Morgunblaðið - 03.02.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
Eir, hjúkrunarheimili og öryggisíbúðir, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
( 522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga.
Öryggisíbúðir Eirar til leigu
Mosfellsbæ og Reykjavík
Vandaðar öryggisíbúðir Eirar til
leigu í Mosfellsbæ og Reykjavík.
Eirborgir, Fróðengi 1-11,
Grafarvogi, Reykjavík.
Eirarhús, Hlíðarhúsum 3-5,
Grafarvogi, Reykjavík.
Eirhamrar, Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ.
Nánari upplýsingar í síma 522 5700
virka daga milli kl. 8 og 16
• Rólegt og notarlegt umhverfi
með aðgengi að metnaðar-
fullri aðstöðu og þjónustu
með það að markmiði að
einstaklingurinn geti
búið lengur heima.
• Öryggisvöktun allan
sólarhringinn.
• Aðgengi að mötuneyti
og félagsmiðstöð.
• Góðar gönguleiðir
í næsta nágrenni.
Rúm 30% félagsmanna í Félagi
iðn- og tæknigreina (FIT) vilja
leggja mesta áherslu á að ná kaup-
máttaraukningu og stöðugleika í
komandi kjaraviðræðum, rúm 24%
vilja áherslu á prósentuhækkun og
23,6% á krónutöluhækkun launa
skv. könnun sem félagið gerði.
70,7% segjast tilbúin til að fara í
verkfall náist samningar ekki.
Hilmar Harðarson, formaður FIT,
sem er jafnframt formaður Sam-
iðnar, segir í leiðara nýjasta
fréttabréfs FIT að rétta þurfi hlut
iðnaðarmanna í komandi kjara-
samningsviðræðum.
„Yfir 70% félagsmanna segjast
tilbúin í átök ef samningar takast
ekki. Sá baráttuvilji sem þarna
kemur fram er gott veganesti fyrir
samningamenn okkar. Þetta eru
skýr skilaboð um að sækja eigi
sambærilegar hækkanir og ríki og
sveitarfélög hafa samið um á síð-
ustu vikum og mánuðum. Þar hafa
stjórnvöld gefið tóninn og sent
skilaboð sem hljóta að hafa tals-
verð áhrif á gang viðræðna á al-
mennum vinnumarkaði,“ segir
Hilmar í leiðaranum.
Hann bendir á að atvinnurek-
endur beri jafnan fyrir sig að ekki
megi gera miklar kröfur í kjara-
samningum vegna þess að fram-
leiðni og framlegð í rekstri fyr-
irtækja sé lakari hér á landi en í
nágrannalöndunum. „Þessi mál-
flutningur kemur íslenskum iðn-
aðarmönnum undarlega fyrir sjón-
ir því kannanir sýna að gríðarleg
eignatilfærsla hefur verið frá þeim
sem minna eiga til hinna ríkari.
Rétt er að benda atvinnurekendum
á að starfs-
kraftar íslenskra
iðnaðarmanna
eru mjög eft-
irsóttir á alþjóð-
legum vettvangi.
Ef raunin er sú
að framleiðni og
framlegð sé lak-
ari í íslenskum
fyrirtækjum en í
nágrannalönd-
unum er rétt að vísa ábyrgð á því á
hendur þeirra sem stjórna fyr-
irtækjunum.“
Kröfugerðin væntanlega af-
greidd um miðjan febrúar
Enn er verið að safna upplýs-
ingum frá aðildarfélögum Sam-
iðnar til að nota við frágang kröfu-
gerðar og segir Hilmar að þeirri
vinnu muni ljúka á næstu dögum
og stefnt sé að því að kröfugerðin
verði endanlega afgreidd af mið-
stjórn og samninganefnd Sam-
iðnar um miðjan febrúar. Vænt-
anlega komist skriður á
kjaraviðræðurnar næstu vikur þar
á eftir.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar meðal félagsmanna í
FIT eru rúm 26% félagsmanna sem
starfa á höfuðborgarsvæðinu með
heildarlaun á bilinu 450-549 þús-
und á mánuði og 19,6% eru á bilinu
400-449 þúsund.
Í könnuninni var einnig spurt
hvort félagsmennirnir hefðu feng-
ið höfuðstólsleiðréttingu verð-
tryggðra fasteignalána og sögðust
um 55,8% hafa fengið hana en 23%
svöruðu því neitandi. omfr@mbl.is
Rúm 70% segjast
tilbúin í verkföll
Iðnaðarmenn eftirsóttir í útlöndum
Hilmar
Harðarson
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Óvissan um þá stöðu sem kjaravið-
ræðurnar eru komnar í fer vaxandi
dag frá degi. Í gær vísaði Starfs-
greinasambandið kjaradeilu þess við
Samtök atvinnulífsins formlega til
ríkissáttasemjara og er undirbún-
ingur aðgerða að hefjast. Ekki verð-
ur boðað til sáttafundar í deilunni
fyrr en í næstu viku.
SGS fer með umboð 16 aðildar-
félaga um allt land og semur fyrir
rúmlega 12 þúsund manns á almenn-
um vinnumarkaði. Kröfugerð Flóa-
félaganna svonefndu mun væntan-
lega taka á sig endanlega mynd um
10. febrúar og reikna má með að í
síðari hluta næstu viku gangi önnur
aðildarfélög og landssambönd ASÍ
endanlega frá launakröfum sínum.
Einstök aðildarfélög ASÍ og lands-
sambönd fara með samningsumboð-
ið hvert í sínu lagi. Það hefur því
enginn vald yfir þeirri atburðarás
sem er farin í gang og enginn sér fyr-
ir hver hún verður næstu vikurnar.
