Morgunblaðið - 12.03.2015, Side 44
FIMMTUDAGUR 12. MARS 71. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Eiginkonan fylgir með í …
2. Kom í heiminn í sigurkufli
3. Biðu í flugvélunum í átta tíma
4. Böðullinn um 12 ára
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Mottusafnari dagsins, Steinar
Bjarki Magnússon, greindist með
æxli í eista árið 2014. Ef ekki væri
fyrir Mottumars hefði hann ekki átt-
að sig á því. Steinar er mottusafnari
nr. 1.186. Fylgstu með honum og fleiri
söfnurum á mottumars.is.
Hefði ekki gert sér
grein fyrir meininu
Helgi Þorgils
Friðjónsson er í
góðum hópi sjö
annarra myndlist-
armanna á sýn-
ingu sem verður
opnuð í safninu
Museo Civico di
Sansepolcro á
Ítalíu um helgina.
Sýningarstjórinn Demetrio Paparoni
stillir þar meðal annars upp verkum
eftir hina kunnu Francesco Clemente,
Tony Oursler og Mimmo Paladino.
Helgi Þorgils og fleiri
meistarar á Ítalíu
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti
heldur tónleika í Eldborg í Hörpu 16.
júní nk. og verða það umfangsmestu
tónleikar hans á Íslandi til þessa. Ás-
geir mun koma fram með
hljómsveit og blásara-
og strengjasveit. Ásgeir
er farinn að semja lög
fyrir næstu plötu og
fara upptökur fram í
sumar. Stefnt er að
því að gefa plöt-
una út í mars
2016.
Ásgeir heldur
tónleika í Eldborg
Á föstudag Vestlæg átt og víða lítilsháttar snjókoma fyrir hádegi
en gengur í suðaustanstorm seinni partinn með rigningu, einkum á
Suður- og Vesturlandi. Hiti 2 til 8 stig um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-15 m/s og slydda eða rigning,
en hægari á Vesturlandi. Suðaustan 13-20 m/s og talsverð rigning
á Suðausturlandi. 15-23 m/s á Suðurlandi seint í kvöld. Hlýnar.
VEÐUR
„Vonandi tekst okkur að
styrkja liðið eitthvað en
það er alveg ljóst að við er-
um ekki á leið með opið
tékkhefti í kapphlaup um
leikmenn annarra félaga.
Við ætlum að byggja upp lið-
ið og félagið til lengri tíma
án þess að setja það á hlið-
ina,“ segir Viðar Örn Haf-
steinsson, spilandi þjálfari
Hattar á Egilsstöðum, sem
leikur í úrvalsdeild karla í
körfubolta næsta vetur. »4
Setjum ekki
félagið á hliðina
Mikil barátta er framundan um
sæti í úrslitakeppninni í Dom-
inos-deild kvenna í körfuknatt-
leik eftir úrslit gærkvöldsins en
þá var heil umferð leikin.
Haukar unnu bikarmeist-
ara Grindavíkur í
Grindavík og nú eru
Valur, Grindavík og
Haukar með jafn
mörg stig í 3.-5.
sæti. Fjögur efstu
liðin komast í úr-
slitakeppnina. »2
Barátta framundan
á milli þriggja liða
„Við mættum í dag klárlega best spil-
andi liðinu á þessu móti, og auðvitað
ríkjandi heimsmeisturum, og það
verður að segjast eins og er að við
vorum skrefinu á eftir þeim að flestu
leyti,“ sagði Sara Björk Gunnars-
dóttir, landsliðskona í knattspyrnu,
við Morgunblaðið eftir 0:2-ósigurinn
gegn Japan í leiknum um 9. sæti Al-
garve-bikarsins í Portúgal í gær. »3
Skrefinu á eftir ríkjandi
heimsmeisturum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Pétur Haraldsson véltæknifræð-
ingur, sem verður áttræður í haust,
hefur hjólað nær daglega í vinnuna í
um áratug en hefur orðið að nota bíl-
inn undanfarna rúma þrjá mánuði
vegna veðurs. „Ég hef ekkert komist
á hjólið síðan löngu fyrir jól og man
ekki eftir svona löngu stoppi. Þetta
er þræl-andskoti fúlt,“ segir hann.
