Morgunblaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 60. tölublað 103. árgangur
ÍSLENSK HÖNN-
UN Á HÖNN-
UNARMARS
GAMAN AÐ
KLJÁST VIÐ
NÝTT VERK
SMÆÐIN
ER STÆRSTA
ÁSKORUNIN
SEGULSVIÐ 38 VIÐSKIPTAMOGGINN32 SÍÐNA SÉRBLAÐ
Brattar og tilkomumiklar öldur börðu í gærdag grjótgarð við
Grindavík af miklu afli á meðan kæruleysislegir fuglar nýttu
sér styrk Kára og svifu yfir hamaganginum.
Þegar líða tók á daginn dró vindurinn sig að mestu í hlé, en
það segir einnig í kvæði Lofts Guðmundssonar, Vertu sæl
mey, að sjómaðurinn komi „aftur er kvöldar á ný“. Þannig
gerir Veðurstofan ráð fyrir stormi, með meðalvindi yfir 20
m/s, syðst á landinu í kvöld. Það sama á við um Mýrdal og
undir Eyjafjöllum, en mikil úrkoma mun fylgja ofsanum.
Við brimsorfna kletta bárurnar skvetta
Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson
Endurskoðendaráð hefur lagt til
við Ragnheiði Elínu Árnadóttur
viðskiptaráðherra að Guðmundur
Jóelsson, löggiltur endurskoðandi
og félagi í Félagi löggiltra endur-
skoðenda í 40 ár, verði sviptur
starfsleyfi. Ástæður tillögunnar
segir ráðið vera þær að Guð-
mundur hafi neitað að gangast und-
ir gæðaeftirlit þar sem alþjóðlegir
endurskoðunarstuðlar eru lagðir til
grundvallar.
Guðmundur á hinn bóginn segir
að alþjóðlegu stuðlarnir séu ekki í
gildi á Íslandi þar sem þeir hvorki
hafi verið þýddir á íslensku né birt-
ir. Hann tilheyri þeim þriðjungi fé-
laga í FLE sem ekki sé í alþjóðlegu
samstarfi við stóru endurskoðunar-
skrifstofurnar og vinni ekki sam-
kvæmt hinum alþjóðlegu stöðlum,
heldur á grundvelli svokallaðrar
góðrar endurskoðunarvenju, sem
m.a. byggist á þekkingu og reynslu.
agnes@mbl.is »4
Vilja svipta löggilt-
an endurskoðanda
starfsleyfi sínu
Ábendingarhnappur um hugsan-
leg bótasvik, sem Persónuvernd úr-
skurðaði ólöglegan, hefur verið
fjarlægður af heimasíðu Trygg-
ingastofnunar (TR). Um 10% allra
mála sem stofnunin fær inn á borð
til sín um tryggingasvik hafa komið
í gegnum hnappinn. Forstjóri TR
segir þetta vera „lýðræðislegt tæki
úti í hinum stóra heimi“. »6
Nafnleysi útilokað
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Síðustu misseri hafa dagvöruversl-
anir ekki lækkað verð í samræmi við
styrkingu á gengi krónunnar.
Samkeppniseftirlitið heldur þessu
fram í nýrri skýrslu um samkeppni á
dagvörumarkaði. Sé þetta rétt hefur
það haft áhrif á þróun kaupmáttar.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir „sam-
keppni á dagvörumarkaði mjög þýð-
ingarmikla fyrir neytendur“.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir það al-
varlegt mál að gengisstyrking krónu
hafi ekki skilað sér til neytenda.
„Það þarf að tryggja eftirfylgni með
skýrslunni,“ segir Jóhannes.
Ekki fylgt þróuninni frá 2012
Grafið hér til hliðar er sótt í
skýrsluna en samkvæmt því hefur
smásöluverð innfluttra mat- og
drykkjarvara ekki fylgt þróun
gengisvísitölu síðustu misseri.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
segir rangt að fyrirtækið hafi ekki
skilað gengisbreytingum síðustu
misseri til neytenda.
Jón Björnsson, forstjóri Kaupáss,
segir líklega jafn stóran hluta álagn-
ingar liggja í heildsölu og smásölu.
Margt geti haft áhrif á verð.
„Hvað liggur til grundvallar þessu
verði? Er ástæðan að kjöt, ávextir og
grænmeti lækka en að á móti hafi
verið færri tilboð á þurrvöru? Það er
ýmislegt sem þarf að skoða betur áð-
ur en menn segja að gengið hafi ekki
fylgt verðlagi.“
Að sögn Jóns eru innfluttar mat-
vörur um þriðjungur matarkörfunn-
ar á Íslandi.
Evran ekki ódýrari í mörg ár
Stærstur hluti matvæla er fluttur
inn í evrum og ætti gengi evru því að
vega þungt í matarverði.
Nafngengi evru var 147,6 krónur í
gær og hafði evran þá ekki kostað
jafn lítið síðan í mars 2009, ef frá er
talið tímabilið frá 1.-22. ágúst 2012.
Vegna þessarar styrkingar og veik-
ingar krónu gagnvart bandaríkjadal
munar orðið aðeins um 8 kr. á nafn-
gengi evru og bandaríkjadals. Hefur
dalurinn styrkst um 10% á árinu.
Ragnar Björn Ragnarsson, gjald-
eyrismiðlari hjá Arion banka, segir
það skýra styrkingu krónu gagnvart
evru að evran sé að gefa eftir gagn-
vart öllum gjaldmiðlum.
Matarverð fylgdi
ekki gengisþróun
Innflutt matvara lækkaði ekki í takt við gengisstyrkingu
Bandaríkjadalur kostar orðið nær jafn mikið og evran
Vísitala gengis og smásöluverðs
innfluttramat- og drykkjarvara
Innfluttar mat- og drykkjarvörur
Gengisvísitala
Heimild: Samkeppniseftirlitið
2013 2014
120
115
110
105
100
95
90
MTaki til sín »14
Stjórnir flestra þeirra fyrirtækja
sem skráð eru í Kauphöllina leggja
til við aðalfundi að stjórnarlaun verði
hækkuð. Mest er hækkunin hjá VÍS
eða 75% en þar verða aukagreiðslur
aflagðar um leið. Þá hækkar launa-
hæsta stjórnin, sú sem situr í Marel,
um 10%. Þar á bæ fá stjórnarmenn
greitt í evrum en gengisþróun hefur
fremur dregið úr því sem íslenskir
stjórnarmenn bera úr býtum.
Í kjölfar þess að lífeyrissjóðurinn
Gildi setti sér hluthafastefnu hafa
forsvarsmenn hans lagt fyrirspurnir
fyrir nokkur þeirra fyrirtækja sem
stefna að eða hafa nú þegar hækkað
stjórnarlaun. Meðal annars hefur
fyrirspurnum verið beint að VÍS og
Marel. »Viðskipti
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnarstörf Launin hækka.
Launin
hækka
Gildi spyrst
fyrir um ástæður