Morgunblaðið - 03.02.2015, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Hágæða flísar frá Ítalíu
60 x 60 cm
Múrmeldýrið Phil frá bænum Punxsutawney í Philadelp-
hiu-ríki spáði því í gær að enn væru sex vikur eftir af
vetri. Samkvæmt 129 ára gamalli hefð er dagur múrmel-
dýrsins haldinn hátíðlegur 2. febrúar á ári hverju, en
þjóðsagan segir að þann dag skríði múrmeldýr úr híði
sínu og meti það út frá skugga sínum hversu lengi vet-
urinn muni vara enn. Þessi hefð öðlaðist heimsfrægð ár-
ið 1993 þegar gamanmyndin Groundhog Day með Bill
Murray í aðalhlutverki kom út, en hún fjallar um mann
sem neyðist til þess að lifa sama daginn aftur og aftur.
EPA
Múrmeldýrið spáir áframhaldandi vetri
Árið 2014 var það hlýjasta sem
mælst hefur, samkvæmt tilkynningu
frá veðurstofnun Sameinuðu þjóð-
anna sem gefin var út í gær. Var
meðalhitinn um 0,57 gráðum á
Celsíuskvarða hærri en langtíma-
meðaltal áranna 1961-1990, sem var
14 gráður á Celsíus. Michel Jarraud,
yfirmaður Alþjóðaveðurfræðistofn-
unarinnar, sagði að 14 af 15 hlýjustu
árunum hefðu mælst á 21. öldinni.
Sagðist hann eiga von á frekari hlýn-
un á næstu árum.
Aðildarþjóðir Sameinuðu þjóð-
anna munu senda fulltrúa sína til
Genfar í næstu viku til þess að ræða
nýjan sáttmála um leiðir til að koma
í veg fyrir hnatthlýnun, en áætlað er
að hann verði undirritaður í París í
lok þessa árs. Markmiðið með sam-
komulaginu er að reyna að tak-
marka hlýnun jarðar við tvær gráð-
ur á Celsíus umfram það sem
þekktist fyrir daga iðnbylting-
arinnar.
Hæsti meðal-
hiti sem
mælst hefur
2014 hlýjasta árið
frá upphafi mælinga
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Grikkir munu þurfa að reiða sig á
Seðlabanka Evrópu og treysta því að
hann muni sjá grískum bönkum fyrir
fjármagni á meðan stjórnvöld í
Aþenu semja við önnur ríki Evrópu-
sambandsins og aðra lánardrottna
um skilmála á endurgreiðslu þeirrar
neyðaraðstoðar sem landið hefur
fengið til þessa. Kom þetta fram í
máli Yanis Varoufakis, fjármálaráð-
herra Grikklands, í fyrradag í París,
en hann heimsækir nú lykilríki Evr-
ópusambandsins.
Sagði Varoufakis að Grikkir
myndu hafna nýrri lánalínu upp á 7,2
milljarða evra frá Evrópusamband-
inu, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
Seðlabanka Evrópu, sem stundum
eru nefnd „þrenningin“, þar til búið
væri að semja við lánardrottna
Grikklands.
Í venjulegu árferði myndu Grikkir
eiga rétt á lánum frá seðlabankanum
í skiptum fyrir skuldabréf frá ríkinu.
Hins vegar er lánshæfi Grikklands í
ruslflokki og heimila lánareglur
seðlabankans því ekki að skuldabréf-
in séu tekin að veði. Grikkir hafa
fengið undanþágu frá þeim reglum
svo lengi sem þeir halda sig innan
þeirra skilmála sem lánardrottnar
og „þrenningin“ svonefnda hafa sett.
Hin nýja ríkisstjórn Grikklands hef-
ur hins vegar krafist þess að landið
verði losað undan yfirsjón „þrenn-
ingarinnar“.
Þrenningin gæti breyst
Jean-Claude Juncker, forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, lýsti því yfir í gær að hann
væri opinn fyrir hugmyndum
Grikkja um breytingar á „þrenning-
unni“ og því hvernig skilmálum
neyðarlánanna væri fylgt eftir.
Juncker mun hitta Alexis Tsipras,
forsætisráðherra Grikklands, á
morgun og ræða þar stöðu Grikkja.
