Morgunblaðið - 12.02.2015, Síða 44
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 43. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Tóku þrjú ungmenni af lífi
2. Viðbjóðslega ríkir krakkar …
3. Bréfberi brást skyldum sínum
4. Flakið fannst 53 árum síðar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tilnefningar til Norrænu tónlist-
arverðlaunanna, Nordic Music Prize,
voru kynntar í gær og eru íslensku
hljómsveitirnar Pink Street Boys og
Prins Póló í hópi 12 tilnefndra, sú
fyrrnefnda fyrir plötuna Trash From
the Boys og sú síðarnefnda fyrir
Sorrí. Verðlaunin verða veitt 5. mars
á tónlistarhátíðinni by:Larm í Ósló. Á
myndinni sést forsprakki Prins Póló,
Svavar Pétur Eysteinsson.
Pink Street Boys og
Prins Póló tilefndar
Jón Páll Bjarna-
son, einn fremsti
djassgítarleikari
þjóðarinnar, held-
ur tónleika í
menningarhúsinu
Mengi í kvöld kl.
21 með Richard
Andersson bassa-
leikara og Matthíasi Hemstock
trommuleikara. Tríóið mun leika og
spinna þekkt djasslög sem Jón Páll
hefur flutt á tónleikum sínum í gegn-
um tíðina.
Jón Páll í Mengi
Sex þekktar dragdrottningar, þær
Adore Delano, Alaska 5000, Ivy Win-
ters, Jinkx Monsoon, Pandora Boxx
og Sharon Needles, munu skemmta í
Gamla bíói 17. apríl nk. Drottning-
arnar eiga það sameiginlegt að hafa
tekið þátt í raunveruleikaþáttum
bandarísku drag-
drottningarinnar Ru-
Paul, Rupaul’s Drag
Race, þar sem drag-
drottningar keppa
sín á milli og ein
sigrar að lokum.
Þekktar dragdrottn-
ingar í Gamla bíói
Á föstudag Austan 10-18 m/s með snjókomu, fyrst suðaustantil
en hægari og úrkomulítið fyrir norðvestan. Frost 2 til 12 stig, kald-
ast norðanlands. Hlánar suðaustanlands um kvöldið með slyddu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg breytileg átt í dag og víða þurrt
og bjart en vaxandi austanátt sunnantil síðdegis og þykknar upp,
austan 13-20 m/s allra syðst í kvöld og snjókoma. Talsvert frost.
VEÐUR
Fimm af sex fulltrúum Ís-
lands á HM í alpagreinum
sem stendur yfir í Colorado
í Bandaríkjunum hefja
keppni þar í dag í stórsvigi.
Einar Kristinn Kristgeirsson
og Magnús Finnsson þurfa
að fara í undankeppni en
hjá konunum er farið beint í
aðalkeppnina. Magnús er sá
eini af Íslendingunum sem
ekki keppti á HM í Schlad-
ming 2013, og þrjú kepptu á
ÓL í Sotsjí fyrir ári. »4
Hefja keppni á HM
reynslunni ríkari
Það fór ákaflega lítið fyrir Usain Bolt,
„rakettunni“ frá Jamaíku, á síðasta
ári. Bolt, sem á heimsmetin í 100 og
200 metra hlaupi, var þjakaður af
meiðslum og gat lítið beitt sér á
hlaupabrautinni. En nú horfir til betri
vegar hjá þessum marg-
falda heims- og ólymp-
íumeistara og hann
segist ætla að
láta veru-
lega að
sér kveða
á þessu
ári og
sýna og
sanna
að hann
sé fljótasti maður
í heimi. »2
Bolt ætlar að sýna sig
og sanna á ný
„Ég má ekki fara í fótbolta strax því
ég fékk blóðtappa í öxlina og má ekki
fara í átök á meðan ég er á blóðþynn-
ingarlyfjum. En ég var í fyrsta eftirliti
í vikunni, sem kom rosalega vel út og
sýndi að blóðtappinn er að hverfa,“
sagði knattspyrnukonan Mist Ed-
vardsdóttir meðal annars í samtali
við Morgunblaðið í gær en hún hefur
glímt við krabbamein. »1
Mist er bjartsýn á að
vera leikfær í sumar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það skapast skemmtileg stemning í
kringum það þegar ég dreg út hverjir
fá bókaskjóðu. Krakkarnir eru mjög
spenntir fyrir þessu en eitt megin-
markmið verkefnisins er einmitt að
gera það spennandi og áhugavert að
lesa bækur,“ segir Dröfn Vilhjálms-
dóttir, bókasafnsfræðingur í Selja-
skóla, um bókaskjóðurnar í skól-
anum, lestrarhvetjandi verkefni fyrir
2. til 7. bekk sem hófst sl. vor.
