Morgunblaðið - 03.02.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 2015
Stefán Haukur Tryggvason er framkvæmdastjóri Martaks íGrindavík, en Martak sérhæfir sig í smíði á vélbúnaði ogvinnslulausnum fyrir matvælaframleiðslufyrirtæki. Hann
hefur unnið hjá fyrirtækinu í fimm ár en tók við framkvæmdastjóra-
stöðunni síðastliðið vor. „Við erum að framleiða vörur fyrir mat-
vælaiðnaðinn almennt en kjarnastarfsemi fyrirtækisins er vélbún-
aður og lausnir til vinnslu á rækju. Aðalstarfsstöð okkar er í
Grindavík en við erum líka með verksmiðju í St. John’s í Kanada, en
það er okkar stærsti erlendi markaður. Þá höfum vð hjá Martaki
einnig hannað og smíðað lifrarniðursuðuverksmiðjur sem hafa ver-
ið settar upp bæði í Grindavík og á Ólafsvík. Ég ferðast mjög mikið
vegna vinnunnar þar sem sölu- og markaðsmál eru stór hluti af
mínu starfi, þannig að það er nóg að gera.“
Stefán stundar golf og spilaði fótbolta í mörg ár fyrir Ísafjörð en
lætur sér nægja að horfa á hann í dag. „Það er fínt að stunda golf
þegar maður býr í Grindavík enda góður golfvöllur hér, en þetta er
meira til gamans gert enda góður félagsskapur. Svo fór ég út í golf-
ferð síðasta haust og það er ein besta ferð sem ég hef farið í í langan
tíma.“ Hann tekur sér frí í vinnunni í tilefni dagsins. „Þetta verður
léttur dagur og ég ætla að eyða honum í faðmi fjölskyldunnar.“
Kona Stefáns er Guðbjörg Gísladóttir sjúkraliði en hún vinnur á
öldrunarheimilinu í Grindavík. Dætur þeirra eru Guðrún Ásbjörg
hjúkrunarfræðingur á Akureyri, Aldís Dröfn sem er að klára kenn-
aranám og Anna María sem vinnur í Bláa lóninu.
Stefán Haukur Tryggvason er 50 ára í dag
Í Boston Stefán og Guðbjörg í heimsókn hjá frændfólki árið 2012.
Tekur sér frí í dag
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Sauðárkróki Matthías Spói
Vignisson fæddist 8. júlí
2014 kl. 13.11. Hann vó
3.070 g og var 49 cm langur.
Foreldrar hans eru Jóhanna
Marín Óskarsdóttir og Vign-
ir Már Sigurjónsson.
Nýr borgari
A
ndrea fæddist í Reykja-
vík 3.2. 1975, en ólst
upp í Garðabæ. Hún
tekur því bara vel að
þurfa að eldast eins og
annað fólk: „Það er gaman að því að
ég sé loksins að ná foreldrum mínum
í aldri,“ segir hún. „Ég verð þá
aldrei barnastjarna!“
Margrét, móðir Andreu, hefur
skoðanir á því hvaða mann dóttirin
hefur að geyma: „Andrea hefur allt-
af farið sína eigin leiðir, er með ríka
réttlætiskennd og ákveðni hefur
ávallt einkennt hana. Hún keypti
sína fyrstu íbúð 17 ára, lét tollverði í
Ameríku heyra það þegar hún var
sex ára og var rekin heim með næstu
rútu í þetta eina skipti sem hún ætl-
aði að dvelja í sveit, þar sem hún
hafði rifist við bóndann um hvaða út-
varpsstöð ætti að hlusta á við matar-
borðið.“ Um sveitadvölina segir
Andrea: „Ég vildi hlusta á Rás 2 sem
var ný stöð á þeim tíma og spilaði
virkilega gott stöff. Bóndinn vildi
hlusta á Rás 1. Við vorum bara
ósammála á þessum tíma. Í sveitinni
drakk ég djús og borðaði bara kex
þannig að þetta var kannski fyrir
bestu. Ég hef alltaf fengið mikið út
Andrea Róbertsdóttir, mannauðsstjóri RÚV – 40 ára
Randy Watson-gengið góða Andrea með æskuvinkonum sínum úr Garðabæ, Hrund, Björk, Hrönn, Selmu og Birnu.
Verður víst ekki
barnastjarna úr þessu
Við Seljalandsfoss Andrea og synirnir, Dreki, sex ára, og Jaki, þriggja ára.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.