Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Page 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.01.2015, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.1. 2015 Listakonan Valgerður Hafstað (1930-2011) í Gerðarsafni þegar hún sýndi þar árið 2002. Morgunblaðið/Sverrir Sýningin „Andvari“ með verkum eftir Val- gerði Hafstað (1930-2011) verður opnuð í Listasafni Kópavogs – Gerðarsafni í dag, laug- ardag, klukkan 15. Á sama tíma verður opn- uð þar fræðslu- og upplifunarsýningin „Stúd- íó Gerðar“ þar sem lögð er áhersla á sköpun og ímyndunarafl þátttakenda. Valgerður Hafstað nam myndlist í Reykja- vík, Kaupmannahöfn og París en þar bjó hún til ársins 1974 ásamt eiginmanni sínum, André Énard myndlistarmanni. Þá settust þau að í New York og stunduðu kennslu samhliða listmálun.Verkin á sýningunni spanna allan listamannsferil Valgerðar. SÝNINGAR Í GERÐARSAFNI VERK VALGERÐAR Marina Picasso, barnabarn listmálarans kunna, und- irbýr að selja sjö af verk- um afa síns á næstunni fyrir um 14 milljarða króna. Þá hyggst hún einnig setja á sölu glæsi- höllina La California skammt frá Cannes, þar sem Picasso og síðasta eiginkona hans, Jacqueline Roque, bjuggu síðustu árin sem Picasso lifði. Að sögn The Independent er Marina Pi- casso, sem er 64 ára gömul, ekki á flæði- skeri stödd peningalega. Hún erfði auk hall- arinnar um 400 málverk og 7000 skissur og teikningar. Blaðamaðurinn segir sölu verk- anna aðeins að hluta til andvirðisins vegna, hún sé ekki síður táknræn, því með henni sé seljandinn að ná fram einskonar per- sónulegum hefndum á afa sínum, manni sem vildi lítið af börnum og barnabörnum vita meðan hann lifði. Árið 2001 sendi Marina Picasso frá sér bókina „Picasso: My Grandfather“ og segir í henni að afi sinn hafi fyllt alla örvæntingu sem komu nærri honum. Hún er dóttir Pau- los, fyrsta barnsins sem Picasso eignaðist með Olgu Khoklova, en hún segist hafa alist upp í fátækt og við erfiðar aðstæður. Í fyrra seldi hún tvö málverk og útskýrði þá söluna með þeim orðum að loksins væri hún að gera eitthvað með afa sínum. „Með sölunni fæ ég hann til að taka loksins þátt í lífi mínu.“ Marina hefur helgað líf sitt því að styrkja og styðja fátæk börn, ekki síst í Víetnam. Andvirði verkanna sem hún seldi í fyrra rann að mestu í styrktarsjóð hennar. Með hjálparstarfi sínu má segja að hún sé að þröngva afa sínum – manninn sem skapaði auðinn – til að gera eitthvað gott fyrir börn, 41 ári eftir dauða sinn. Á síðustu árum hefur Marina breytt La California í safn um afa sinn og sýnt þar hluta safns síns. Hún á þó ekki góðar minn- ingar þaðan; Jacqueline Roque leyfði börn- um og barnabörnum listamannsins oft ekki að hitta hann. Marina segir að þau Pablito bróðir hennar hafi oft þurft að bíða lengi fyrir utan hliðið. Pablito fyrirfór sér eftir að Roque meinaði honum að vera við útför afa síns. BARNABARN SAGT HEFNA SÍN PICASSO SELUR Pablo Picasso Menning Fyrir mig er ákveðinn léttir að þessi bóksé komin út. Það er búið að taka til,hreinsa borðið fyrir það sem koma skal,“ segir Hrafnkell Sigurðsson myndlist- armaður og bókin sem hann talar um, Lucid, liggur á borði við hlið okkar. Í þessu fallega bókverki birtist yfirlit yfir ljósmyndaverk listamannsins frá síðustu átján árum og þar á meðal kunnar raðir verka svo sem mann- gerðu snjófjöllin og tjöld á fannbreiðum, verk sem sýna sorp í