn ef slíkt vantar, hún segist sjálf alltaf vera að skipta sér af því sem ferðamenn eru að gera og megi passa sig að gleyma ekki vinum sínum sem eru að bíða eftir henni á meðan. Sjálf er hún menntuð í stjórnmálafræði og segir það til komið vegna ótrúlegrar for- vitni um hvernig tilveran virki. „Ef ævisaga mín yrði skrifuð myndi hún líklega heita Af hverju?“ Þessir eiginleikar; að tala tæpi- tungulaust og vera blátt áfram, gerðu Dröfn að sérlega skemmti- legum pistlahöfundi í útvarpinu, hún er sögumaður af guðs náð, en Dröfn viðurkennir að sumum finnist hún tala mikið, sem betur fer hafi hún líka fengið að heyra að það sé þó að minnsta kosti ekkert leiðinlegt sem henni detti í hug að segja. „Ég hef stundum sett það áramótaheit að tala minna en ég bara get það ekki. Andri Ólafsson, vinur minn, hefur spurt mig af hverju ég þurfi að tala svona mikið – hvort mér finnist óþægilegt að hafa þagnir. Ætli það sé ekki bara þannig,“ segir Dröfn og blikkar mig og tekur góðan gúlp- sopa af kaffinu. „Á öllum foreldra- fundum á öllum stigum lífsins hefur verið sagt að ég sé vissulega ljúf og góð og dugleg en það sé helst að ég tali of mikið.“ Borgarstjóri og svanur tóku ástfóstri við Dröfn Vinir hennar í gegnum tíðina segja að auðvelt sé að taka ástfóstri við hana. Sem og jafnvel borgarstjórar í Bandaríkjunum gera, svo eitthvað sé nefnt. Það kom vinum hennar ekki á óvart þegar fyrrverandi borgarstjóri Los Angeles, Antonio Villaraigosa, og Dröfn voru komin í hrókasamræður á veitingastað í Los Angeles. Einhvern veginn kom það upp úr dúrnum að Dröfn var íslensk en borgarstjórinn fyrrverandi er Ís- landsaðdáandi og hefur margsinnis komið til landsins til að veiða. Dröfn er enga stund að fanga fólk í skemmtilegar samræður og hrífa það með sér. En það sama má reyndar segja um dýrin. Hinn alræmdi Kári – svanurinn sem gerði allt vitlaust á tjarnarbakkanum í miðborg Reykja- víkur í kringum 1990 – tók ástfóstri við Dröfn. Flestir muna hann sem ekki neitt sérstaklega ástúðlegan og þar man fólk rétt. Kári gerði aðsúg að fólki sem kom of nálægt honum, beit það og reyndi jafnvel að kasta börnum út í tjörnina. Hann fór oft út á göturnar í kringum tjörnina, breiddi út vænghafið og urraði á bíl- ana. Hann var þá ekki neitt að vill- ast eins og margur fuglinn heldur virtist þetta vera planað; hann gekk eins og uppstökkur kúreki í villta vestrinu á móti hverjum sem var; fólki og bifreiðum og stöðvaði um- ferðina. Og komst margsinnis í fréttir blaða og sjónvarps fyrir vik- ið. „Það var tekið sjónvarpsviðtal við mig þegar ég var í 8. bekk, þegar það spurðist að Kári hafði tekið ást- fóstri við unglingsstelpu og ég þarf líklega að sætta mig við að vera tengd við hann Kára fyrir lífstíð. Ég var mjög hænd að dýrum þegar ég var yngri, eiginlega alveg vitlaus í þau og get tekið undir orð eins kunningja míns sem sagði við mig að hann hefði litið svo á að David Attenborough væri afi sinn. En við vorum þarna nokkrir krakkar í Tjarnarskóla sem fórum að veita honum athygli. Þetta var síður en svo ljúft dýr en einhverra hluta vegna sá hann ekki sólina fyr- ir mér og kom til mín, breiddi vængina sína yfir mig og utan um mig alla. Ég fór að hanga með hon- um við bakkann, stundum sátum við bara tvö saman og ég var að læra en ef fólk nálgaðist mig réðst hann á það. Kári var líklega hvekktur eft- ir að hafa frosið við tjörnina og það þurfti að klippa flugfjaðrirnar af honum.