Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
✝ Emil PéturÁgústsson
fæddist í Reykjavík
7.7. 1944. Hann
varð bráðkvaddur
á heimili sínu 22.1.
2015.
Foreldrar hans
voru Ágúst Herbert
Pétursson bak-
arameistari frá
Bolungarvík, f.
14.9. 1916, d. 1.3.
1996, og María Valdimarsdóttir
húsfreyja frá Básum í Grímsey,
f. 25.9. 1913, d. 7.1. 1992. Fóstur-
móðir Emils Péturs var Ingveld-
ur Magnúsdóttir, f. 18.4. 1919, d.
26.9. 2011. Systkini Emils sam-
feðra eru: Kristjana Péturs, f.
27.3. 1938, d. 28.1. 1994, Helgi, f.
16.10. 1941, Hafsteinn Berg-
mann Sigurðsson, f. 7.8. 1943,
Ásgerður, f. 14.4. 1946, og Ást-
hildur, f. 24.12. 1955. Systkini
Emils Péturs sammæðra eru:
Anna Sigurbjörg Jósefsdóttir, f.
21.10. 1932, Stefán Björn Stein-
grímsson, f. 11.1. 1938, Guðlaug
Sigurbjörg Steingrímsdóttir, f.
þeirra eru: Dísa R. Edwards, f.
11.10. 1987, maki Reggie Dup-
ree, f. 10.12. 1986, barn þeirra
er Aria Rhiannon, f. 28.3. 2013,
Emil Ragnar, f. 23.3. 1994, unn-
usta hans er Hera Ketilsdóttir, f.
3.2. 1995. 4) Sigríður Þórunn, f.
15.9. 1972, sonur hennar er
Kristófer Jóel Sigríðarson, f.
13.9. 2000. 5) Valdimar Ágúst, f.
26.2. 1980, börn hans eru: Gunn-
ar Þór, f. 8.2. 2003, Anna Karen,
f. 31.10. 2003, Þórður Emil, f.
21.5. 2006, Jón Ágúst, f. 15.10.
2007, Brynjólfur Máni, f. 6.6.
2009 og María, f. 18.8. 2011.
Emil Pétur ólst upp hjá móð-
ur sinni í Reykjavík fyrstu árin
en síðan hjá föður sínum og
Ingveldi konu hans frá níu ára
aldri. Hann fór ungur að stunda
sjó og var sjómennska hans at-
vinna alla tíð. Hann lauk námi
frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1989. Lengst af var
Emil Pétur til sjós á ýmsum
skipum hjá Þorbirni hf. og síð-
ustu árin leysti hann af sem
skipstjóri og stýrimaður hjá fyr-
irtækinu. Emil Pétur og Bryndís
Gróa hófu búskap í Reykjavík en
fluttu til Grindavíkur 1973 þar
sem þau bjuggu til ársins 1994
en þá fluttu þau til Keflavíkur.
Útför Emils Péturs fer fram
frá Víðistaðakirkju í dag, 3.
febrúar 2015, kl. 13.
11.1. 1938, Valdi-
mar Ágúst Stein-
grímsson, f. 7.6.
1939 og Björgvin
Alexander Gísla-
son, f. 21.10. 1947,
d. 14.2. 2009.
Emil Pétur gift-
ist 2.9. 1967 Bryn-
dísi Gróu, f. 24.5.
1946, d. 10.4. 2008.
Börn þeirra eru: 1)
Ingileif, f. 14.12.
1964, gift Snorra Eyjólfssyni, f.
28.3. 1960, börnin þeirra eru:
Kristín, f. 12.8. 1983, gift Pawel
Tysse, f. 17.11. 1986, börnin
þeirra eru: Oliver Snorri, f. 10.3.
2006, og Isabella Inga, f. 5.8.
2011, Brynjólfur, f. 13.8. 1986,
börn hans eru Bjarney Hulda, f.
5.8. 2009, og Kristjana Vilborg,
24.6. 2011, Anton Ingi, f. 3.11.
1993. 2) Anna María, f. 3.7. 1967,
gift Árna Hannessyni, f. 24.10.
1964, börn þeirra eru: Hannes
Aron, f. 3.9. 2002, og María Rós,
f. 5.2. 2005. 3) Ægir Emilsson, f.