pokum og böggum sem sumum er stillt upp á móti íslenskri náttúru; þarna eru samstæðu skipshliðarnar, spegl- aðar hraunmyndanir, nærmyndir af litríkum sjóstökkum og nú síðast sýndi Hrafnkell myndröðina Opinberun í i8 galleríinu, stór verk sem tekin eru í grængolandi dýpi af fögrum formum sem eru, þegar betur er að gáð, kúluplast sem bylgjast í vatninu. Þau verk eru í bókinni sem og enn fleiri athygl- isverðar myndraðir. Og við sitjum og ræðum verkin á yfirlitssýningu sem nú stendur yfir á þeim í höfuðstöðvum Arion banka í Borg- artúni; úrval þeirra er því allt um kring. Hrafnkell bætir við að hann verði í raun hálffeiminn við þá tilhugsun að nú séu þessi verk hans komin út um allan bæ, séu heima hjá hinum og þessum, þar sem þeir geti flett í bókinni og skoðað án þess að hann hafi nokkuð um það að segja. „En hér er þetta komið, átján ár af minni vinnu, og nú má velta því fyrir sér hvernig verkin lifa, hvort þetta sé eitthvað merki- legt.“ Hann brosir. „Listamenn með meiri reynslu en ég hafa sagt að svona bók vinni fyrir mann, og ef- laust gerir hún það á löngum tíma. Þetta er tæki sem hjálpar mér sem listamanni, tæki sem ég hef vissulega fundið að mig hefur vantað. En nú er það komið og það verður gaman að sjá hvað það gerir fyrir verkin.“ – Mesta útbreiðsla sem verk eftir þig hef- ur fengið var þó líklega þegar eitt tjaldverk- ið þitt frá 2001 var á forsíðu símaskrárinnar, borið í hvert hús á landinu, og vakti athygli. „Já, og fyrir vikið var það verk alls staðar sýnilegt. Það var í raun magnað …“ – Listamenn segjast oft þurfa að koma út bókum til að koma fargi verkanna af herðum sér, þá skapist rými fyrir önnur og ný. „Ég finn vel fyrir því núna. Margir nota bókina líka sem fyrstu birtingu á myndlist- arverkum, og þá ekki síst ljósmyndaverkum. Sumir hugsa jafnvel um bók áður en þeir hugsa um verkin á vegg. Það hef ég aldrei gert en gæti núna alveg hugsað mér að skoða þann möguleika.“ Aldrei kallað mig ljósmyndara Auk verkanna er í bókinni fróðleg samantekt Jóns Proppé listfræðings um þennan þátt í listsköpun Hrafnkels. Auk þess að vinna með ljósmyndir hefur hann notast við ýmsa miðla, gert grafík- og vídeóverk, skúlptúra og innsetningar. Þegar spurt er hvers vegna hann hafi kosið að taka ljósmyndaverkin út úr heildinni í þessari bók segir hann það hafa gerst af sjálfu sér í vinnsluferlinu. Unn- ið hefur verið um skeið að bók um verk hans en þegar þessi ákvörðun var tekin varð fók- usinn strax skýrari. „Með því að horfa aðeins til ljósmynda- verkanna varð auðveldara að búa til hreina línu gegnum ferilinn,“ segir hann. „Það get- ur verið ruglingslegt að blanda saman ljós- myndaverkum og síðan ljósmyndum af öðr- um verkum, sem eru ekki ljósmyndaverk heldur til að mynda af innsetningum eða stillur úr vídeóverkum – sem eru þá ekki ljósmyndaverk en eru samt ljósmyndir. Það hefði flækt málið. Sem fyrsta bók – af mörgum!“ segir hann íbygginn, „ – var betra að hafa þetta svona.“ – Þú ert ekki ljósmyndari. „Nei, ég hef aldrei kallað mig ljósmynd- ara. Ég hef aðeins lært ljósmyndun að tak- mörkuðu leyti, þegar ég hef þurft að klóra mig fram úr tæknilegum atriðum ef ég virki- lega hef þurft þess. Stundum fæ ég fagmann í lið með mér en oftast mynda ég sjálfur.