“ Þetta samband hreyfði greinilega við mörgum. „Mörgum árum síðar vann ég á kaffihúsi og gömul kona, vel yfir áttrætt, horfði á mig og spurði hvort ég væri stúlkan með svaninn. Kári flaug svo að mig minnir austur á firði og ég vona að hann hafi fengið annað tækifæri þar til að eiga gott líf.“ Áður en við sleppum barna- og unglingastjörnunni Dröfn má nefna að hún var einn af fyrstu meðlimum Rokklinganna og átti spretti sem ef- laust einhverjir muna eftir úr sjón- varpinu. Rokklinga-æðið skók barnaskara landsins og voru þeir beðnir um eiginhandaráritanir, jafn- vel heimsóttir af aðdáendum. Dröfn er ófeimin við að viðurkenna að hún hafi verið rekin úr Rokklingunum, hver veit nema það hafi verið vegna listræns ágreinings, en í það minnsta er Dröfn hrein og bein með þessi endalok á barnastjörnuferl- inum á tónlistarsviðinu. Umtalað klámmyndband rataði í hendurnar Hvaðan kemur slúðurdrottningin DD unit? Hvernig varð hún til? „Hún hefur nú líklega alltaf verið þarna. Ég talaði reiprennandi ensku sjö ára því ég horfði daginn út og inn á MGM-kvikmyndir. Líklega voru ekki mörg íslensk börn á þess- um tíma sem þekktu Hollywood- stjörnurnar gömlu með nafni. Ætli þetta sé ekki vottur af einhverri bil- un. Það er kannski ekkert eðlilegt að fimm ára gamlar íslenskar stelp- ur sjái ekki sólina fyrir Ginger Ro- gers. Enda hef ég alla tíð átt og á í dag óskaplega mikið af pallíett- ukjólum. Þessi heimur var eins og töfrar í mínum augum. Enda mynd- irnar allar búnar til á stríðsárunum og áttu að gleðja eiginkonurnar meðan eiginmennirnir voru strá- felldir á vígstöðvunum. Það var út í hött að vera með eitthvert raunsæi í bíómyndunum á þessum tímum.“ Svo að þú ert hér um bil komin heim til þín, verandi flutt í stjörnu- hreiðrið Los Angeles? „Ég neita því ekki! Það er reynd- ar margt annað amerískt en þessar gömlu myndir sem urðu svo mínir félagar. Ég var ofboðslega upptekin af þeirra dægurmenningu, rappi og tónlist og leik og hlustaði og lærði utanbókar uppistandsþætti Eddie Murphy; Delirious, og athugaðu það að ég hlustaði á þættina á kassettu, hlustaði – horfði ekki því það var ekki aðgengilegt hérlendis og það eru alls ekki mörg ár síðan mér og Kollu vinkonu minni voru færð þau sláandi tíðindi að hægt væri að HORFA á þættina. Ég féll næstum í yfirlið.“ Samnemendur Drafnar úr Kvennó geta einmitt nokkrir vitnað um stelpuna í skólanum sem fór utanbókar með heilu senurnar úr þáttum Eddie Murphy án þess að taka pásu til að anda. „Mamma vann hjá Almenna bókafélaginu sem gaf bæði út bæk- ur og plötur og ég grúskaði í því dóti fram og til baka. Ég var lykla- barn og var vön því að vera ein með sjálfri mér eftir skóla og skemmti mér konunglega. Sem betur fer hef- ur mér aldrei leiðst í eigin fé- lagsskap. Ég horfði á hverja kvik- myndina á fætur annarri, get nefnt sem dæmi að á Grease horfði ég 40 sinnum í röð. Eftir að hafa horft á The Best Little Whorehouse í Texas mörgum sinnum fannst mér það orðið meira en frábær hugmynd að verða bara vændiskona ef það væri víst að Dolly Parton ræki húsið.