19.1. 1969, giftur Sóleyju Ragn-
arsdóttur, f. 16.7. 1961, börn
Elsku pabbi, oft þegar maður
ætlar að setja orð á blað þá flæða
minningar um þig í huga mínum
og er erfitt að setja niður á blað.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast þín, pabbi minn. Ég
tengdist þér mjög vel þegar ég
hjálpaði þér í veikindunum henn-
ar mömmu heitinnar á líknar-
deildinni í Kópavogi. Við áttum
þar margar langar stundir saman
og er mér svo minnisstætt þegar
við vorum að kaupa okkur 1944-
rétti til að hafa í kvöldmat.
Pabbi, þú varst alltaf til staðar
til að hjálpa okkur systkinum og
leiðbeina. Þegar kom að því að
laga og endurnýja á heimilinu
okkar þá varstu mættur með
harmarinn og sögina og það var
klárað með hraða ofurboltans.
Okkur Snorra er það svo minn-
isstætt þegar þið Sigga komuð að
heimsækja okkur til Noregs jólin
2013. Það var svo yndislegt að fá
að eiga með þér jól og áramót.
Það leið ekki á löngu þar til þú
varst kominn með hamarinn og
sögina og fékk Anton Ingi að
njóta góðs af því þar sem þú klár-
aðir að setja upp loftið og ganga
frá veggjum í íbúðinni hans á
meðan hann var úti á sjó. Enda
ljómaði Anton Ingi þegar hann
kom heim. Í febrúar á síðasta ári
þegar þú varst að fara til Kanarí
með Siggu þá þurfti ég að flytja
þér þær fréttir að ég væri búin að
greinast með krabbamein. Þín
fyrstu viðbrögð lýsa þér svo vel
því þú vildir hætta við ferðina. Ég
sagði þér að það væri ekkert sem
þú gætir gert og að halda bara
þínu striki.
Stundirnar okkar á Skype eru
mér svo dýrmætar þrátt fyrir það
að við sætum og segðum ekkert
þá var það bara þannig, við skild-
um hvort annað, við þurftum ekki
orð. Ég kom heim í nóvember sl.
og hélt uppá 50 ára afmælið mitt
heima hjá þér og því mun ég seint
gleyma. Daginn áður en þú fórst,
pabbi, hringdir þú í mig til að láta
mig vita að Pétur frændi þinn
væri dáinn. Ég átti ekki von á því
að það væri í síðasta skipti sem
við spjölluðum saman.
Elsku pabbi, ég kveð þig með
söknuði, nú ertu kominn á flottan
stað þar sem þú færð að njóta
hvíldarinnar. Elsku Sigga og
systkini mín, ég og fjölskylda mín
vottum ykkur innilega samúð og
megið þið öðlast styrk í sorginni.
Ingileif (Inga) og börn.
Margs er að minnast nú þegar
elsku pabbi minn er horfinn frá
okkur, en ljúfmennskan, hjálp-
semi og dugnaður var honum allt
í blóð borið og einkenndi ævi
hans. Minnisstæðust eru öll árin
sem við áttum til sjós og svo við
smíðar á sumarhúsinu okkar og
skemmtum við okkur alltaf vel
saman í sveitinni við að dúlla okk-
ur við ýmis verk. Ég gleymi aldr-
ei þegar ég fór í mína fyrstu sjóð-
ferð með honum en þá var ég
fjögurra ára gamall. Ég var
spenntur að fara á sjó með pabba
en sú sjóferð var stutt en eftir-
minnileg því það var nóttin sem
Vestmannaeyjagosið hófst en
þetta var besta afmælisgjöfin
mín, síðan eru liðin 42 ár og ótelj-
andi sjóferðir saman eftir það.
Pabbi var einstakalega góður
bakari, kleinurnar, snúðarnir og
vínarbrauðin hans voru lostæti
með kaldri mjólk og gáfu tilefni
til að koma í heimsókn. Smíðar
lágu vel fyrir honum sem kom vel
í ljós þegar hann smíðaði æsku-
heimilið okkar á Leynisbrautinni.
Ég gleymi seint hvað gaman var
að taka þátt í því en hann var ein-
staklega laginn í því að leyfa öll-
um þessum litlu höndum að taka
þátt í verkefninu, betri leiðbein-
anda var ekki hægt að fá. Hann
gerði endalaust grín að mér þeg-
ar ég var að læra að saga neðan af
hurðunum í fyrsta húsinu okkar
Sóleyjar en það var upphafið að
ófáum og skemmtilegum
kennslustundum í smíðum hjá
honum og oft reyndi á þolinmæð-
ina.
