Morgunblaðið - 12.03.2015, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Þjónusta
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í
sölu og þjónustu á
vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum og
stórum vogum
Hlíðasmára 14 | S: 588 2122
www.eltak.is
Ýmislegt
Palacký University í Olomouc í
Tékklandi heldur inntökupróf í
tannlæknisfræði og læknisfræði
20. maí nk. í Reykjavík. Við
útskrift frá skólanum fá nemendur
full starfsréttindi í EB og EEA.
Einnig í flestum öðrum löndum.
Olomouc er 110 þúsund manna
háskólabær í austurhluta
Tékklands. 20.000 nemar eru í
ýmsum fögum í Palacký
University.
www.medicineinolomouc.com og
www.upol.cz
Uppl. í s. 5444333 og s. 8201071
kaldasel@islandia.is
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Síðan 1956
Mikið úrval • Margir litir
Áður Nú
70x100 9.995 7.995
70x150 15.900 12.900
70x200 19.900 15.900
Plastmottur
Ný sending
Ný munstur
Tilboð
!!"#$
Vandaðir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Litir: grænt og ljósbrúnt.
Verð: 22.300.
Vandaðir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Verð: 17.900.
Vandaðir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Stærðir: 36-40. Verð:
22.500.
Vandaðir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Stærðir: 36-41 Verð:
19.985.
Vandaðir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Stærðir: 27-42. Verð:
17.785.
Vandaðir dömuskór úr mjúku leðri,
fóðraðir. Stærðir: 37-42 Verð:
17.785.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
NÝR RAFMAGNSBÍLL
NISSAN LEAF TEKNA
Árg.2015,lúxus útfærsla - leður,
bakkmyndavél ofl, sjálfskiptur.
Er á staðnum. Verð 4.590.000.
Rnr.126469.
Bílalíf - Bílasala
Sími 562 1717
Smáauglýsingar 569 1100
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Viðhalds- og málningarvinna
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð
góð umgengni. Tilboð/ tímavinna.
Lítið Mál ehf. Sigurður GSM:
896 5758, malid@internet.is.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
✝ TheódóraSverrisdóttir
Thoroddsen fædd-
ist á Akureyri 27.
október 1929. Hún
lést 10. febrúar
2015.
Foreldrar Theó-
dóru voru Sverrir
Skúlason Thorodd-
sen, f. 1904, d.
1982, og kona hans
Helga Laufey Eyj-
ólfsdóttir, f. 1905, d. 1983.
Theódóra var næstelsta barn
þeirra hjóna. Systkini hennar
eru Katrín, f. 1928, d. 2012,
Guðmundur Hrafn, f. 1936, d.
sama ár, Guðmundur Hrafn, f.
1937, Kristín Ólína, f. 1940, d.
2013 og Helga Ragnhildur, f.
1944. Eiginmaður Theódóru var
Gísli Halldórsson, f. 1927, d.
1998. Börn þeirra eru: 1. Theó-
dóra, f. 1950, maki Matthías
Halldórsson. Dóttir þeirra er
Theódóra, f. 1979, maki Atli
Rúnar Sigurþórsson. Dóttir
þeirra er Arney
Lilja Atladóttir, f.
2013. 2. Halldór, f.
1952, d. 2013. Hann
kvæntist Steinunni
Þórarinsdóttur, f.
1955. Þau skildu.
Hann kvæntist
Önnu Guðrúnu
Björnsdóttur, f.
1956. Þau skildu.
Börn þeirra eru
Björn, f. 1983, og
Valgerður, f. 1985. Eftirlifandi
eiginkona Halldórs er Sóley
Stefánsdóttir, f. 1973. Sonur
hennar frá fyrra sambandi er
Andri Sigurður Haraldsson, f.
1997. 3. Sverrir, f. 1957, maki
Kristbjörg María Bl. Birg-
isdóttir. Synir þeirra eru Gísli,
f. 1983, og Ragnar, f. 1989.
Börn Gísla eru Tori Lynn, f.
2005 og Brandur Óli, f. 2007.
Sambýliskona Ragnars er Halla
Victorsdóttir, f. 1989.
Útför Theódóru hefur farið
fram.
Amma Dóda er dáin.
Svo einstakur karakter var
hún að ég get ekki annað en
skrifað nokkur orð til minningar
um hana. Amma lét nú ekkert
sérstaklega mikið með mig þeg-
ar ég var lítil. Ég á langflestar
minningarnar af mér með afa að
sýsla í skúrnum, í leikhúsinu
eða að borða sviðasultu undir
notalegu barði. Við amma urð-
um góðar vinkonur þegar ég var
orðin stálpaðri og frá þeim tíma
og fram á fullorðinsár á ég
margar góðar minningar af
samverustundum okkar.