“ Þessi áhugi var viðvarandi fram eftir öllu og Dröfn var vel inni í því sem var að gerast vestanhafs. Hún virðist reyndar hafa haft óhugnan- lega góð tengsl, í menntaskóla var hún ein af örfáum á Íslandi sem voru allt í einu, fyrir óvænta at- burðarás, komin með kynlífs- myndbandið víðfræga með Pamelu Anderson og Tommy Lee undir hendur og var að vonum ein vinsæl- asta stelpan í skólanum. „Á ég í alvörunni að vera að segja frá þessu í viðtalinu?! En jú, jú, vonandi sjokkerast enginn. Þetta var bara svona. En vinir mínir höfðu gaman af þessari fróðleiks- fýsn minni og einhver stakk því að mér að fara að blogga til að breiða boðskapinn út til fleiri,“ segir Dröfn og hlær. En það var þó greinilega lesendahópur til staðar og bloggið varð mjög vinsælt. Dröfn hætti ekki með bloggið fyrr en Facebook kom til sögunnar. Hún tók þó upp þráð- inn sem DD unit þegar Michael Jackson dó árið 2009 og hún var flutt til Los Angeles. Mörgum fjöl- miðlum þótti nærtækast að hringja í slúðurdrottninguna til að fá nánari upplýsingar um framvindu mála þar úti. Það var þá sem Dröfn fór í framhaldinu að vera með pistla í út- varpinu um það sem var að gerast úti. Sem stendur er Dröfn og vin- kona hennar, Hanna Eiríksdóttir, herferðarstýra UN Women, með vefvarpsþætti á vefsíðunni nuti- minn.is sem heitir Englaryk og fjallar um dægurmenningu og slúð- ur frá fjölbreytilegum hliðum. Hvað finnst Dröfn heillandi við dægurmenninguna? „Þetta er einfaldlega ein vídd af mannlífinu. Fræga fólkið er okkar nútímaskurðgoð, fyrirmyndir um víða veröld og leggur línurnar og hefur áhrif á okkur hvort sem okk- ur líkar betur eða verr. Það er í raun mikilvægt að vera læs á þessa menningu. Geta tekið það góða úr henni og sigtað út og gagnrýnt það slæma. En það er engin leið að úti- loka hana enda hefur hún margar mjög góðar hliðar. Þetta er eins og í bara öllum öðrum afkimum tilver- Komin heim til stjarnanna DRÖFN ÖSP SNORRADÓTTIR ROZAS, ÞEKKT SEM SLÚÐURSTJARNAN DD UNIT, ER ORÐ- HEPPINN ORKUBOLTI SEM HEFUR SÍÐUSTU ÁRIN STARFAÐ Í AUGLÝSINGAGEIRANUM Í LOS ANGELES EN OPNAÐI NÝVERIÐ VERSLUN ÁSAMT FLEIRI ÍSLENDINGUM Í LATTE- LEPJANDI HIPP OG KÚL HVERFI BORGARINNAR, SEM VAKIÐ HEFUR MIKLA ATHYGLI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is „Við fáum alls konar fólk inn til okkar með Íslandsáhuga; fólk kemur hingað til að segja okkur frá því að það sé á leiðinni til Íslands, mamma þeirra hafi verið að að koma þaðan, bróðir að gifta sig þar og svo framvegis,“ segir Dröfn Ösp Snorra- dóttir Rozas um kúnnahópinn í verslun hennar í Los Angeles. * Ég er ekkikona með puttann á púlsinum, nei nei nei, ég er konan sem setti puttann á púlsinn.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.