Morgunblaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Degi eftir að þýski arkitektinn Frei
Otto lést, 89 ára að aldri, var til-
kynnt að hann hlyti hin virtu Pritz-
ker-arkitektúrverðlaun, hin þekkt-
ustu sem veitt eru í þeim geira. Er
þetta í fyrsta skipti sem látinn arki-
tekt hreppir þau en Otto fékk að
vita í fyrra að verðlaunin væru
hans og segja aðstandendur það
hafa glatt hann mikið.
Frei Otto er þekktastur fyrir að
hafa hannað tjaldþakið yfir ólymp-
íuleikvanginn í München, þar sem
leikarnir voru haldnir árið 1972 og
úrslitaleikur HM í knattspyrnu leik-
inn tveimur árum síðar.
Otto lagði ekki síst áherslu á
hönnun slíkra léttra skjólvirkja og
vann á löngum ferli með mörgum
öðrum snjöllum arkitektum að úr-
lausnum flókinna verkefna.
„Ferill Ottos er fyrirmynd
margra kynslóða arkitekta og áhrif
verka hans mikil,“ segir stjórnar-
maður Pritzker-stofnunarinnar
sem veitir verðlaunin. Þau voru
fyrst veitt árið 1979 og meðal verð-
launahafa má nefna Philip Johnson,
I.M. Pei, Oscar Niemeyer, Frank
Gehry og Shigeru Ban.
Ljósmynd/Atelier Frei Otto Warmbronn
Tjaldþök Otto hannaði hin frægu þök ólympíuleikvanganna í München.
Frei Otto hlýtur
Pritzker-verðlaunin
Verðlaunin kynnt degi eftir andlát
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Verkið fjallar um heilunarferli
konu sem heitir Unnur. Í erfi-
drykkju eiginmanns síns, sem drap
sig úr dugnaði, áttar hún sig á því að
hún veit ekki lengur hver hún er og
að hún hefur ekkert aðdráttarafl
lengur. Hún kynnist síðan öðrum
draumlyndum manni með drama-
tískum afleiðingum. Verkið gerist á
einhvers konar göngudeild þar sem
Unnur finnur leið til bata,“ segir
Elma Stefanía Ágústsdóttir sem fer
með hlutverk Unnar í leikritinu Seg-
ulsvið eftir Sigurð Pálsson í leik-
stjórn Kristínar Jóhannesdóttur
sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kass-
anum í kvöld. Gretar Reynisson
hannar leikmynd, Þórunn María
Jónsdóttir búninga, Halldór Örn
Óskarsson og Magnús Arnar Sig-
urðarson lýsingu, en Úlfur Eldjárn
semur tónlist.
Kristín sterkur leiðtogi
„Unnur leitar í krafta sem eru
Nóttin og Rigningin til að reyna að
lækna sig. Það sem er svo skemmti-
legt við þetta verk er að þetta er
ekki saga manneskju sem verður
geðveikari og geðveikari, heldur
saga manneskju sem er í algjöru
áfalli og nær að læknast og verða
heil. Það er mjög flott hjá höfundi að
skoða söguna með þessum hætti,“
segir Elma Stefanía. Með hlutverk
Næturinnar fer Lilja Nótt Þórarins-
dóttir og Rigninguna leikur Svandís
Dóra Einarsdóttir. Með hlutverk
draumlynda mannsins sem nefnist
Diddi fer Snorri Engilbertsson, en
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Eggert
Þorleifsson leika Systu og Gísla sem
vinna á göngudeildinni.
Spurð hvernig verkið hafi komið
henni fyrir sjónir þegar hún las það
fyrst svarar Elma Stefanía: „Mér
fannst það mjög spennandi og það
hefur verið einstaklega gaman að
rannsaka þetta viðfangsefni í upp-
setningunni,“ segir Elma Stefanía
og tekur fram að sér finnist alltaf
spennandi að takast á við ný íslensk
verk. „Síðan spillir ekki fyrir að Sig-
urður hefur alltaf verið í miklu uppá-
haldi hjá mér. Þegar ég heyrði að
Kristín væri að fara að leikstýra
þessu fannst mér ekki spurning að
vera með. Það er svo skrýtið að þótt
heimur verksins sé mjög óraunveru-
legur og draumkenndur býr verkið
yfir miklum skilningi, sem við náum
vonandi að miðla.“
Að sögn Elmu Stefaníu hefur
samstarfið við leikstjórann verið
sérdeilis lærdómsríkt. „Ég hef lært
mjög mikið af Kristínu, en sam-
starfið hefur verið bæði gefandi og
skemmtilegt. Kristín er alltaf opin
fyrir samræðum, sem er mjög mikill
kostur hjá leikstjórum. Kristín hefur
sem leikstjóri afar sterka og flotta
sýn, en er samt ávallt tilbúin að
hlusta og ræða málin. Hún er mjög
sterkur leiðtogi þannig að maður er
alveg öruggur í hennar höndum.“
Framtíðin óráðin
Elma Stefanía ber meðleikurum
sínum vel söguna. „Eggert og Ólafía
Hrönn eru svo hrikalega fyndin að
ég hef iðulega verið í hláturskasti á
æfingum. Ég held raunar að ég hafi
sjaldan hlegið jafnmikið á einu æf-
ingatímabili. Það er búið að vera
rosalega gaman þó svo að undirtónn
leikritsins sé háalvarlegur.“ Að-
spurð hvort hlutverk Unnar hafi
kallað á rannsóknarvinnu svarar
Elma Stefanía því játandi. „Það er
þó erfitt að benda á eitthvað eitt, því
allt sem þú lest, allt sem þú horfir á í
tengslum við verkið og allar sam-
ræður nýtast manni í sýningunni.
Þetta er bara stöðug leit. Ég hef frá
því ég var í leiklistarnámi við LHÍ
alltaf málað myndir á æfinga-
tímabilinu sem hafa hjálpað mér í
karaktervinnunni. Ég gerði það líka
að þessu sinni, en í fyrsta sinn rataði
myndin mín inn í sjálfa sýninguna,“
segir Elma Stefanía sem hefur síðan
hún útskrifaðist úr LHÍ vorið 2013
verið fastráðin við Þjóðleikhúsið og
þar fengið að kljást við ólík og krefj-
andi hlutverk á borð við Abigail
Williams í Eldrauninni, Herbjörgu
Maríu unga í Konunni við 1000° og
Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki.
Spurð hvað sé framundan hjá
henni segir Elma Stefanía það enn
óráðið. „Ég er mjög þakklát fyrir
þessi flottu, dramatísku og krefjandi
hlutverk sem ég hef fengið að takast
á við hjá Þjóðleikhúsinu. En hvað
framtíðina varðar þá er hún óráðin.
Það er ýmislegt spennandi í farvatn-
inu sem ég er að skoða.“
Þess má að lokum geta að rætt
verður um sýninguna í svokölluðu
leikhúskaffi í Gerðubergi mið-
vikudagskvöldið 25. mars auk þess
sem boðið verður upp á umræður
eftir 6. sýningu hinn 27. mars nk.
Gaman að kljást við nýtt verk
Þjóðleikhúsið frumsýnir Segulsvið eftir Sigurð Pálsson í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur
Ljósmynd/Eddi
Ástarbál Elma Stefanía Ágústsdóttir og Snorri Engilbertsson í hlutverkum sínum sem Unnur og Diddi.
Heil Elma Stefanía og Svandís Dóra
Einarsdóttir sem Unnur og Rigningin.
NÁNARÁWWW.GAP.IS
HEIMAPAKKINN!
SEM BIGGEST LOSER KEPP
ENDUR FENGU MEÐ SÉR HEIM!
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5200200 ·GAP.IS
TAKTUMÁLIN Í ÞÍNARHENDUR
OGÆFÐUHEIMA.