Pabbi var alltaf til staðar fyrir
mig og hughreysti mig og kom
mér til hjálpar á erfiðum stund-
um þegar ég leitaði til hans og er
ég þakklátur fyrir það. Það tók
oft tímana tvo að draga uppúr
honum orðin en ég var orðinn
ansi seigur í því í lokin. Pabbi
kenndi mér svo mikið í gegnum
tíðina bæði til sjós og lands sem
er mér gott veganesti og gerir
mig sterkari fyrir vikið fyrir
framtíðina.
Núna færðu hvíldina hjá
mömmu, guð geymi þig að eilífu,
hvíl í friði, elsku pabbi minn.
Já á meðan við lifum
minnumst við þín
og munum þér þakkir færa.
Í sorginni dimmu sólin skín.
Fyrir sjónum okkar birtist sýn,
myndin þín milda og kæra.
Sól á rauða lokka skín
þá ljúflega strýkur blærinn
þá brostu augun þín
þegar blikaði lognskær særinn.
Hún var svo fögur veröldin þín
þegar vorskrúði skartar bærinn.
Okkur til yndis, Guð þig gaf,
fyrir gjöf viljum þakkir færa.
Hann, sem skóp bæði hauður og haf
og himinsljósið skæra
hefir þig kallað hérvist af
hjartans vininn kæra.
Um eilífð hans blessun umvefji þig,
hann ylgeisla kærleikans sendi
að fylgja þér nýja framtíðar stig
þar sem friður og líf á ei endi.
Þinn vota beð, við bylgju skaut
blessi hans náðar hendi.
(Sigrún Konráðsdóttir)
Ægir.
Þú sem gafst mér göfugt líf og list
loks þú gekkst á vit við aðra vist.
Og þegar ég með söknuði þig kveð
ég þarf að láta fylgja kveðju með, –
Hve sárt mér finnst að hafa þig nú
misst.
Þín hagleiksmikla hönd sem gaf mér
allt
sem hafði listaaflið þúsundfalt.
Mér kenndir lífsins kúnstir við og við
af veikum mætti stóðstu mér við hlið.
–
Með réttlátt mat sem stundum var þó
kalt
(Már Elíson)
Elsku pabbi. Það er svo margt
sem mig langar að segja nú þeg-
ar þú ert búinn að kveðja. En
fyrst og fremst er það þakklætið
sem er mér í huga. Ég er þakk-
látur fyrir allar stundirnar sem
við áttum saman við spil og
spjall, kaffidrykkju og ýmislegt
fleira skemmtilegt. Við höfum
ekki alltaf eytt miklum tíma sam-
an, og ég vildi gjarnan að sá tími
hefði verið meiri, en ég er glaður
með þann tíma sem við áttum. Ég
mun tala fallega um þig við börn-
in mín svo þau muni eftir þér;
rifja upp sögur af Emil afa og
fleira. Þú sagðir oft við mig:
Mundu bara að gera alltaf betur
en maðurinn við hliðina á þér. Ég
ætla að halda áfram að reyna að
fara eftir þessum orðum þínum.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn. Ég mun sakna þín.
Þinn
Valdimar.
Í dag kveðjum við tengda-
pabba minn, Emil Pétur, langt
um aldur fram. Ég var svo heppin
að fá að kynnast þessum öðling-
smanni en dugnaður og elja ein-
kenndi hann í alla staði fram á
síðustu stundu. Þegar við hjónin
heimsóttum Emil daginn fyrir
andlát hans áttum við ekki von á
að það væri í síðasta sinn sem við
hittumst. Þrátt fyrir að vera
slappur og hálflasinn sat hann við
útskurð því það var verið að klára
gestabókina. Ég gleymi því aldrei
þegar við Dísa komum í fjölskyld-
una, þá fékk Dísa aftur „afa“ en
hún fékk að kalla Emil afa strax
frá fyrsta degi og hún var svo
montin með það. Síðar fæddist
Emil Ragnar sem elskaði að fara
til ömmu og afa og varð Emil afi
fyrirmyndin hans og ekki spilltu
fyrir nýbökuðu kleinurnar hans.
