Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 19
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
fimleikahús við Vatnsendaskóla í
Kórahverfinu. „Það er enn á teikni-
borðinu en áætlað er að verkinu
ljúki í lok árs 2016. Það var sagt við
mig þegar við fengum þetta hús ár-
ið 2005 að við myndum aldrei ná að
fylla það en það gerðist bara á örfá-
um árum. Fimleikar eru svo vinsæl-
ir að það kæmi mér ekkert á óvart
þó að nýja húsið myndi fyllast líka.“
Meistararitgerð um félagið
Í nágrannalöndum er gjarnan
litið til Gerplu sem fyrirmyndar
hvað varðar þætti íþróttastarfs.
„Okkar rekstrargrundvöllur
þykir í raun öfundsverður og mað-
ur finnur fyrir því að á Norður-
löndum er mikið litið upp til okkar.
Þá veit ég til þess að verið er að
skrifa meistararitgerð um félagið í
Danmörku,“ segir Auður.
„Hér er lítil starfsmannavelta
enda erum við með frábært starfs-
fólk, sömu stjórnendur og þjálfarar
hafa unnið hjá okkur lengi,“ segir
Auður og bætir við að óhætt sé að
segja að félagið sé í fararbroddi á
Norðurlöndum.
„Hins vegar á sér stað gríðar-
leg uppbygging íþróttamannvirkja
í Skandinavíu og við erum í raun að
dragast aftur úr. Með nýja húsinu
vonast ég þó til að hægt verði að
jafna leikinn.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sveifla Íþróttastarf fyrir börn og unglinga er lykilhluti í starfsemi félags-
ins að sögn Auðar Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Gerplu.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
sem leigu- og eignarhúsnæði bjóða
upp á, meiri sveigjanleika, minni
kostnað og minna fjárframlag, auk
þess sem þú forðast skulda- og við-
haldsáhættu þar sem Búseti sér um
stóru viðhaldsþættina.“
Fjölbreytt flóra íbúa
Eigendur Búseta eru allir fé-
lagsmenn en félagsaðild er opin öll-
um og kostar hún 5.500 krónur á ári.
Félagið á eignir á öllu höfuðborg-
arsvæðinu en megnið af þeim er í
nýrri hverfum borgarinnar og öðr-
um bæjarfélögum, sem skýrist að
hluta til af aldri félagsins. Að sögn
Gísla er í félaginu nokkuð fjölbreytt
flóra íbúa.
„Félagið er að sjálfsögðu opið
öllum þjóðfélagshópum og innan
okkar raða er verkafólk til jafns við
háskólamenntað fólk. Margir hafa
kynnst þessu formi erlendis og vilja
sækja í þetta þegar þeir koma hing-
að heim.“
Íbúar geta flutt á milli íbúða
innan kerfisins eða endurselt bú-
seturéttinn. Ákveðið hámark er þá á
verðinu, sem er framreiknað sam-
kvæmt vísitölu, og flestir fá andvirði
þess hámarks, að sögn Gísla. Hann
segir aðsókn í félagið sífellt aukast
og dæmi eru um að kornung börn
séu skráð til aðildar.
Eins og verslunarstjóri með
tómar hillur
„Það er alltaf nokkuð um að ung
börn séu skráð í félagið eða að þau
fái aðild í fermingargjöf, en börn
undir 18 ára aldri borga aðeins hálft
gjald,“ segir Gísli og bætir við að
hann finni fyrir aukinni spurn eftir
fasteignum Búseta.
