Morgunblaðið - 03.02.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
Árin segja sitt1979-2014
Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans
Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás.
Laugarásvegi 1
104 Reykjavík • laugaas.is
Lauga-ás hefur frá 1979
boðið viðskiptavinum
sýnum uppá úrval af
réttum þar sem hráefni,
þekking og íslenskar
hefðir hafa verið hafðar
að leiðarljósi.
)553 1620
Verið velkominn
Þingmenn hlaupa stundum til eft-ir dægurfréttum, þótt umræða í
þingsal yrði markvissari ef tekin
væri dagstund til að kanna sjálfstætt
efni máls. Árni Páll Árnason hafði
áhyggjur af „þekkingarfyrir-
tækjum“ vegna frétta kvöldið áður
og beið ekki boðanna. Mbl.is sagði af
þessu frétt:
Fyrirtækið Pro-mens vildi
kaupa gjaldeyri á af-
slætti til þess að nota
til fjárfestinga er-
lendis og vildi und-
anþágur frá gjald-
eyrishöftunum
vegna þess. Þetta
kom fram í máli Sig-
mundar Davíðs
Gunnlaugssonar for-
sætisráðherra á Al-
þingi í dag í svari við
fyrirspurn frá Árna
Páli Árnasyni, for-
manni Samfylkingarinnar.
Árni Páll sagði þekkingarfyrir-tæki í vaxandi mæli ekki geta
starfað lengur á Íslandi vegna gjald-
eyrishaftanna og lýsti áhyggjum af
því. Nefndi hann Promens sem
dæmi.
Sigmundur Davíð sagði ástæðunafyrir flutningi höfuðstöðva
fyrirtækisins úr landi einfaldlega
tengjast þeirri ákvörðun að selja það
úr landi. Starfsemi þess hér á landi
yrði áfram óbreytt að öðru leyti.
Hins vegar væri það ekki hlut-verk opinberra aðila að niður-
greiða fjárfestingar einkafyrirtækja
erlendis. Promens hefði getað tekið
lán til þess að fjárfesta erlendis en
ekki kosið að fara þá leið.“
Hætti menn á þingi gæti veriðsnjallt að leita fyrst eftir nýju
starfi hjá vanþekkingarfyrirtæki.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Þetta með þekk-
ingarfyrirtækin
STAKSTEINAR
Árni Páll
Árnason
Veður víða um heim 2.2., kl. 18.00
Reykjavík -5 heiðskírt
Bolungarvík -5 skýjað
Akureyri -7 skýjað
Nuuk 6 skúrir
Þórshöfn -1 alskýjað
Ósló -5 snjókoma
Kaupmannahöfn -1 snjókoma
Stokkhólmur -5 snjókoma
Helsinki 0 slydda
Lúxemborg 0 léttskýjað
Brussel 2 léttskýjað
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 2 upplýsingar bárust ekki
London 2 léttskýjað
París 2 skýjað
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg 2 léttskýjað
Berlín 2 skýjað
Vín 3 skýjað
Moskva -1 alskýjað
Algarve 12 skýjað
Madríd 5 skýjað
Barcelona 11 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -17 skýjað
Montreal -21 snjókoma
New York -1 frostrigning
Chicago -10 léttskýjað
Orlando 23 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:03 17:21
ÍSAFJÖRÐUR 10:23 17:11
SIGLUFJÖRÐUR 10:07 16:53
DJÚPIVOGUR 9:36 16:47
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég taldi að ákvörðun yrði tekin af
hálfu ríkisstjórnarinnar fyrir mán-
aðamótin um það hvenær þetta yrði
gert. Mér sýnist að það hafi eitthvað
frestast hjá ríkisstjórninni að taka
endanlega af skarið um tímasetn-
ingu í þessu máli,“ segir Birgir Ár-
mannsson, formaður utanríkismála-
nefndar, spurður um fyrirhugaða
þingsályktunar-
tillögu um aftur-
köllun aðildarum-
sóknar að ESB.
Haft var eftir
Birgi í Morgun-
blaðinu 5. janúar
sl. að það myndi
skýrast í jan-
úarmánuði hve-
nær þingsálykt-
unartillaga þessa
efnis kæmi fram. Ekki náðist í Gunn-
ar Braga Sveinsson utanríkisráð-
herra vegna málsins fyrir helgi, né
heldur náðist í ráðherrann í gær.
Gerir ráð fyrir tillögunni
Spurður hvort hann sé vongóður
um að þingsályktunartillagan verði
lögð fram í vor bendir Birgir á að
„það sé boðað í endurskoðaðri nýrri
þingmálaskrá að það verði gert“.
„Þannig að ég geri ráð fyrir því,“
segir Birgir sem kveðst aðspurður
ekki vilja leiða líkur að því hvað
kunni að hafa orðið til tafar hjá ríkis-
stjórninni. „Málið er hjá utanríkis-
ráðherra og ríkisstjórninni á þessu
stigi. Þannig að við verðum að sjá
hvenær hún tekur af skarið í þessum
efnum,“ segir Birgir.
Gunnar Bragi lagði fram tillögu
um að draga ESB-umsóknina til
baka 21. febrúar í fyrra en málið
dagaði svo uppi í þinginu.
„Málið hjá utanríkisráðherra“
Birgir
Ármannsson
Formaður utanríkismálanefndar segir afturköllun ESB-umsóknar á dagskránni
Starfshópur um
fjarskipti og sam-
göngur í Eyja-
fjarðarsveit hefur
skilað af sér
skýrslu til sveit-
arstjórnar um
fjarskiptamál í
sveitarfélaginu
en töluverð um-
ræða hefur farið
fram um nauðsyn
þess að bæta fjarskipti innan svæð-
isins. Hlutverk starfshópsins er að
fara yfir stöðu breiðbandsvæðingar
hér á landi og gera tillögur til ráð-
herra um leiðir til úrbóta. Telur
starfshópurinn einu leiðina til að
tryggja jafnrétti allra íbúa í sveitinni
í fjarskiptum vera að leggja ljósleið-
ara inn á öll heimili sveitarfélagsins.
Leggur hópurinn því til að vinna
verði hafin strax við að undirbúa
ljósleiðaralagningu í sveitarfélaginu.
Hópinn skipa Árni Sigurlaugsson,
Karl Jónsson, formaður, Kristín
Bjarnadóttir, Lilja Sverrisdóttir og
Tryggvi Jóhannsson. Sveitarstjóri
starfar með hópnum.
Vilja leggja
ljósleiðara
í sveitinni
Eina leiðin til að
tryggja jafnrétti
Fjörubyggð í
Eyjafjarðarsveit.