Það er hægt að segja margar
sögur sem lýsa mannkostum Em-
ils en það fór lítið fyrir honum en
hann bjó yfir þægilegri nærveru
þrátt fyrir að oft voru ekki mörg
orð sögð. Emil var traustur, yf-
irvegaður og sívinnandi. Aldrei
kvartaði hann við nokkurn mann
enda var fráfall hans okkur mikið
áfall. Í veikindum Gróu lét hann
aldrei í ljós áhyggjur sínar, en
stóð sterkur við hlið hennar og
tókst á við fráfallið af æðruleysi.
Það voru ófáar stundirnar sem
við áttum saman með Emil og
Gróu í bústaðnum þar sem feðg-
arnir unnu hörðum höndum við
að smíða pallinn, byggja kofa og
annað sem tilheyrði. Við Gróa
dunduðum okkur við gróðurinn
og dekruðum við þá feðga enda
mátti ekki slaka, á en vinnudag-
urinn byrjaði á slaginu átta að
morgni. Fagmennska Emils
sýndi sig sannarlega í verki við
byggingu bústaðarins. Síðustu ár
tók Emil uppá því að læra út-
skurð með henni Siggu og þvílík-
ur listamaður sem leyndist innra
með honum enda liggja eftir hann
mörg falleg útskorin handverk.
Þín verður saknað, elsku Emil, en
nú ertu kominn til hennar Gróu
þinnar þar sem þið hvílið saman,
guð geymi þig og takk fyrir allar
okkar samverustundir.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engill, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Sóley og börn.
Mig langar til að minnast
tengdaföður míns, félaga og góðs
vinar.
Emil kvaddi þennan heim allt-
of snemma og við munum sárt
sakna hans. Emil var mjög hjálp-
samur og alltaf til staðar þegar
maður þarfnaðist hans hvort sem
það var að leggja parket eða
þurfti að smíða eitthvað, þá var
hann mætur með svuntuna og
hamarinn.
Það var ekkert kvartað ef hann
verkjaði einhvers staðar, það var
bara harkað af sér. Ég er innilega
þakklátur fyrir að þið Sigga kom-
uð til okkar Ingu til Noregs og
hjálpuðuð okkur í kjallaranum.
Við áttum mjög margar skemmti-
legar minningar saman og þeim
verður ekki gleymt.
Ég votta ykkur, elsku fjöl-
skylda, innilega samúð og styrk í
sorginni.
Snorri Eyjólfsson.
Elsku Emil afi.
Ég sakna þín alveg rosalega
mikið. Sakna að heyra þig spila á
harmonikkuna þína. Það var svo
gaman þegar við pabbi komum
með harmonikkudiskinn til þín og
þú spilaðir með á þína harmon-
ikku. Það var líka svo gaman þeg-
ar ég og Jón Ágúst fórum með
þér í ísbíltúr á jeppanum þínum.
Hlakka til að hitta þig seinna uppi
hjá Guði.
Ég mun alltaf sakna þín, elsku
afi
Þinn
Þórður Emil.
Kær bróðir minn er fallinn frá.
Ekki hefði mig grunað það er
ég talað við hann í síma tveimur
dögum fyrir andlátið, að þetta
væri það síðasta sem ég heyrði
frá honum. Hann tjáði mér að
hann væri slappur sem myndi
lagast fljótt. Já, Emil var mikið
hörkutól, það sýndi sig strax á
barnsaldri, fyrstu árin ólumst við
ekki upp saman en vorum í sam-
bandi. Þegar hann kom inn á okk-
ar heimili níu ára gamall, birtist
mér mjög feiminn og hlédrægur
drengur, en að sama skapi glett-
inn og brosmildur. Það bar fljótt
á dugnaði og eljusemi hjá honum,
hann fór ungur í sveit og ekki veit
ég betur en hann hafi staðið sig
þar svo vel að ekki mátti á milli
sjá verkin hans og fullorðinna
karlmanna. Ungur að árum, að-
eins 15 ára, fór Emil á sjó á tog-
ara frá Patreksfirði. Þar með
byrjaði sjómennska hans, sem
hann gerði að sínu ævistarfi, ekki
nóg með það þegar hann var
kominn á miðjan aldur, ákvað
hann að fullnema sig meira og tók
stýrimannspróf, sem kannski
gerði honum sjómennskuna að-
eins léttari. Mér vitanlega reyndi
hann nokkrum sinnum að vinna í
landi, en það gekk ekki upp, sjó-
mennskan var hans líf.