Eru heimildarmenn innan verka-
lýðshreyfingarinnar á einu máli um
að félögin muni öll fara fram á miklar
launahækkanir líkt og Starfsgreina-
sambandið hefur þegar gert, sem
Samtök atvinnulífsins höfnuðu sam-
stundis. „Það mun enginn undir-
bjóða Starfsgreinasambandið,“ segir
viðmælandi. Virðast öll félög og sam-
bönd innan ASÍ ganga út frá því að
línan fyrir launakröfur hafi verið
lögð í samningum hins opinbera við
kennara og ýmsa háskólahópa í fyrra
og ekki síður í læknasamningunum.
Samningar á almenna vinnumark-
aðnum renna út í lok mánaðarins. Ef
ekkert þokast við samningaborðið í
síðari hluta febrúar má að óbreyttu
gera ráð fyrir fyrstu verkfallsboðun-
um um eða upp úr miðjum mars.
Ýmsum hrýs hugur við að gera
kjarasamning til þriggja ára við nú-
verandi aðstæður og er samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins m.a. til
skoðunar nú að í kröfugerðum verði
út frá því gengið að gerður verði
kjarasamningur til eins árs. Þetta
verði gert í trausti þess að eitthvað
gerist á þeim tíma í efnahagsmálun-
um sem leiði til þess að viðsemjend-
ur á vinnumarkaði geti að ári mögu-
lega farið inn á þá braut í samn-
ingum, sem líkleg sé til að skila
varanlegum árangri. Allar hug-
myndir um víðtæka þjóðarsátt með
stöðugleika að markmiði hafa verið
settar til hliðar þessa dagana í
verkalýðshreyfingunni. Aðgerðir
ríkisstjórnarinnar eru ekki síst sagð-
ar torvelda að sú leið verði farin.
Skv. upplýsingum innan ASÍ hafa
engir fundir farið fram milli forystu-
manna verkalýðshreyfingarinnar og
ríkisstjórnarinnar að undanförnu.
Telja ráðlegast að
semja til eins árs
Ganga frá launakröfum og „mun enginn undirbjóða SGS“
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmt Tæpar fjórar vikur eru í að kjarasamningar á almenna vinnu-
markaðnum renni út. Deilu 16 félaga í SGS hefur verið vísað til sáttameðferðar.
„Við áttum tvo fundi með Sam-
tökum atvinnulífsins á síðasta ári
um sérkröfur en höfum ekki hitt þá
á þessu ári. Við erum þessa dagana
að leggja lokahönd á kröfur um
launaliðinn,“ segir Kristján Þórður
Snæbjarnarson, formaður Rafiðn-
aðarsambands Íslands, um stöðuna í
kjaraviðræðunum við viðsemjendur
þess.
Reikna má með að RSÍ leggi
kröfugerðina fyrir atvinnurekendur
upp úr 10. febrúar.
Horfa til skammtímasamnings
Kristján segir að menn líti til þess
að gerður verði skammtímasamn-
ingur. „Eins og staðan er í dag
treystum við okkur ekki til að gera
lengri samning í þeirri óvissu sem
uppi er. Það mætir allt litlum skiln-
ingi hjá ríkisstjórninni og öðrum að-
ilum sem hafa mest áhrif á efna-
hagsstjórn landsins,“ segir hann.
Gerð var viðhorfskönnun meðal
félagsmanna RSÍ undir lok síðasta
árs og forystumenn þess fóru í
fundaherferð um allt land til að
kanna viðhorf félagsmanna fyrir
kjaraviðræðurnar.
„Maður heyrir það alls staðar um
landið að menn eru mjög ósáttir við
stöðu mála og að hafa farið þá veg-
ferð að tryggja stöðugleika en af-
markaðir hópar sem sömdu við ríkið
fengu svo töluvert miklar launa-
hækkanir umfram okkur. Ég held
að þeir samningar sem gerðir voru á
opinbera markaðnum muni marka
mjög þá kröfugerð sem við munum
leggja fram,“ segir Kristján.
Háar tölur í kröfugerðinni
Margir félagsmanna í Rafiðn-
aðarsambandinu tilheyra milli-
tekjuhópum sem
hafa ekki haldið í
við launaþró-
unina í sam-
anburði við aðra
hópa, að sögn
Kristjáns.
Aðspurður
segist Kristján
reikna með að í
kröfugerð RSÍ
verði settar fram
háar tölur um launahækkanir og að
því leyti sambærilegar kröfugerðum
annarra innan ASÍ.
Ekki liggur endanlega fyrir hvort
rafiðnaðarmenn muni leggja meiri
áherslu á prósentuhækkanir eða
krónutöluhækkanir í viðræðunum
sem framundan eru en reikna má
með að farið verði fram á hækkun
launataxta til samræmis við greidd
laun í kjaraviðræðunum.
Menn eru mjög heitir
Baráttuhugur er í rafiðnaðar-
mönnum sem eru reiðubúnir að
fylgja kröfunum fast eftir ef þörf
krefur.
Kristján segist hafa kannað hug
félaganna og hvort vilji væri til
átaka ef til þess komi.
„Menn eru mjög heitir og eru
frekar til í átök en auðvitað þurfum
við að spyrja að leikslokum ef
strandar á kröfunum.
Við erum með fjölda samninga
eða um 27 kjarasamninga alls og
það er mismunandi hugur í mönn-
um. Ég er nýkominn af fundi með
einum hópi þar sem er mikill hugur
í mönnum að fara í átök ef þeir fá
ekki kröfum sínum framgengt,“ seg-
ir Kristján að lokum.
omfr@mbl.is
Tilbúnir að fara í
átök ef þörf krefur
RSÍ-félög leggja lokahönd á kröfur
Kristján Þórður
Snæbjarnarson