Morgunblaðið - 09.02.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.02.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2015 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ etta hefur farið fram úr björtustu vonum, núna er þriðja prentun farin í gang,“ segir Smári Jónsson og á þar við bók sem hann sendi frá sér fyrir síðustu jól og heitir Pabbi, átt þú uppskrift? en það er matreiðslubók fyrir byrjendur og lengra komna heimiliskokka. Bókin inniheldur að mestu uppskriftir að venjulegum heimilismat, einhvers konar þver- snið af þeim réttum sem hafa verið hvað vinsælastir á heimili Smára. „Ég er alveg rasandi hissa á því hversu mikla lukku bókin hefur vakið, en það sýnir vissulega að það er þörf fyrir svona bók.“ Smári segir að upphaf ævin- týrisins megi reka til þess að þegar dætur hans voru nýfluttar að heim- an áttu þær það til að hringja í pabba sinn og biðja hann um upp- skriftir að hinu og þessu. „Þær vildu fá uppskriftir að þeim heimilismat sem þær eru aldar upp við hér hjá okkur. Í framhald- inu spurði ég þær hvort vinir þeirra og vinkonur sem væru nýflutt að heiman væru kannski í sömu vand- ræðum með að elda. Svo reyndist vera og þegar ég spurði hvað þetta unga fólk langaði til að læra að elda, þá reyndist það vera hinn venjulegi heimilismatur sem þau eru alin upp við. Þau vilja ekki hafa þetta of flókna matreiðslu, enda er erfitt fyr- ir krakka sem kunna lítið sem ekk- ert fyrir sér í matreiðslu að byrja á einhverjum fansí og flóknum rétt- um.“ Hversdagsupp- skriftir pabba Þegar dætur Smára Jónssonar voru nýfluttar að heiman voru þær sífellt að hringja í hann til að biðja hann um uppskrift að einhverju sem þær voru aldar upp við á æskuheimilinu. Smári komst að því að nýgræðingar þyrftu á uppskriftabók með venjulegum heimilismat að halda, svo hann gekk í málið og gaf út eina slíka. Morgunblaðið/Golli Í eldhúsinu heima Smári kann vel við sig í eldhúsinu heima á Akranesi. Á morgun, þriðjudag, mun eiga sér stað atburður sem enginn unnandi fagurra lista má láta fram hjá sér fara, en þá stendur Kvæðamanna- félagið Iðunn fyrir kvæðaskemmtun á Kaffi Rósenberg. Nokkrir valinkunnir kvæðamenn munu þar koma fram og kveða vísur og rímur í léttum dúr. Á sama tíma mun kvæðamanna- félagið Ríma einnig halda kvæða- kvöld á Þjóðlagasetrinu á Siglufirði. Þannig er hitað upp fyrir Landsmót kvæðamanna sem haldið verður á Siglufirði dagana 6.-8. mars. Á kvæðakvöldi Iðunnar koma fram Ása Ketilsdóttir, Bára Grímsdóttir, Ingimar Halldórsson, Njáll Sigurðs- son, Pétur Húni Björnsson, Rósa Jó- hannesdóttir, Rósa Þorsteinsdóttir og Þórarinn M. Baldursson. Haldin verður hlutavelta með mörgum spennandi vinningum. Dagskráin hefst kl. 20 og aðgangs- eyrir er 1.000 kr. Allir velkomnir. Kvæðaskemmtun á Rósenberg Kvæðakona Bára ætlar að kveða annað kvöld, en hér er hún ásamt manni sínum. Bára Grímsdóttir og Ása Ketils- dóttir meðal þeirra sem kveða Fleiri konur deyja eða tapa heilsu á hverju ári vegna ofbeldis heldur en vegna krabbameins, umferðarslysa, malaríu og alnæmis ár hvert. UN Women vinna ötullega að því að breyta þessu og þess er krafist að ár- ið 2015 verði ár breytinga. Árið sem konur eru frjálsar og lifa án ótta við ofbeldi. Landsmenn geta tekið þátt í bylt- ingunni með því að kaupa Fokk of- beldi armbandið. Ágóði armband- anna rennur í Styrktarsjóð SÞ en sjóðurinn styrkir um 80 verkefni í 70 löndum um þessar mundir og hefur bein áhrif á líf þriggja milljóna manna. Það er ósk UN Women á Ís- landi að armbandið fái fólk til að tala um ofbeldi gegn konum. Með aukinni vitund eiga breytingar sér stað. Fokk ofbeldi armbandið er ætlað fullorðnum. Orðalagið er vísvitandi ögrandi og ætlað að hreyfa við fólki og stuðla að vitundarvakningu um baráttu gegn kynbundnu ofbeldi. Ef orðalagið fer fyrir brjóstið á fólki þá er mikilvægt að muna að ein af hverj- um þremur konum verður fyrir of- beldi á lífsleiðinni og 39 þúsund stúlkur eru þvingaðar í hjónaband á hverjum einasta degi eða ein á þriggja sekúndna fresti. Fokk ofbeldi armbandið fæst í Lyfju, Apótekinu og Heilsuhúsinu um land allt dagana 6.-20. febrúar. Nokkrar staðreyndir um kynbundið ofbeldi:  600 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki refsi- vert.  3.600 konum er nauðgað í Suður- Afríku á hverjum einasta degi.  Líklegra er að íslensk stúlka í 10. bekk á Íslandi hafi orðið fyrir kyn- ferðislegri áreitni heldur en að hún reyki.  64 milljónir stúlkna undir 18 ára aldri hafa verið þvingaðar í hjóna- band um heim allan.  140 milljónir stúlkna hafa þurft að þola afskurð á kynfærum sínum. Ein af hverjum þremur konum verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni Orðalagið er vísvitandi ögrandi og ætlað til að hreyfa við fólki Ljósmynd/Saga Sig. Táknrænt Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson fengu nokkra dans- ara til að mynda í sameiningu orðin FOKK OFBELDI með líkömum sínum. Ögrun Áletrun á armbandinu er ætl- að að hreyfa við fólki og stuðla að vakningu um kynbundið ofbeldi. Opið: 8 :00-18 :00 mánud . til fim mtud. 8:00-1 7:00 föstud aga Er bílrúðan brotin eða skemmd? Við erum sérfræðingar í bílrúðuskiptum og viðgerðum á minni rúðutjónum. Erum í samvinnu við öll tryggingafélög landsins. Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.