Ungur kynntist hann Gróu
sinni og eignuðust þau fimm
börn, hún lést allt of snemma og
var það honum mjög erfitt þó að
börnin væru öll uppkomin. Það
gefur augaleið, að með svo stóra
fjölskyldu þurfti mikla vinnu, en
Emil notaði allann sinn frítíma til
að bæta hag fjölskyldunnar.
Hann byggði stórt einbýlishús í
Grindavík og bjuggu þau þar í
nokkur ár, en eftir það flutti fjöl-
skyldan til Keflavíkur þar sem
Emil bjó fram á síðasta dag. Ekki
lét hann bróðir minn þar við sitja,
hann byggði ásamt Ægi syni sín-
um og þeirra konum alveg glæsi-
legan sumarbústað í Borgarfirði.
Það má orða það svo að það varð
að hreiðri fjölskyldunnar enda al-
úð og vandvirkni lögð í verkið.
Nú síðustu árin hefur Emil
fengist mikið við útskurð eftir að
hann hætti til sjós, og eins og
annað þá var ekki kastað þar til
hendinni.
Við systkinin fórum til hans í
70 ára afmælið sl. sumar og þar
voru þessir útskornu munir hans
til sýnis. Hin síðari ár átti hann
góða vinkonu, Sigríði, sem ferð-
aðist með honum bæði erlendis
og innanlands og útskurðurinn
var þeirra beggja áhugamál.
Elsku börnin hans, tengda-
börn, Sigríður og aðrir afkom-
endur, megi Guð vera með ykkur
á þessari stundu.
Kæri bróðir þig ég kveð
burt úr þessu lífi.
englar Guðs þeir vaki með
og með þér ávallt svífi.
(ÁÁ.)
Kæri Emil, hafðu þökk fyrir
samfylgdina.
Þín systir,
Ásgerður.
Elsku Emil, nú ertu farinn af
þessari jörð.
Gaman var að sitja með þér við
útskurð og sjá hvað vekin þín
urðu falleg. Enda hafðir þú verið
með leiðsögn í rúm fjögur ár. Þú
hafðir stóra drauma og einn af
þeim var að opna „Cozy guest-
house ehf.“ með mér. „Cozy gu-
esthouse ehf.“ fékk bráðabirgða-
leyfi fyrir áramót og opnunin
varð 1/1 2015. Við hlökkuðum til
að taka á móti gestum okkar. Mér
var fært formlegt leyfi daginn
sem þú fórst frá okkur 22/1 2015.
Þú varst mér stoð og stytta í
öllu sem ég tók mér fyrir hendur.
Takk fyrir allt.
Hvíl í friði, elsku Emil minn
Styrk oss, Jesú, styrk oss veika,
Styrk oss til að fylgja þér,
lífs af braut ei lát okk skeika,
lífs svo kransinn hljótum vér.
Hér er freisting, hér er stríð,
hér er mæða og reynslutíð,
Vér því biðjum: Vík ei frá oss,
vertu í lífi og dauða hjá oss.
(Páll Jónsson.)
Sigríður Jóhanns
Óskarsdóttir.
Emil Pétur
Ágústsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Áskær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
EVA ÓSKARSDÓTTIR,
áður Langholtsvegi 171,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
fimmtudaginn 22. janúar verður jarðsungin
frá Langholtskirkju fimmtudaginn 5. febrúar kl. 13.00.
Hjartans þakkir til starfsfólks Sóltúns fyrir auðsýnda ást og
umhyggju í veikindum Evu.
.
Margrét Stefánsdóttir, Ingvar J. Karlsson,
Ingvar Stefánsson, Áslaug Hartmannsdóttir,
Ásta Edda Stefánsdóttir, Birgir Björgvinsson,
Ellert K. Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
TRYGGVI HJÖRVAR,
kerfisfræðingur
Landsbanka Íslands,
Austurbrún 35,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
föstudaginn 6. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast Tryggva er bent á Minningarsjóð öldrunardeildar
Landspítalans, Landakoti.
Erla Hafliðadóttir,
Tryggvi Hjörvar,
Kjartan T. Hjörvar.