Fyrir um áratug tók Pétur upp
fyrri iðju og byrjaði að hjóla daglega
í vinnuna nema hvað hann hjólar
ekki í hálku. „Ég hef dottið tvisvar á
hausinn og nenni ekki að standa í því
aftur,“ segir hann.
„Ég hjólaði mikið þegar ég var
strákur,“ heldur Pétur áfram. Hann
flutti með fjölskyldunni frá Vest-
mannaeyjum og bjuggu þau fyrst í
Norðurmýrinni. Þá byrjaði hann í
Melaskólanum og hjólaði í skólann.
„Ég er gamalreyndur hjólagaur,“
segir hann. Bætir við að gagnfræða-
skólinn hafi verið í göngufæri og í
raun hafi hann að mestu lagt hjólið á
hilluna þar til hann fór í nám í Dan-
mörku. „Þar voru vegalengdirnar
talsvert lengri en hérna,“ rifjar hann
upp.
Eins og belja á svelli
Pétur tekur daginn snemma og
leggur af stað í vinnuna upp úr
klukkan sjö á morgnana. Hann er
það vel í sveit settur að hann þarf
ekki að hjóla á götum í vinnuna held-
ur heldur sig alfarið á hjólastígum.
„Ég hjóla aldrei í umferðinni og það
er mikill munur,“ segir hann.
Líðandi vetur hefur verið erfiður
fyrir alla sem eru á ferðinni. Snjó-
koma hefur verið nokkur, og þar
sem hreinsun gatna og stíga hefur
ekki verið upp á það besta hafa
margir átt erfitt með að komast leið-
ar sinnar. „Þetta hefur verið djöf-
ullegt,“ segir Pétur og bendir á að
ekki sé hægt að treysta því að borið
sé salt eða sandur á stígana. Hálkan
sé eitt og svo séu svo mjó dekk á
hjóli hans að ekki sé hægt að fá þau
negld. „Það hefur hvarflað að mér að
skipta og fá mér hjól með breiðari
dekkjum, því í hálkunni er maður
eins og belja á svelli.“
Ætti að banna
Hjólakappinn áréttar að aðeins
hálkan sé til trafala. „Rok og rigning
skipta mig engu máli, eru bara
hressandi. Maður lendir í mótbyr
öðru hverju en líka meðbyr.“
Leiðindaveður undanfarna mán-
uði hefur ekki sett Pétur út af laginu
og hann sér til sólar. „Það ætti að
banna svona óþverra en ég bíð
áfram og þetta hlýtur að lagast um
leið og lóan kemur, eftir um hálfan
mánuð.“
Lagast þegar lóan kemur
Nær áttræður
gamalreyndur
hjólagaur
Morgunblaðið/Golli
Löng bið Pétur Haraldsson hefur beðið frá því fyrir jól eftir að komast á hjólið, en hefur ekki gefið upp alla von.
Pétur Haraldsson býr í Kópavogi
og vinnur í Garðabæ, gerir við
kælitæki hjá Kælismiðjunni Frosti
ehf. Lengst af hefur hann hjólað á
„venjulegu“ hjóli og látið vel af,
ekki síst í Danmörku. Hann fékk
sér hjól með hjálparvél og segir að
það sé töluverður munur að hjóla á
því og venjulegu hjóli án vélar.
„Maður svitnar mjög lítið eða ekk-
ert,“ segir hann og bætir við að
hann sé einnig mun fljótari í förum
á rafmagnshjólinu en venjulegu
hjóli. Hann sé til dæmis aðeins um
10 mínútur að hjóla í vinnuna.
Hann er ekki forfallinn hjóla-
maður, á sinn bíl og notar hann
eftir þörfum. Hefur reyndar þurft
að treysta á hann lengst af í vetur,
en er farið að leiðast biðin eftir því
að geta hjólað á ný.
„Ég fór allt á bíl í mörg ár, en hef
notað hjólið með hléum og nú
samfellt síðan um 2005, þegar ég
byrjaði að hjóla aftur til þess að
auka hreyfinguna.“
Allt fyrir hreyfinguna
PÉTUR HARALDSSON HJÓLAR ÚR KÓPAVOGI Í GARÐABÆ