Morgunblaðið - 26.02.2015, Qupperneq 19
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
breidd. Sett verða upp ný gang-
brautaljós norðan Heiðargerðis, en
öðrum umferðarljósum verður ekki
breytt.
Á sunnanverðum Grensásvegi
eru þrjár biðstöðvar strætisvagna,
það er þrjár hvorum megin við göt-
una. Gert er ráð fyrir að biðstöðvar
rjúfi hjólastíg, það er að strætó leggi
að gangstétt. Þetta er gert með tilliti
til aksturs slökkviliðs og lögreglu en
hætta er talin á töfum þeirra ef vagn
stoppar í götu. Það fyrirkomulag er
þó sagt mega endurskoða þegar
bráðamóttaka verður flutt frá Borg-
arspítala í Landspítalann við Hring-
braut. Verkinu fylgir einnig að ónýt-
ar gangstéttar og götulýsing verður
endurnýjuð og framhjáakstur við
gatnamót Grensásvegar og Bústaða-
vegar leggst af.
Læra af Hofsvallagötunni
Fyrirhugaðar breytingar á
Grensásvegi eru í anda þeirra sem
gerðar voru á Hofsvallagötu. Þar
voru akreinar þrengdar og reið-
hjólastígar útbúnir. Meira verður
gert í fyllingu tímans. „Skoðanir um
breytingarnar í Vesturbænum voru
skiptar. Margir nefndu þar bíla-
stæðamál og almennt sagt komu þar
fram sjónarmið sem við getum lært
af,“ segir Kristín Soffía.
Í dag fara á bilinu um 13.000
bílar á sólarhring um Grensásveg
milli Miklubrautar og Sogavegar, en
um 8.000 bílar aka brekkuna að
sunnan sem liggur að Bústaðavegi.
„Sé gata breið og umferð lítil skapar
slíkt hraðakstur, óhjákvæmilega.
Séu hins vegar þrengingar á götu og
ákveðin skilyrði í umhverfinu sköp-
uð hægja ökumenn ferðina, nánast
ósjálfrátt. Og til þess er leikurinn
líka gerður,“ segir Kristín Soffía
sem leggur áherslu á að valkostir í
samgöngumálum á höfuðborg-
arsvæðinu séu fjölbreyttir. Þá sé
eðlilegt að ýmsar skoðanir séu uppi,
en í næstu viku verður íbúafundur í
Breiðagerðisskóla, þar sem áform-
aðar framkvæmdir verða kynntar,
ræddar og reifaðar.
Morgunblaðið/Ómar
Umferðin Bílar, stætó, hjólreiðar eða fótgangandi? Þar liggur efinn.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Margir velta fyrir sér hvað verði um
byggingu Landspítalans í Fossvogi,
sem gjarnan gengur undir sínu gamla
nafni Borgarspítali, þegar nýtt sjúkra-
hús rís á Hringbrautarsvæðinu. Áform
eru uppi um að flytja alla núverandi
starfsemi í Fossvogi þangað. Svarið er
að engar ákvarðanir hafa verið teknar
um það, en mestar líkur eru á að þar
verði áfram einhver starfsemi tengd
sjúkraþjónustu. Hafa menn helst nefnt
öldrunar- og endurhæfingarþjónustu í
því sambandi.
Í aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir árin
2010 til 2030 segir að á svæðinu verði
áfram starfsemi á sviði heilbrigðismála, hjúkrunarheimili, verslun og þjónusta,
stofnanir og íþróttamannvirki. Ennfremur sé gert ráð fyrir breyttri landnotkun
á jaðri svæðisins til suðurs og austurs og þar verði þróuð íbúðabyggð.Aukning
byggingarmagns verði ákveðin í hverfisskipulagi. Yfirbragð nýrra bygginga
skuli taka mið af byggðinni við Sléttuveg.
Hvað verður um Borgarspítala?
Spítali Sjúkratengd starfsemi verður
áfram um langa hríð í Fossvogi.
Morgunblaðið/Ómar
Í Víkinni í Fossvogi blómstrar
íþróttastarf Víkings sem endranær.
