Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Þórður
Gestir frá vinstri: Guðrún
Sóley Gestsdóttir, Gunn-
hildur Gunnarsdóttir,
Fríða Ásgeirsdóttir, Elín
Edda Angantýsdóttir og
gestgjafinn Eva Laufey
Kjaran Hermannsdóttir.
1.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
2 egg
50 g sykur
500 g vanilluskyr
250 ml rjómi
1 tsk. vanilluextract eða vanillusykur
4 dl þeyttur rjómi
200 g kökufingur eða „Lady Fingers kex“
6-7 dl sterkt uppáhellt kaffi
gott kakó, magn eftir smekk
Stífþeytið egg og sykur saman, þar til þykk froða
myndast. Blandið skyrinu saman við eggjablönd-
una og hrærið vel. Bætið vanillunni og þeytta
rjómanum varlega saman við með sleif. Leggið
blönduna til hliðar í stutta stund á meðan hugað
er að kökunum.
Hellið upp á sterkt kaffi og setjið það í skál.
Veltið kökufingrunum upp úr kaffinu og skiptið
þeim niður í eftirréttarskálar eða í falleg glös. Setj-
ið helminginn af skyrblöndunni ofan á kökufing-
urna, stráið svolitlu af kakói yfir réttinn.
Þennan rétt þarf að kæla að lágmarki í 4 klst.
áður en hann er borinn fram, þó allra helst yfir
nótt.
Skyramísú
Focaccia með hvítlauk
og rósmarín
900 g hveiti
2 msk. hunang
½ tsk. salt
100 g smjör
½ l mjólk
1 pakki þurrger
3-4 msk. ólífuolía
4 hvítlauksrif, smátt skorin
2 msk. ferskt rósmarín, smátt saxað
Hitið mjólkina í potti við vægan hita þar til hún er yl-
volg, hrærið þurrgerið út í mjólkina og látið blönduna
standa í 4-5 mínútur. Bræðið smjör við vægan hita og
bætið því saman við mjólkurblönduna sem og hunangi,
hveiti og salti. Hnoðið deigið vel eða þar til það er slétt
og sprungulaust. Látið það hefast undir diskaþurrku í
um 50-60 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast.
Smyrjið ofnskúffu með ólífuolíu, setjið deigið í skúff-
una og þrýstið því jafnt út í alla kanta. Leggið diska-
þurrku aftur yfir og leyfið því nú að hefast í um það bil
30 mínútur. Myndið litlar holur í deiginu þegar það hef-
ur lyft sér, með því að stinga fingri í það á nokkrum
stöðum. Stingið niðurskornum hvítlauksbitum ofan í
deigið, sáldrið ólífuolíu yfir allt saman og loks söxuðu
rósmarín. Stráið örlitlu af grófu sjávarsalti yfir í lokin.
Bakið brauðið við 200°C í 15-20 mín. Berið fram
með góðri ólífuolíu.
Ekkert
bensín,
takk.
Þann 20. febrúar kemst
einn heppinn áskrifandi
Morgunblaðsins í samband
við Volkswagen e-Golf.