Morgunblaðið - 09.02.2015, Síða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er affarasælast að vita gjörla
með hverjum maður deilir sínum innstu
skoðunum. Að öðrum kosti getur allt farið í
loft upp og árangurinn orðið enginn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú gerir það sem til þarf til að vera
tilbúinn þegar stóra stundin rennur upp.
Drífðu hugmyndir í framkvæmd.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Listræn sköpun getur veitt þér
ánægju í dag. Mundu bara að það er
vandaverk að velja sér vini og þeim þarf
svo að sinna, ef vináttan á að haldast eitt-
hvað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sambönd þín við mikilvægt fólk
fara batnandi í dag. Brettu upp ermarnar
og gakktu rösklega til verks.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Júpíter elskar að freista manns og
stríða. Til þess að selja þarf maður að
svara þörfum viðskiptavinarins.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að gera eitthvað til þess að
auka orku þína. Forðastu umfram allt ann-
að að lenda í árekstrum við samstarfs-
menn þína.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt þig langi til þess að breyta ein-
hverju er ekki rétti tíminn til þess núna.
Tengingin milli líkama og hugar er dul-
arfull, en þú þarft ekkert að vita um það til
að láta það virka.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gerir miklar kröfur til sjálfs
þín og annarra og setur sjálfum þér oft
ströng skilyrði. Hikaðu ekki andartak við að
gera það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hjá þér er það að halda andlit-
inu ekki líkamlegt. Hlustaðu á vandamál
vinar og gefðu honum tíma og þá mun þér
líða betur á eftir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þið fáið hverja hugmyndina ann-
arri betri en getið ekki gert upp á milli
þeirra. Leitaðu hjálpar tafarlaust ef þú tel-
ur það nauðsynlegt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki sögusagnir ná þeim
tökum á þér að þú hlaupir upp til handa og
fóta áður en þú kannar hvað í þeim felst.
Þig er farið að þyrsta í ferðalög.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Oft er það svo að þér finnst þú vera
eina manneskjan sem getur gert hlutina
rétt. Fólk í kringum þig er líklega áhyggju-
fullt, jafnvel gagnrýnið.
Örnólfur Thorlacius hringdi ímig og sönglaði afbrigði við
vísu, sem þá birtist í Vísnahorni
og varð þannig undir hans lagi:
Nú er úti veður vott
verður allt að klessu
ekki fær hann Grímur gott
að gifta sig í þessu –
líka voða veðri
honum var það líka nær
honum var það líka nær
að gifta sig í gær.
Þá kenndi hann mér þessa vísu
– sem hann fór með undir sínu
lagi:
Mikið er um þá maðurinn býr
margt hefur hann að hugsa –
þarf hann að hugsa um 13 kýr
30 lömb og uxa,
30 lömb og þennan líka uxa.
Hallmundur Kristinsson yrkir
á Boðnarmiði:
Séra Sigríður Jóna
sagðist vera að bóna.
Að tilbiðja guð
er töluvert puð.
Takið af yður skóna.
Og nú hefur Hallmundur fyrsti
orðið á Leirnum:
Aukast þarf verslunarvelta.
Varðhundar kerfisins gelta.
Feitlagnir menn
fitna víst enn.
Fátæklingarnir svelta.
Ólafur Stefánsson hefur orð á því
að samheldnin í stjórnarliðinu sé ekki
meiri en Guð gaf, en skamma stund
verður hönd höggi fegin. Kannski
vakna þeir upp einhvern daginn, áð-
ur en haninn galar tvisvar, og standa
frammi fyrir kosningum og nýjum
meirihluta:
Sagt er á þessu þingi,
sé þjarkað svo skjálfi jörð,
og illa saman syngi
Sigmundar stóra hjörð.