„Með tilkomu nýju bygging-
anna þá snúast flest símtöl sem við
fáum um það hvenær sé hægt að
fara að kaupa. Á móti kemur að það
er mjög lítil hreyfing á eignum þar
sem íbúar eru flestallir mjög ánægð-
ir með íbúðirnar sínar. Mér hefur
liðið svolítið eins og verslunarstjóra
með tómar hillur, eftirspurnin er svo
miklu meiri en framboðið.“
Morgunblaðið/Þórður
Steinþór Runólfsson býr í Búsetaíbúð í nýja Kóra-
hverfinu, en hann fékk ungur að gjöf aðild að félag-
inu. „Árið var 1991 þegar foreldrar mínir voru að
flytja inn í Búsetaíbúð og í leiðinni skráðu þau mig,
fimm ára gamlan, í félagið,“ segir Steinþór og bætir
við að hann sé þakklátur foreldrum sínum fyrir þessa
forsjálni. „Þetta nýttist okkur vel þegar ég og unn-
usta mín hófum húsnæðisleit fyrir tveimur árum.“
Steinþór er læknir og starfar á Landspítalanum en
unnusta hans, Fanney Hrund Hilmarsdóttir, er hér-
aðsdómslögmaður hjá lögmannsstofunni Rétti.
„Ef þessi möguleiki hefði ekki staðið okkur til
boða þá hefðum við líklega þurft að kaupa húsnæði. Þá værum við í per-
sónulegum skuldbindingum fyrir láni sem stæði ekki til að klára,“ segir
Steinþór og bendir á að hugurinn standi til frekara náms erlendis. Hann
segir þó að þau séu ánægð með lífið í Kópavogi og telur að líklega muni
þau snúa þangað aftur eftir framhaldsnámið.
„Hesthúsið er bara í 500 metra göngufæri sem gerir okkur auðvelt að
stunda okkar helsta áhugamál. Við vöknum við fuglasönginn á morgn-
ana og tínum berin á haustin, þetta er sannkölluð sveit í borginni.“
Fuglasöngur og berjatínsla
UNGIR FRUMBYGGJAR Í KÓRAHVERFINU
Steinþór
Runólfsson
„Atvinnusvæðin í bænum hafa
styrkst mikið undanfarið eftir sam-
drátt. Auðbrekkusvæðið, frá Ný-
býlavegi að
Hamraborg, hef-
ur verið að byggj-
ast upp. Ég hef
fylgst náið með
uppbyggingunni
þar og unnið að
því með þeim sem
hagsmuna eiga
að gæta að laða
áhugaverð fyr-
irtæki þangað,“
segir Áshildur
Bragadóttir, forstöðumaður Mark-
aðsstofu Kópavogs.
Tæpt ár er síðan starfsemi mark-
aðsstofunnar hófst, en að henni
standa bæjaryfirvöld og um 70 fyr-
irtæki í bænum. „Við höfum ekki
sótt stíft á fyrirtækin, heldur hafa
stjórnendur þeirra sýnt áhuga á að
taka þátt í að byggja upp öflugt
hreyfiafl fyrir atvinnulífið í Kópa-
vogi. Slíkt er mikils virði.
Kópavogsbær er á miðju höf-
uðborgarsvæðisins og í góðum
tengslum við lykilstofnbrautir og því
eru frábær tækifæri til uppbygg-
ingar,“ segir Áshildur og bendir á
að vegna staðsetningar séu nokkur
atvinnusvæði í bænum mjög sterk.
Nefnir þar Smiðjuhverfi, Dalveg,
Smáratorg, Lindir, Hlíðasmára og
svo og Nýbýlaveginn.
Hvörfin eru annað atvinnusvæði
sem hefur styrkst mikið undanfarið,
að sögn Áshildir. Hún nefnir þar að
verkfræðistofa flutti höfuðstöðvar
sínar nýverið í Urðarhvarf og þá var
þar nýlega opnuð líkamsrækt-
arstöðin Rebook. Meira sé í píp-
unum.
„Með stofnun Markaðsstofu Kópa-
vogs er aukin áhersla á að efla sam-
starf ólíkra aðila. Við höfum hvatt
stjórnendur fyrirtækja á einstaka
svæðum til að koma á hagsmuna-
samtökum. Nú þegar hafa verið
stofnuð samtök fyrir Smiðjuhverfi
og meira er í bígerð. Við væntum
mikils af því,“ segir Áshildur.
Miðsvæðis Auðbrekkan er atvinnusvæði er þykir vera í mikilli sókn.
Laða að fyrirtæki
Markaðsstofan er öflug Hagsmuna-
samtök stofnuð úti í atvinnuhverfunum
Áshildur
Bragadóttir
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is