Treysta á seðlabankann
Juncker ljær máls á breytingum á „þrenningunni“ svonefndu Hittir Tsipras á
morgun Varoufakis segir Grikki hafna nýrri lánalínu upp á 7,2 milljarða evra
AFP
Gríska þinghúsið Jean-Claude
Juncker hittir Tsipras á morgun.
Yfirflugþjónn hjá suður-kóreska
flugfélaginu Korean Air sagði í gær
að Cho Hyun-Ah, dóttir forstjóra
félagsins, hefði komið fram við
starfsfólkið líkt og hún væri léns-
herra þeirra. Réttað er nú yfir Cho
fyrir reiðikast sem hún beindi gegn
áhöfn félagsins, vegna þess að
henni hefðu verið afhentar hnetur
sem hún hafði ekki beðið um á með-
an beðið var flugtaks í New York.
Neyddi hún flugþjóninn til þess að
yfirgefa vélina áður en hún gæti
lagt af stað til Seoul. Saksóknari í
málinu krefst þess að hún verði
dæmd í þriggja ára fangelsi.
Hegðaði sér eins
og lénsherra
SUÐUR-KÓREA
Réttarhöld í máli
Dominiques
Strauss-Kahns,
fyrrverandi for-
stjóra Alþjóða-
gjaldeyrissjóðs-
ins, hófust í gær,
en hann er ásak-
aður um að hafa
verið melludólg-
ur sjö kvenna.
Þrettán til við-
bótar hafa verið
ákærðir í málinu, þar á meðal eig-
andi vændishúss sem gengur undir
nafninu Dodo Makríll, en makríll er
slanguryrði yfir melludólga á
frönsku. Gert er ráð fyrir að
Strauss-Kahn beri vitni í næstu viku.
Ákærður fyrir
dólgshátt
Dominique
Strauss-Kahn
FRAKKLAND
Átján manns særðust þegar tvær
konur gerðu sjálfsvígsárás á
íþróttaleikvang í borginni Gombe í
Nígeríu. Þar hafði farið fram kosn-
ingafundur á vegum Goodluck Jo-
nathan, forseta landsins, en kosið
verður til embættisins á laugardag-
inn í næstu viku. Jonathan var
nýbúinn að flytja ræðu á fundinum
og hafði yfirgefið leikvanginn þeg-
ar sprengingar heyrðust á bíla-
stæði hans.
Árásirnar koma í kjölfar mann-
skæðra árása á sunnudaginn, þar
sem fimm manns létust í sjálfsvígs-
árásum, sem taldar eru runnar
undan rifjum hryðjuverkasamtak-
anna Boko Haram.
Stjórnarher landsins tilkynnti í
gær að hann hefði náð að frelsa
fimm þorp úr höndum samtakanna,
en þau hafa lagt undir sig stórt
landsvæði í norðausturhluta lands-
ins. Fékk herinn stuðning frá Tsjad
og Kamerún, en flugherir landanna
hafa gert loftárásir á helstu víg-
girðingar Boko Haram.
Talið er að kosningarnar 14.
febrúar verði meðal þeirra mest
spennandi í sögu Nígeríu. Flokkur
Jonathans, Lýðræðisflokkur fólks-
ins, eða PDP, hefur farið með völd í
landinu undanfarin 16 ár, en upp-
gangur Boko Haram hefur dregið
mjög úr vinsældum Jonathans.
sgs@mbl.is
AFP
Ljót aðkoma Fimm manns létust í sprengjutilræði í Nígeríu á sunnudaginn.
Sprengjutilræði á kosn-
ingafundi Goodluck
Nígeríski herinn sækir fram
Lögreglan í Belgíu handtók í gær
mann sem var með keðjusög og
byssu í bíl sínum nálægt húsakynn-
um Evrópuþingsins. Voru hús í ná-
grenninu rýmd vegna mannsins,
þar sem talið var að hann væri með
sprengju, en svo reyndist ekki vera.
Maðurinn reyndist vera 32 ára
gamall Slóvaki, en hann var klædd-
ur í hermannaföt. Mun hann ekki
hafa verið ógnandi í framkomu.
Tekinn með keðju-
sög og byssu
BELGÍA