Morgunblaðið - 12.03.2015, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Þau eru víða vandamálin,brotnu heimilin, afbrotin.Sumir ná að brjótast útúr óláninu og feta hinn
góða veg en aðrir eru fastir í fen-
inu, sjá enga framtíð í því sem
telst eðlilegt líf og halda sig á slóð
afbrotanna. Spennusagan Dansað
við björninn eftir Roslund og
Thunberg varpar ljósi á þetta um-
hverfi og höfundarnir leika sér
með mismunandi byrði sem ein-
staklingarnir bera.
Dansað við björninn er fyrst og
fremst saga þriggja bræðra og
vinar þeirra í Svíþjóð. Þeir leiðast
út á afbrotabrautina og brotum
þeirra er lýst af mikilli nákvæmni
í bland við tog-
streitu innan
fjölskyldunnar.
Við lesturinn má
ætla að skrifin
séu ekki aðeins
til þess að koma
spennandi sögu
á framfæri held-
ur ekki síður
með kvikmynd í huga.
Bókin er mjög vel skrifuð og
spennandi en lokin snemma fyr-
irsjáanleg og í raun er sagan alltof
löng, um 700 blaðsíður. Persónu-
lýsingar eru góðar og samtölin
sérlega trúverðug. Sálarástandi
helstu persóna er vel lýst, draum-
um þeirra og þrám, en einnig
kemur berlega í ljós hvað þeir
eiga erfitt með að ná fótfestu í líf-
inu.
Sagan byggist á sönnum atburð-
um. Það vekur ýmsar spurningar
um öryggi og öryggisgæslu, ekki
aðeins í Svíþjóð heldur einnig þar
sem afbrot, eins og hér er lýst,
geta gerst. Líka á Íslandi. Það
gerir áhugaverða sögu enn áhuga-
verðari.
Morgunblaðið/RAX
Höfundarnir Roslund og Thunberg, höfundar Dansað við björninn.
Harðsvíraðir glæpa-
menn á fleygiferð
Spennusaga
Dansað við björninn bbbbn
Eftir Anders Roslund og Stefan Thun-
berg. Íslensk þýðing: Halla Kjart-
ansdóttir. Kilja. 697 bls. Veröld 2015.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
að himnaríki, eins og því er lýst á
vef kvikmyndahússins. Jack fjallar
um ungan dreng úr fátækri fjöl-
skyldu sem glímir við ýmsa erf-
iðleika og er kvikmyndin sögð
áreynslulaus og fordómalaus saga
um kjark og ábyrgð. Das finstere
Tal er austurrísk-þýskur vestri og
framlag Austurríkis til Óskarsverð-
launanna í ár. Dularfullur knapi
kemur að litlum bæ í Alpafjöllum.
Enginn veit hver hann er eða hvaða
erindi hann á í bæinn og eru bæj-
arbúar ekki sáttir við veru þessa
ókunnuga manns í bænum.
Frekari upplýsingar um mynd-
irnar og sýningatíma má finna á
bioparadis.is. helgisnaer@mbl.is
Opnunarmyndin Die geliebten Schwestern er byggð á ævi Friedrichs
Schillers (1759-1805) og segir af systrum sem voru ástfangnar af skáldinu.
Ástir húshjálpar Í Das Zimmermädchen Lynn fjallar um húshjálpina Lynn
sem fellur fyrir Chiöru sem er drottnunargjörn ung kona.
Heimanám, stuttmynd eftir tvo unga
kvikmyndagerðarmenn, Birni Jón
Sigurðsson og Elmar Þórarinsson,
var valin í keppni á stuttmyndahá-
tíðinni Courts des Ilês sem hófst 9.
mars sl. á Tahítí og lýkur á sunnu-
daginn. Myndin keppir í flokki
fyrstu mynda leikstjóra og er önnur
íslensk mynd einnig í honum, Eylien
eftir Gunnar Gunnarsson. Í flokki
stuttra teiknimynda er svo mynd
Einars Baldvins Árnasonar, The
Pride of Strathmoor.
146 myndir komust í forval hátíð-
arinnar og á endanum voru 47
valdar úr, þar af 10 í flokk fyrstu
mynda leikstjóra og 11 í flokk
stuttra teiknimynda.
Heimanám fjallar um strák sem
reynir að læra heima en á erfitt með
að einbeita sér og ímyndunarafl
hans gerir penna að sígarettu einka-
spæjara, pappírskúla verður að
körfubolta og sjávarháski verður í
vatnsglasi, að því er fram kemur í
tilkynningu um keppnina. Heima-
nám vann stuttmyndahátíð Kópa-
vogs, Gullmolann, sl. sumar og voru
hátíðin og myndin hluti af verkefni
Elmars og Birnis í Skapandi
sumarstörfum Kópavogsbæjar.
Birnir er 21 árs og Elmar 22 ára.
Íslenskar myndir á Courts des Ilês
Ímyndunarafl Elmar Þóarinsson í stuttmynd þeirra Birnis, Heimanámi.
Keppa í flokki
fyrstu stuttmynda
leikstjóra
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir
í fötum
Ný sending af Bertoni jakkafötum
fyrir töffara á öllum aldri
herraskór
Oban
Tanton
Taddley
Besta leikkona í
aðalhlutverki
Ertu Duff
eða ertu töff?
www.laugarasbio.is
Sími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxus