Morgunblaðið - 12.03.2015, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.03.2015, Qupperneq 16
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Mikil vetrar- og útivistarhátíð, Ice- land Winter Games, stendur yfir á Akureyri og nær hámarki á laugar- dag þegar fram fer snjóbrettamót og keppni í skíðafimi (free ski) í Hlíð- arfjalli, þar sem fjöldi erlendra kepp- enda spreytir sig ásamt bestu Ís- lendingunum. Sjá www.iwg.is.    Keppt verður í snjósleðastökki við Glerártorg annað kvöld og í sleðaspyrnu í Hlíðarfjalli á laug- ardag. Til gamans má geta að í kvöld fer fram vasaljósaganga í Hlíðar- fjalli! Fjöldi Akureyringa tók þátt í Vasagöngunni í Svíþjóð á dögunum og gaman að sjá hvort þeir mæta.    Aukafundur verður í bæjar- stjórn Akureyrar í dag að ósk minni- hlutaflokkanna. Á dagskrá verður af- greiðsla skipulagsnefndar vegna húss við Hafnarstræti, sem verið er að gera upp en stefnt var að, skv. miðbæjarskipulagi, að yrði flutt.    Ragnar Sverrisson, félagi í Sam- fylkingunni, gagnrýndi leiðtoga flokksins í bæjarstjórn, Loga Má Einarsson, harðlega á dögunum í grein sem birtist í Akureyri viku- blaði. Krafðist þá afsagnar hans. Í kjölfar þess var farið fram á auka- fundinn, sem hefst kl. 17.    Akureyringar eru ekki vanir að monta sig af veðrinu og ekki verður tekið upp á því hér. Þess er þó vert að geta að meðfylgjandi mynd var tekin í gær …    Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika í Hofi á morgun, föstudag. Þetta er í þriðja sinn sem hljómsveitin leikur í húsinu. Flutt verður sama dagskrá og í Hörpu í Reykjavík í kvöld; verkið EXPO (2009) eftir Finnann Magnus Lind- berg, flautukonsert eftir Spánverj- ann Joaquín Rodrigos þar sem Ás- hildur Haraldsdóttir er einleikari og Sinfónía nr. 1 í e-moll eftir Jean Sibe- lius. Hin finnska Anna-Maria Hels- ing stjórnar Sinfóníunni að þessu sinni.    Opnuð verður sýning á verkum hins kunna þýska myndlistarmanns og Íslandsvinar, Jan Voss, í Lista- safninu á Akureyri á laugardaginn. Voss hefur verið að í áratugi en yf- irlitssýningar hans í gegnum tíðina ku mega telja á fingrum annarrar handar. Myndlistarmönnum þykir því mikill fengur af því að Voss skuli setja upp slíka sýningu nyrðra.    Bubbi Morthens og Dimma halda tónleika á Græna hattinum í kvöld og annað kvöld. Flutt verða lög af plötu Utangarðsmanna, Geislavirkir, og Lily Marlene, plötu Das Kapital.    Hljómsveitin Nýdönsk heldur tvenna tónleika á Græna hattinum á laugardagskvöldið.    Áhugamönnum um leiklist ætti ekki að leiðast þessa dagana. LA sýnir ævintýrið um Lísu í Undra- landi og í Freyvangsleikhúsinu var Fiðlarinn á þakinu frumsýndur um síðustu helgi. Ólíkar sýningar en báðar bráðskemmtilegar. Morgunblaðið/Skapti Vetur Risastór snjókarl neðan við Samkomuhúsið minnir á vetrar- og útivistarhátíðina IWG sem lýkur um helgina. List í miðbæ og upp til fjalla 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Suðurstrandarvegur hefur bjargað oft í vetur, bæði okkur og öðrum,“ segir Kjartan Ólafsson, fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Sterna, sem stendur fyrir hópferð- um með ferðafólk, meðal annars um Gullna hringinn. Athygli vakti hvað Suðurstrand- arvegur virtist lítið ekinn í fyrradag þótt Hellisheiði og Þrengsli hefðu lokast vegna óveðurs. Fólk safnaðist upp beggja vegna við heiðina, meðal annars rútufarþegar í Hveragerði. Opinn allan daginn Suðurstrandarvegur var opinn allan daginn. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þegar vegir lokist eigi þjón- usta Vegagerðarinnar að færast yfir á aðra opna vegi, í þessu tilviki Suð- urstrandarveg. Hann tekur fram að vegurinn sé aðeins mokaður tvisvar í viku og því megi búast við að klaki safnist upp og hálka sé á veginum. Aðstæður voru þannig í fyrradag að Reykjanesbrautin var lokuð en fram eftir degi var Krísuvíkurleiðin til Hafnarfjarðar opin. „Við miðum við að fara Grindavíkurveg út á Reykjanesbraut. Við förum ekki með farþega inn á veg sem ekki er mokaður, eins og Krísuvíkurleið,“ segir Kjartan Ólafsson en hluti veg- arins frá Krísuvík til Hafnarfjarðar er aðeins mokaður tvisvar í viku. Aflýstu öllum ferðum Veturinn hefur verið einstaklega erfiður, bæði fyrir Vegagerðina og ferðaþjónustufyrirtækin. Í fyrradag var til dæmis fjöldi erlendra ferða- manna í vandræðum á Gullna hringnum. Dæmi voru um fastar rútur. Þá voru margir ferðamenn á bílaleigubílum í erfiðleikum, fólk sem kannski hefur aldrei lent í slík- um aðstæðum áður og kann ekki á þær. „Við aflýstum öllum ferðum, eins og við gerum við slíkar aðstæður. Það var augljóst á mánudagskvöld að brjálað veður yrði á þriðjudag. Við fellum frekar niður ferðir en að fara með fólk í einhverja óvissu, það fylgir því mikil ábyrgð að aka með farþega,“ segir Kjartan. Hann seg- ist byrjaður að fylgjast með veð- urspánni fyrir föstudag og laugar- dag enda geti orðið enn verri hvellur þá daga. Suðurstrandar- vegur oft bjargað  Fáir muna eftir Suðurstrandarvegi þegar Hellisheiði og Þrengsli lokast Morgunblaðið/Golli Stormur Hætt er við að ferðamenn geti áfram átt erfitt með að fóta sig. Áfram stormar » Veðurstofan spáir áframhald- andi illviðri. » Gert er ráð fyrir að hann gangi í suðaustan storm seinni- partinn á morgun, föstudag, með rigningu, einkum sunn- anlands og vestan. Hlýnar í veðri. » Á sunnudag gengur aftur í suðaustan hvassviðri eða storm með rigningu um allt land. Vorheftið 2015 komið út Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og menningu — hefur nú komið út í tíu ár í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar. Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári — vetur, sumar, vor og haust. Tímaritið fæst í lausasölu í helstu bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum, en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr. Áskriftarsími: 698-9140. Ugla Garnaveiki hefur verið staðfest í sauðfé á bæ í Skútustaða- hreppi sem er í Skjálfandahólfi í Mývatnssveit. Þetta kom fram í tilkynningu frá Matvælastofnun í gær. Bóndinn greindi einkenni í tveimur kindum og kallaði til dýra- lækni sem sendi í kjölfarið sýni á Keldur og var veikin staðfest í lið- inni viku. Garnaveiki greindist síð- ast í Skútustaðahreppi árið 2013. Garnaveiki er tilkynning- arskyldur sjúkdómur af völdum bakteríunnar Mycobacterium pa- ratuberculosis sem er náskyld berklabakteríunni. Smitið berst með saur en bakterían leggst eink- um á slímhúð mjógirnis þar sem hún veldur langvinnum bólgum. Einkennin koma fram rúmlega tveimur árum eftir smit og lýsa sér helst í vanþrifum og skitu. Veikin getur í sumum tilfellum dregið kindur til dauða. Þá er þekkt að heilbrigðir smitberar viðhaldi sjúk- dómnum á sauðfjárbúum. Engin lækning er til staðar við garnaveiki. Hægt er að bólusetja gegn sjúkdómnum en skylt er, sam- kvæmt reglugerð um garnaveiki og varnir gegn henni, að bólusetja fé á þeim svæðum landsins þar sem hún er landlæg. Einnig er óheimilt að flytja sauðfé, geitur eða nautgripi til lífs frá garnaveikibæjum í tíu ár frá síðustu greiningu sjúkdómsins. Garnaveiki í sauðfé í Mývatnssveit

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.