„Iðkendur hjá félaginu eru um þús-
und talsins og ég tel að við séum
með ákaflega gott íþróttastarf fyrir
íbúa hverfisins. Þrátt fyrir vissa
smæð hverfisins höfum við náð að
mynda afspyrnu góðan hóp,“ segir
Haraldur V. Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, og bætir
við að almenningsdeildin njóti mik-
illa vinsælda. „Þar eru skokk- og
hjólahópar fyrir hinn almenna
hverfisbúa og deildin er orðin sú
þriðja stærsta innan félagsins.“
Félagið starfrækir einnig
Íþróttaskóla barnanna fyrir börn á
aldrinum þriggja til sex ára. „Marg-
ir okkar iðkendur hafa einmitt fet-
að sín fyrstu skref þarna og skólinn
er jafnan mjög eftirsóttur.“
Mikil tilhlökkun ríkir fyrir sumr-
inu enda náði meistaraflokkur
karla í knattspyrnu að tryggja sér
þátttöku í Evrópukeppni þegar lið-
ið endaði í 4. sæti Pepsideild-
arinnar á liðnu sumri. „Liðið hefur
ekki verið í Evrópukeppni síðan ár-
ið 1992 svo við höfum þurft að bíða
lengi. Það er Evrópusumar fram-
undan í Fossvoginum og mikil
stemning í félaginu.“
Morgunblaðið/Eggert
Keppni Bjartsýnustu Víkingar vonuðust varla eftir Evrópusæti fyrir ári.
Evrópusumar
í Fossvoginum
Íþróttastarfið í
Víkinni fyrir hverfis-
búa á öllum aldri
Morgunblaðið/Eva Björk
Samvinna Iðkendur hjá Víkingi
byrja sumir við þriggja ára aldur.
Í drögum að hverfisskipulagi fyrir
Bústaðahverfi er talað um uppbygg-
ingu meðfram Bústaðavegi vestan
við Grensásveg. „Skoða möguleika á
2.-3ja hæða íbúðabyggð meðfram
Bústaðavegi,“ segir orðrétt.
Nýbyggingarnar sem um er að
ræða eiga að koma sunnan við fjöl-
býlishúsin nr. 14 til 20 við Espi-
gerði, norðan Álands í Fossvogs-
hverfi, og einnig þar sem gömul og
aflögð gróðrarstöð við Bústaðaveg
stendur núna. Þarna er núna grænt
svæði sem íbúar nota til útivistar.
Svæðið er hins vegar að mestu í
órækt.
Nýbyggingar við Bústaðaveg?
Morgunblaðið/Júlíus
Þétting byggðar Þarna vilja borg-
aryfirvöld að rísi fjölbýlishús.
„Ég fer Grensásveg til og frá vinnu daglega, oftast
akandi en líka gangandi og hef meira að segja hjólað
þar líka. Vandræðalaust. Hugmyndir um að þrengja
að bílaumferð um Grensásveg eru því óskiljanlegar,“
segir Atli Rúnar Halldórsson íbúi í Fossvogshverfi.
Eðlilegra væri, að mati Atla Rúnars, að nota pen-
inga borgarsjóðs til að fylla í holur á malbikuðum
götum borgarinnar en breyta Grensásvegi. „Gígarnir
valda eigendum bíla beinlínis fjárhagstjóni ef þeir
lenda ofan í gjótunum með þeim afleiðingum að
dekk springur og felga beyglast. Ég tek eftir því að
þrengingarsinnar hampa mjög Borgartúni. Það skil
ég vel í ljósi hugmyndafræði þeirra og linnulítillar áráttu að reka hnýfl-
ana stöðugt í einkabílinn,“ segir Atli og bætir við að sér líki þær breyt-
ingar sem gerðar hafa verið á Borgartúni ekki nema miðlungi vel.
„Oft á ég leið í Borgartún vegna vinnu. Í seinni tíð kvíði ég því frekar
að fara þar um og þarf að ætla mér mun lengri tíma en áður til að kom-
ast á áfangastað og finna bílnum stað – ef það þá tekst nema í órafjar-
lægð frá fundarstað. Um Borgartún ek ég ekki lengur nema tilneyddur
og því hlýtur aðgerðin að hafa lukkast upp á punkt og prik.“
Óskiljanlegar hugmyndir
REKA HNÝFLANA STÖÐUGT Í EINKABÍLINN
Atli Rúnar
Halldórsson
kÖku
gerÐ hp
www.flatkaka.is
Flatkökur& rúgbrauð
ádiskinn þinn
þjóðlegt, gómsætt og gott
Gríptu með úr næstu verslun