Ármann Þorgrímsson yrkir um
„stríð“:
Eru hetjur engar þar
aðeins hræddir tindátar
út í stríð þeim alltaf var
ýtt með rökum heimskunnar
Valdimar Gunnarsson skrifaði á
Leirinn að þessi vísa Ármanns kall-
aðist skemmtilega á við vísu Stefáns
G. (þegar hann var spurður hvort
hann fýsti ekki að koma til Evrópu og
sjá ummerki heimsstyrjaldarinnar):
Þó mér bjóðist braut og far
býður mér við að koma þar
sem heimsins stærsta heimska var
háð, til mestrar bölvunar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um Grím, graut
og kaffibrúsa
Í klípu
MEIRA AÐ SEGJA RUÐNINGSBOLTINN
VAR MEÐ SORGARSÖGU.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„FÆRÐU ÞAÐ Á TILFINNINGU AÐ VERIÐ SÉ
AÐ SVINDLA Á ÖÐRUM OKKAR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann spyr
hvort sætið við hliðina á
þér sé laust.
SLEEEF!
AF HVERJU ÞARFTU AÐ FÁ ÞÉR
DRYKK FYRIR KVÖLDMAT Á
HVERJU EINASTA KVÖLDI?!!
ÞÚ BÝST EKKI VIÐ ÞVÍ
AÐ ÉG BORÐI ÞETTA
SULL EDRÚ, ER ÞAÐ?!
EKKI SVARA
SPURNINGU... ...MEÐ ANNARRI
SPURNINGU!
ÉG HELD AÐ ÉG HAFI
VILJAÐ VERA GRIPINN.
Eurovision-lögin sem flutt voru íRÚV á laugardagskvöldið voru
ljómandi góð, en hvert öðru lík. Dill-
andi diskósmellir ómuðu og dans-
andi dömur snérust á sviðinu en
ekkert lagið öðru fremur fangaði at-
hygli Víkverja. Þetta var saklaust
sjónvarpsfóður, sem skildi ekkert
eftir sig. Eitthvað af laugardags-
lögum þessum verður þó framlag Ís-
lands í aðalkeppninni í Austurríki á
vormánuðum. Vera kann að þar
muni íslenska lagið slá í gegn; það er
falla inn í stemningu staðar og
stundar í keppni sem í seinni tíð er
öðru fremur orðin tískusýning og
baráttufundur gegn fordómum.
x x x
Ímyndum okkur að við, landar góð-ir, séum stödd á þorrablóti úti á
landi eða í skemmtilegu heimboði
með vinum, þar sem fólkið – kátt og
glatt – syngur hástöfum enda kann
það bæði lög og texta sem það bók-
staflega drakk í sig með móður-
mjólkinni. Stemningin er alveg ríf-
andi góð og gleðin smitandi. Við
þekkjum þessi lög; Undir bláhimni,
Þórsmerkurljóð, Bjarnastaðabelj-
urnar, Draumur um Nínu, Einu
sinni á ágústkvöldi, Ertu þá farinn?
Svona mætti lengi áfram telja. Auð-
vitað eru þessir slagarar frekar létt-
meltir en til þess er leikurinn líka
gerður. Þetta eru óskalög þjóð-
arinnar – menning okkar og
skemmtun við skap fjöldans.
x x x
Sé í snöggheitum farið yfir listavinsælla íslenskra tónlistar-
manna koma við leit á netinu upp
nöfn eins og Björk, Sigur Rós, Jónsi,
Múm, Dikta, og Of Monsters and
Men. Listinn gæti verið lengri og
þarna fara alveg fantafínir tónlist-
armenn. Stíll sumra þeirra hæfir
auðvitað ekki Eurovision, sem ekki
þarf að koma að sök, en hefur ein-
hver þessara tónlistarmanna komið
með lög sem hvert einasta manns-
barn lærir á svipstundu? Getur raul-
að við matseldina, í bílnum, sturtu
eða á góðra vina fundi. Víkverja rek-
ur ekki minni til þess. Þrá eftir
heimsfrægð ætlar suma listamenn
lifandi að drepa, sem gleyma að það
er göfugt að gleðja landann og
syngja lög sem ná hjarta fólksins.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Verið með sama hugarfari sem Krist-
ur Jesús var. (Filippíbréfið 2:5)