Morgunblaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Víglundur Þorsteinsson, lögfræðing-
ur og fyrrverandi stjórnarformaður
BM Vallár, hefur haldið því fram að
það væri ólög-
mætt að nýju
bankarnir hefðu
innheimt lán sín
frá hruni, miðað
við 100% verðgildi
lánanna en ekki á
grundvelli stofn-
ákvörðunar fyrir
hvern hinna nýju
banka. „Lánin
voru yfirfærð í
nýju bankana með
afskriftum á grundvelli neyðarlag-
anna en ríkistjórn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og Steingríms J. Sigfússonar
fór af þeirri braut, sem lögð hafði ver-
ið með neyðarlögunum. Hún fór í þá
vegferð að tryggja hagsmuni kröfu-
hafa eins og fundargerðir stýrinefnd-
ar ríkisstjórnarinnar við erlenda
kröfuhafa bera með sér,“ segir Víg-
lundur en hann hefur látið þýða fund-
argerðir nefndarinnar til birtingar og
verða þær birtar á mbl.is
Ekki almennar reglur
Eiríkur Elís Þorláksson, hæsta-
réttarlögmaður og lektor við laga-
deild Háskólans í Reykjavík, hefur
bent á það í umfjöllun sinni í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins að al-
mennar meginreglur kveða á um að
við framsal krafna eigi skuldarinn að
vera eins settur. Skyldur hans eiga í
öllu falli ekki að aukast. Verðmæti
sem tveir kröfuhafar koma sér saman
um hefur almennt séð ekki áhrif á
skuldbindingar skuldara, nema meira
komi til, t.d. að með skuldbindandi
hætti sé því lýst yfir að kröfurnar séu
gefnar eftir í heild eða að hluta gagn-
vart skuldara. „Ekki verður séð að
það hafi verið gert í því tilviki sem hér
um ræðir. Þá verður einnig að hafa í
huga að það verð sem lagt var til
grundvallar við framsalið átti einung-
is að endurspegla með sem nákvæm-
ustum hætti raunverulegt virði þeirra
krafna sem nýju bankarnir myndu
eignast, þ.e. líklegar endurheimtur
þeirra, og þar með virði þeirra eigna
sem teknar voru frá gömlu bönkunum
og greiða bar fyrir,“ segir í umfjöllun
Eiríks en þar bendir hann einnig á að
sú krafa að „afsláttur“ sem reiknaður
er út að hafi átt að skila sér til skuld-
ara standist tæpast.
Hagsmunir kröfuhafa
Víglundur bendir á að með setn-
ingu neyðarlaganna hafi löggjafar-
valdið veitt Fjármálaeftirlitinu,
FME, heimild til að leggja hald á út-
lán og að láta meta þau til raunvirðis
svo þau stæðu undir skuldbindingum
sem verið var að létta af gömlu bönk-
unum, þ.e.a.s. innlánum. Ekkert var
því framselt að sögn Víglundar.
„Ákvörðun FME var frumákvörðun
til endurskoðunar eftir matsferli
Deloitte LLP,“ segir Víglundur og
bendir á að það hafi verið algjör lög-
leysa af þáverandi ríkisstjórn að setja
á laggirnar sérstaka stjórnsýslunefnd
til að endurmeta yfirfærðu lánin í
þeim tilgangi einum að hækka matið.
„Fundargerðirnar staðfesta að starf
nefndarinnar var að friða kröfuhaf-
ana og bæta hag þeirra frá því sem
ákvarðanir FME höfðu leitt til. Það
kemur skýrt fram í fundargerðunum.
Á öðrum fundi nefndarinnar er m.a.
haft eftir Guðmundi Árnasyni, for-
manni nefndarinnar í fjarveru Indr-
iða H. Þorlákssonar, að „ríkið vill
friða kröfuhafa eins og mögulegt er“.
Niðurstaða nefndarstarfsins varð síð-
an á endanum sú að afhenda kröfu-
höfum sjálfsdæmi í meðferð krafn-
anna í nýju bönkunum í stað hinnar
samræmdu aðferðar FME sem
grundvallaðist á jafnræði.“
Gagnrýnir leyndina
Víglundur undrast þöggunina sem
er um störf nefndarinnar og málið í
held og segist ekki skilja hvað stjórn-
völd hafi að fela. „Almenningur á rétt
á að fá að vita hvað fór fram. Það er
engin fundargerð til um fyrsta fund
nefndarinnar, sem gerir grein fyrir
tilgangi hennar. Eingöngu er vísað til
þess í fundargerð 2. fundar að Guð-
mundur Árnason hafi gert grein fyrir
fyrsta fundinum án þess að nokkuð sé
ritað um það. Þá er sérkennilegt að
nefndinni var ekki sett erindisbréf.
Mikil leynd virðist einnig vera yfir 13.
fundi nefndarinnar en af efni 12. og
14. gerðanna má ráða að þá hafi verið
komist að niðurstöðu um ólögmæta
afhendingu bankanna til kröfuhafa,“
segir Víglundur.
Ætlunin að friða kröfuhafa
Víglundur Þorsteinsson hefur látið þýða fundargerðir stýrinefndar síðustu ríkisstjórnar um
samninga við erlenda kröfuhafa til birtingar Undrast þöggun í kringum störf nefndarinnar
Samsett mynd/Eggert
Fundagerðir Vantar fundagerðir af mikilvægum fundum Stýrinefndar rík-
isstjórnarinnar við erlenda kröfuhafa að sögn Víglundar Þorsteinssonar.
Víglundur
Þorsteinsson
Brynjar Níelsson, varaformaður stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar Alþingis, vann skýrslu um það hvort stýri-
hópur þriggja ráðuneyta, sem skipaður var til að ganga
til samninga við erlenda kröfuhafa slitabúa gömlu
bankanna um verðmæti yfirfærða eigna til nýju bank-
anna, hefði farið að lögum við störf sín. Þar segir hann
að ekkert bendi til þess að beitt hafi verið blekkingu
eða svikum til hagsbóta fyrir erlenda kröfuhafa á
kostnað ríkisins eða einstaka skuldara. „Ég hefði sjálf-
ur viljað sjá menn ná því í gegn 2009 að færa lán heim-
ila niður í verðmæti eigna áður en farið var að semja við kröfuhafa en það
var ekki gert. Annað var eðlilegt miðað við aðstæður.“
Ekki óeðlileg vinnubrögð
EKKI BEITT SVIKUM EÐA BLEKKINGUM
Brynjar Níelsson
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
STÓR PILLAÐUR HUMAR KLAUSTURBLEIKJA
LAX
NÝLÖGUÐ HUMARSÚPA
HEITUR MATUR Í HÁDEGINU
GLÆNÝR RAUÐMAGI