Til að fjármagna það var leitað til
nærsamfélagsins; m.a. íbúa í hverfinu
og fyrrverandi nemenda. Stofnað var
félagið Bókavinir Seljaskóla og farið
af stað með bókaskjóður í sérmerkt-
um pokum sem nemendur fá reglu-
lega heim með sér í vikutíma.
Koma oftar á bókasafnið
Hver skjóða hefur að geyma bók
og lestrarhvetjandi hluti sem tengj-
ast henni. Þannig fylgja matreiðslu-
bók hlutir eins og bökunarform,
svunta og mæliglös. Með fótboltabók
fylgja fótbolti, dómaraflauta og gula
og rauða spjaldið, svo dæmi séu tek-
in.
Dröfn segir þetta hafa tekist mjög
vel og án efa aukið áhuga nemenda á
lestri bóka. Meira sé um að börnin
komi núna á safnið og taki bækur til
láns. Nýverið kom nemandi í 3. bekk
til Drafnar og sagði við hana: „Bóka-
skjóðurnar eru svo skemmtilegar,
takk fyrir að hafa þær á
bóksafninu.“ Annar nem-
andi hafði fengið mat-
reiðsluskjóðuna og í kjöl-
farið færði hann Dröfn
kökusneið sem hann
hafði bakað eftir upp-
skrift úr matreiðslu-
bókinni.
„Þetta er það sem
veitir mér mestu hvatn-
inguna til þess að halda
áfram á sömu braut og
vinna áfram með bóka-
skjóðurnar,“ segir Dröfn. Í byrjun
voru skjóðurnar 15 talsins en eru
núna orðnar 30. „Yfir veturinn fá allir
tækifæri á að fá skjóðu hið minnsta
einu sinni en vissulega vildum við
geta haft fleiri skjóður,“ segir hún en
í 2. til 7. bekk Seljaskóla eru um 350
nemendur.
Hugmyndin kemur frá svipuðu
verkefni á vegum Miðstöðvar skóla-
þróunar við Háskólann á Akureyri,
Fágæti og furðuverk nefnist það. Þar
var útbúið sambærilegt efni fyrir
bæði nemendur og foreldra, einkum
fyrir feðga til að auka lestur drengja.
Bókaútgáfan Bókabeitan var einn-
ig tilbúin til að vera með en í þremur
skjóðum eru lesbretti með barna- og
unglingabókum frá útgáfunni í raf-
bókarformi. Dröfn segir þetta hafa
tekist mjög vel, rafbækur henti t.d.
mjög vel þeim sem eiga erfitt með
lestur. Hafa lesbrettin reynst mikil
lestrarhvatning og sumir þannig náð í
fyrsta sinn að klára heila skáldsögu.
Börnin sækja í bókaskjóður
Verkefni í
Seljaskóla eykur
lestraráhugann
Morgunblaðið/Kristinn
Bókaskjóður Dröfn Vilhjálmsdóttir skoðar skjóður ásamt nemendunum Eddu Björgu Sverrisdóttur, Auðbjörgu Kr.
Andrésdóttur, Matthíasi Ríkarðssyni, Álfheiði Bjarnadóttur, Þórunni Imsland og Guðmundi Helga Imsland.
Dröfn Vilhjálmsdóttir mun kynna
bókaskjóðurnar í Seljaskóla á mál-
þingi í Norræna húsinu í dag um
lestrarvanda barna og aðgerðir til
þess að sporna við honum.
Lionshreyfingin á Íslandi stend-
ur fyrir málþinginu, sem Illugi
Gunnarsson menntamála-
ráðherra mun ávarpa. Málþingið
ber yfirskriftina Börn í áhættu:
Lestrarvandi. Það hefst kl.
16.30 og er öllum opið á
meðan húsrúm leyfir.
Aðgangur er án endur-
gjalds.
Sigríður Ólafsdóttir
doktorsnemi mun fjalla
um hvaða áhrif tvítyngi
getur haft á þróun læsis. Ingibjörg
Ingólfsdóttir hjá Lesblindulist
kynnir námskeið fyrir foreldra
barna í efstu deildum leikskóla
sem talið er að geti þróað með sér
lestrarörðugleika, byggir nám-
skeiðið á svonefndri Davis-aðferð.
Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í
menntamálaráðuneytinu, kynnir
hugmyndir vinnuhóps ráðuneytis-
ins um aðgerðir til að bæta læsi
grunnskólabarna.
Tryggvi Kristjánsson, fjöl-
umdæmisstjóri Lions, setur mál-
þingið en þar mun Guðrún Björt
Yngvadóttir einnig kynna al-
þjóðlegt lestrarátak Lionsmanna
og baráttuna gegn treglæsi.
Glíman við lestrarvanda barna
MÁLÞING Í NORRÆNA HÚSINU Í DAG