Dýrmætustu stundirnar okk-
ar ömmu tengjast ferðalögum
um Ísland og til útlanda. Mikið
er ég heppin að hafa erft ferða-
bakteríuna frá ömmu Dódu og
afa Gísla. Amma bauð mér oft
með í ferðir með gönguhópnum
sínum, Náttúrufræðifélagi Ís-
lands eða öðrum góðum félags-
skap. Þar kviknaði meðal ann-
ars áhugi minn á náttúrufræði,
sem ég hef svo lifað og hrærst í.
Þeir eru ófáir skálarnir á há-
lendi Íslands sem við amma höf-
um heimsótt saman. Ég minnist
þó sérstaklega vikunnar sem við
dvöldum í tjaldi í Vík í Mýrdal í
slagveðursrigningu og hávaða-
roki að gæða okkur á geimfara-
fæðinu sem amma tók með í
nesti (hrökkbrauð og kæfu í
túpum) og soðnu vatni með
viskílögg og kandís fyrir hátt-
inn. Á meðan naut restin af
ferðahópnum lífsins á hótelher-
bergjum í nágrenninu. Ekki
leiddist okkur ömmu þó vistin
því svona vildum við hafa þetta.
Þar átti sannarlega við hið sí-
endurtekna orðatiltæki ömmu
Dódu: „Það er alltaf eitthvað
veður“.
Það eru mörg orðatiltækin
sem munu lifa áfram eftir að
amma Dóda hefur kvatt. Þar á
meðal má nefna: „Bara nógu
mikið vesen“ og „það þýðir ekki
að bjóða mér neitt, ég þigg allt“.
Það er einmitt þetta hugarfar
sem varð kveikjan að enn fleiri
ferðalögum okkar Theódóranna.
Hvort sem ég bjó í Hrauneyj-
um, Búrfelli, Húsavík eða Eng-
landi. Amma kom í heimsókn.
Hún vílaði til dæmis ekki fyrir
sér að rúnta með mér til Ak-
ureyrar einn góðan veðurdag og
fljúga svo beinustu leið heim.
Amma var nefnilega ekki
mikið fyrir að dvelja lengi á
sama stað, hvað þá að tala
löngum stundum í símann. Ég
gleymi því ekki þegar hún hljóp
með símtólið til afa eins og lífið
væri að leysa svo hún þyrfti nú
ekki að spjalla of lengi við
manneskjuna á hinum endan-
um. Mér skilst á vinkonum mín-
um að ég hafi að einhverju leyti
erft þennan æðibunugang. Ég
hef oft hugsað: „ó nei, ég er orð-
in eins og amma Dóda“. En þeg-
ar ég hugsa til baka, til þess-
arar skemmtilegu konu sem
kenndi mér svo margt og hafði
svo mótandi áhrif á mig, þá er
það svo sannarlega ekki leiðum
að líkjast.
Theódóra Matthíasdóttir
(Theó).
Theódóra
Thoroddsen
Elsku amma í
sveitinni.
Það er alltaf sárt
að kveðja en ég er
þakklát fyrir hvað
þú áttir langt og gott líf og
fékkst að fara eftir stutt veik-
indi. Þú gafst mér margt og
varst einstök í alla staði.
Seinasti dagurinn sem við
áttum saman á spítalanum, áður
en þú veiktist meira, var mér
dýrmætur. Þú spjallaðir við
bumbubúann okkar og áttir
skemmtilega stund með litlu
skottunni okkar, Valey Rún,
sem klifraði upp í rúm til þín og
lagðist hjá þér.
Seinustu jól eru mér líka of-
Guðrún Jónsdóttir
✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist
26. desember 1923.
Hún lést 18. febr-
úar 2015. Útför
Guðrúnar fór fram
27. febrúar 2015.
arlega í huga. Ég
er glöð að þú
treystir þér í sveit-
ina og áttir með
okkur yndislegt að-
fangadagskvöld.
Ég heyrði það líka
á þér hversu
ánægð þú varst
með kvöldið,
ánægð að geta eytt
jólunum heima.
Ég á alltaf eftir
að minnast þess hversu gott var
að koma í sveitina til þín. Við
sungum, lékum okkur, bökuð-
um, elduðum, töluðum við blóm-
álfana í gróðurhúsinu, vökvuð-
um rósirnar og gæddum okkur
á vínberjum beint af trénu á
haustin.
Þú skildir eftir gott hjarta í
húsinu okkar og það er ánægju-
legt að halda uppi minningu
þinni með rósunum og vínberja-
trénu í gróðurhúsinu.
Eyrún Jóna Reynisdóttir.