“ – Hvað veldur því að ein hugmynd verður að ljósmyndaverki en önnur að myndbands- verki eða innsetningu? „Það er erfitt að útskýra. En ljósmyndin er frábær miðill. Oft velkist hugmynd lengi hjá mér og ég hef spáð í að gera vídeó, mál- verk eða skúlptúr úr henni áður en ég átta mig á því að ég ætti helst að gera ljósmynd, eins og ég hafi aldrei gert það áður. Ég hef nokkrum sinnum lent í þessu og finnst það óneitanlega fyndið. Þegar hugmyndir eru á frumstigi er allt galopið en oftast enda þær sem ljósmyndaverk, þótt það hafi lengi vel ekki verið markmiðið.“ Upptekinn af málverkinu Það er mismunandi hvað Hrafnkell stillir miklu upp eða býr til áður en hann setur vélina upp og ýtir á takkann, og notar sér þann skráningarmiðil sem ljósmyndin er. Hann hefur stillt tjöldunum upp, unnið speglað hraunið eftirá í tölvu … „… en þetta er allt frá því að ég einfald- lega mynda hlutina eins og ég rekst á þá, snjófjöllin og snjókögglarnir undan bílum, Autokast-serían, eru dæmi um það. Skips- hliðarnar líka. Öðrum hlutum kem ég fyrir og þeir eiga misvel heima þar sem ég set þá, bóluplastið í vatninu er dæmi um það en ég rakst ekki á það fyrir tilviljun.“ – Svo sannarlega ekki, þú lærðir fyrst að kafa og myndaðir það síðan á miklu dýpi, og smíðarðir stálborð undir sorpbaggana. „Sum verkin krefjast mikils undirbúnings. Sorpbaggarnir koma svona úr vélinni en ég stillti þeim á þetta sérsniðna borð, kom inn með stúdíólýsingu og klippti þá úr sínu um- hverfi þótt það sé í bakgrunni.“ – Þú vinnur þessi verk alltaf í seríum. „Já, nær undantekningarlaust, ekki stök. Smíð frá 2013 er tvö verk. Ég vil taka fyrir blæbrigðin sem hugmyndin býður upp á.“ Hrafnkell segir að hingað til hafi hann alltaf séð verkin fyrir sér stór og að þau mæti áhorfandanum á vegg. „Ég fæ frekar snemma í vinnuferlinu tilfinningu fyrir því hvernig ég vil að þau líti út og hvernig til- vera þeirra þarf að vera. Ég hef ekki hugsað nein af þessum verkum sem frekar litlar myndir í bók, þau hafa alltaf verið hugsuð þannig að þau hafi mikla nálægð í rýminu og nálgist jafnvel virkni málverksins.“ – Já, í sumum myndröðunum ertu í tals- verðu samtali við hefð málverksins. „Það er líklega greinilegt að ég er upptek- inn af málverkinu – þar liggur bakgrunnur minn í listaskóla, í grafík og málverki. Það má segja að sem málari hafi ég frekar þróast í grafík, þannig gat ég þrykkt lit- unum á flötinn, og næsta skef var að þrykkja litunum á flötinn með ljósmynda- aðferðinni. Bæði í skipshliðunum, í röðinni Hliðar, og í bóluplastverkunum, Opinberun, á ég til dæmis í þessu samtali við málverkið. Þetta hér,“ segir hann og bendir á plastið í vatninu á kápumynd bókarinnar, „er glíma við flötinn. Þetta er hvítur flötur sem ég er bókstaflega að slást við í djúpinu og endar sem skúlptúr.“ Verkin á fleiri plönum Auðvelt er að fara út í þann lestur að í mörgum verka Hrafnkels sé hann meðal annars að fjalla um samband manns og nátt- úru. Til að mynda í verkum þar sem sorp er myndefnið; í sumum hefur hann fellt saman myndir af náttúru og sorphaugum í þrískipt- BÓK MEÐ LJÓSMYNDAVERKUM HRAFNKELS SIGURÐSSONAR Ljósmyndir eru hryggjarsúlan „HUGMYNDIRNAR ENDA FLESTAR SEM LJÓSMYNDIR,“ SEGIR HRAFNKELL SIGURÐSSON MYNDLISTARMAÐUR UM SKÖPUNINA. Í NÝRRI BÓK UM FERIL HANS ER SJÓNUM BEINT AÐ LJÓSMYNDAVERKUNUM. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Revelation/Opinberun II, 2014. Litljósmynd 144 x 96 cm. Eitt af nýjustu verkum Hrafnkels.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.