Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2015, Blaðsíða 18
Það er drjúgur göngutúr að fara alla leið upp að hvolfþaki dómkirkjunnar. Morgunblaðið/Ómar Í talska borgin Flórens í Toscana- héraði, þar sem smjör drýpur af hverju strái, var kölluð Fag- urborg í tímaritinu Skírni árið 1835. Engan skyldi undra og þegar borgina ber á góma er gjarnan rætt um menningu og listir, mat og vín, fegurð og gott veður. Borgin er menningarlegur miðpunktur Ítalíu, hins vestræna heims, segja sumir. Sannarlega er þar mikið um listasöfn og verk að sjá eftir mestu meistara sögunnar; nefna má hinn hollenska Rembrandt og heima- mennina da Vinci og Michelangelo. Margir eru áhugasamir um kirkjur og ekki er hörgull á þeim í Flórens, frægust og glæsilegust sú sem kennd er við heilaga Maríu, Santa Maria del Fiore en þekktust undir hinu látlausa nafni Il Duomo, Dómkirkjan. Húsið er meistara- stykki, arktitekt byggingarinnar var Filipo Brunelleschi, einn sá þekktasti á endurreisnartímabilinu. Lokið var við byggingu Il Duomo árið 1466 og hafði hún þá verið 170 ár í byggingu! Ekki nóg með að byggingin sé meistarastykki heldur er innandyra að finna stórkostlegar freskur, málaðar af fremstu lista- mönnum Ítalíu. Áin Arno rennur í gegnum borg- ina miðja. Á stærstu myndinni gef- ur að líta fallega brú yfir ána. Hún var byggð 1345 og er eina brúin í borginni sem ekki var eyðilögð í stríðinu sem kallað hefur verið heimsstyrjöldin síðari. Merkilegt er að á brúnni er rekinn skemmti- legur markaður! Í stuttu máli sagt: Sjón er sögu ríkari. Liggi leiðin um þessar slóðir, ekki sleppa því að koma við í Flórens. Morgunblaðið/Ómar Styttan af Davíð í miðborg Flórens. FLÓRENS Ó, þú fagra Fagurborg FLÓRENS, HÖFUÐBORG TOSCANA-HÉRAÐS, ER ÓVENJU YNDISLEGUR STAÐUR AÐ MÖRGU LEYTI. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Ferðalög og flakk *Handhægast er, fyrir þá sem vilja fara nokkurnveginn beint frá Íslandi til Flórens, að fljúga meðIcelandair eða WOW til Mílanó ellegar meðWOW til Rómar. Flogið er tvisvar til þrisvar sinn-um yfir sumarið. Frá báðum borgum er um þaðbil þriggja klukkustunda akstur til Flórens. Svo erauðvitað hægt að fljúga til Flórens frá Keflavík, með viðkomu t.d. í París, Amsterdam og Frank- furt, svo dæmi séu nefnd. Hvernig kemstu þangað? Ítalir sem eiga mest samskipti við ferðamenn mæla sumir á enska tungu en ekki er verra að reyna að slá um sig á máli heimamanna. Þeim finnst það gjarnan betra, þótt fram- burður sé ekki fullkominn, jafnvel afleitur (og hafa jafnvel bara gaman af) en að þurfa að reyna að svara á ensku. Hvað kostar kaffibolli? Sagt um það bil: Kvantó kosta úna tatsa dí kaffe? Ítalir notast við evruna og líklega ein- faldast að biðja þá um að telja fingur! Einn, tveir, þrír, fjórir fimm eru annars: uno, due, tre, quattro, cinque. Borið fram um það bil svona: Únó, dúe, tre, kvattró, sínkve. Hvað kostar eitt brauð? Sagt um það bil: Kvantó kosta ún pane? Svar í brauðbúð yrði líklega: 1,25 evrur. Únó ventisínke ojró. Hvað kostar einn stór bjór? Sagt um það bil: Kvantó kosta úna grande bírra? Svarið örugglega dlálítið misjafnt eftir stöðum … Áin Arno rennur gegnum Flórens til vesturstrandar Ítalíu. Hér er horft í átt að Ponte Vecchio, elstu brú borg- arinnar, sem byggð var 1345. Horft yfir Flórensborg frá hvolfþaki Santa Maria del Fiore, hinnar frægu dómkirkju Brunelleschis. SAMSKIPTI VIÐ HEIMAMENN Quanto costa …?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.