Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.02.2015, Síða 33
8.2. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
„Dustum rykið af af blómkálinu,“ segja fjölmiðlar um
allan heim; ABC fréttamiðillinn í Bandaríkjunum,
Houston Chronicle, Canadian Living tímaritið,
Washington Post og svo mætti lengi telja.
Blómkálið hefur jú aldrei horfið af sjón-
arsviðinu en margt nýstárlegra grænmeti þó
kannski stolið senunni síðustu árin frá gamla
góða blómkálinu.
Blómkálið skal nota á hinn hefðbundna hátt;
í súpur, salöt, fiskirétti, gufusoðið, steikt og
hrátt og já svo í pítsubotnsdeigið sjálft og ofan á
pítsuna. Gamla góða blómkálsgratínið á þá líka að
koma sterkt inn, með rjóma og gráðosti jafnvel.
Þess má geta að Nanna Rögnvaldardóttir birti
dásamlega uppskrift að blómakálssúpu í síðustu viku
sem er hveitilaus og afar einföld og ódýr í gerð. Slóðin
er nannarognvaldar.wordpress.com.
Endurkoma blómkálsins
„Mér finnst fólk vera spenntara
fyrir íslenskum mat og nostalgíu
en áður, meiri áhugi fyrir sögu og
fyrir því að sækja eitthvað í nátt-
úruna en það er samt ekkert al-
veg nýtt. Svo er auðvitað syk-
urleysið, eða sykurhatrið, sem er efst
á baugi núna og hefur ýtt LKL-mataræði dálítið til
hliðar,“ segir matgæðingurinn góðkunni Nanna Rögn-
valdardóttir.
Hún segir að ef matartískan sé hins vegar skoðuð
fremur en mataræðistíska, þá sjái hún til dæmis mjög
vel aukinn áhuga á súrsun af ýmsu tagi.
„Ekki þorramat, heldur léttsýrt grænmeti, „kimchi“
og þess háttar. Og, jú, aukinn áhugi á ,,ekta“ réttum
frá ýmsum löndum, með réttum hráefnum og að-
ferðum, fremur en vestrænum útgáfum af þeim,
mexíkóskt fremur en tex-mex og ýmislegt slíkt. Veit
samt ekki hve almennur sá áhugi er en ég verð mik-
ið vör við hann.
Nanna er að sjálfsögðu með puttann á púlsinum
en til dæmis spáir matarblaðamaður breska blaðsins
The Telegraph því að léttsýrða grænmetið verði
stjarna ársins í matnum.
Léttsýrt grænmeti
Getty Images/iStockphoto
Bandaríska tímaritið
Better Homes and
Gardens spáir því
að við verðum öll
sötrandi kraftmikið
heimatilbúið kjötseyði
þegar árið er á enda og
reyndar alls kyns heimagert seyði, úr
grænmeti og kjúklingi.
Bæði drekkum við þetta hreint úr
bolla en einnig verðum við dugleg við
að nota þetta í alls kyns rétti og gera
súpurnar okkar og sósurnar frá grunni
og notum síður tilbúinn kraft.
Ragnar Freyr Ingvarsson, betur
þekktur sem „Læknirinn í eldhúsinu“
sagði í samtali við blaðamann að hann
teldi að það að elda frá grunni yrði
tískubólan 2015. Og fólk myndi rækta
sjálft eins og aðstæður leyfðu.
Heimatilbúinn
kraftur
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Í fullkomnu
flæði
Sous Vide er matreiðsluaðferð sem felst í því að
sjóða í lofttæmi við lágan og jafnan hita. Með því
að elda við fullkomið hitastig – ekki of lengi og ekki
of stutt – er hægt að hámarka bragðgæði matarins.
Með Sous Vide-amboðinu frá Sansaire geta áhuga-
menn jafnt sem atvinnumenn náð fullkomnu valdi á
hitastiginu og „súvídað“ í hvaða íláti sem er. Maður
þarf ekki einu sinni að eiga pott.
laugavegi 47 mán.- fös. 10-18, lau. 11-18, sun. 13-17 www.kokka.is kokka@kokka.is