Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2015
Greipur Gíslason, verkefnastjóri
hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands,
tók floppídisk til um morguninn
og notaði innvolsið úr honum til
að horfa á sólmyrkvann.
Uppseld gleraugu
stöðvuðu engan
Læknar á þvagfæraskurðlækningadeild Landspítalans tíndu til röntgenmyndir
af sjúklingum og horfðu í gegnum þær á sólmyrkvann af svölum spítalans.
Lengst til hægri stendur Rut Skúladóttir deildarlæknir og þá Árni Stefán
Leifsson og Eiríkur Guðmundsson þvagfæraskurðlæknar.
Nágranni Ólafar Hugrúnar Valdi-
marsdóttur leikkonu, Hafsteinn
Kröyer, kom henni til bjargar og
lánaði henni logsuðugrímuna sína.
Rithöfundurinn Þórdís Gísladóttir
notaði gleraugu sem hún notaði í
barnaskóla, á þeim tíma þegar „náföl
börn“ voru send í ljósameðferð eins
og hún orðar það sjálf.
Ásta Guðrún Jóhannsdóttir
viðskiptafræðingur reyndi að
bjarga sér með margföldum
sólgleraugum.
Leikarinn Gói, Guðjón Davíð Karlsson,
notaði sótað gler eins og föðuramma
hans, Magnea Þorkelsdóttir, útbjó fyrir
son sinn, Karl Sigurbjörnsson fyrrverandi
biskup, þá sjö ára, fyrir sólmyrkvann 1954.
ÞEGAR HLÍFÐARGLERAUGU FYRIR SÓLMYRKVANN
SELDUST UPP REDDAÐI ÞJÓÐIN SÉR MEÐ HEIMA-
TILBÚNUM RÁÐUM. HÉR ER BROT AF ÞVÍ BESTA.
Vettvangur
Ætli einhver hér á landi sé mjög áframum að sett verði lög um heiti textíl-trefja og viðkomandi merkimiða og
merkingar varðandi trefjasamsetningu textíl-
vara? Nei. Ætli slík lög séu nauðsynleg til
varnar almannaheill? Nei. Ætli einhver á Ítal-
íu, Írlandi eða í öðru Evrópulandi hafi misst
svefn yfir því að hér á landi séu ekki í gildi lög
um þetta? Nei. Samt var íslenska ríkinu stefnt
fyrir EFTA-dómstólnum um daginn vegna
þessa, og situr uppi með málskostnaðarreikn-
ing vegna dómsmálsins sem í raun var tilefn-
islaus þar sem Ísland viðurkenndi strax sök.
Talningarmenn í Brussel hafa miklar
áhyggjur af því að Ísland innleiði ekki nógu
hratt regluverk ESB. Við verðum bara að
standa okkur betur, segja embættismennirnir
hvetjandi rétt eins og um sé að ræða Evr-
ópumeistaramót í innleiðingu. Það gleymist
hins vegar að nefna að oft er málefnaleg skýr-
ing á töfinni. Það kann að koma í ljós, löngu
eftir að ESB regla er afgreidd af embættis-
mönnum í Sameiginlegu EES nefndinni (sem
er nokkurs konar anddyri sem allar ESB regl-
ur þurfa að fara í gegnum áður en þær verða
lögfestar hér á landi) að reglan kallar á um-
talsverðar breytingar á íslenskum lögum og
þeir sem reglan varðar þurfa lengri tíma til
aðlögunar. Þá kunna sumar ESB-gerðir að
vera svo ómerkilegar að eðlilegt er vinna við
innleiðingu þerra tefji ekki mikilvægari vinnu
hér á landi. Svo eru til gerðir sem embættis-
menn Íslands hefðu átt að koma í veg fyrir að
þyrfti yfirleitt að innleiða hér á landi. Fullt af
gerðum ESB er þess eðlis að þær eiga ekki
nokkurt erindi við íslenskan veruleika. Innleið-
ing þeirra hér á landi væri eintóm sýndar-
mennska. Sem dæmi má nefna nýja tilskipun
ESB sem hækkar viðmiðunarfjárhæð trygg-
ingarverndar bankainnistæðna. Ísland, sem
gat ekki í bankahruninu uppfyllt skyldu um að
tryggja innistæður að lágmarki 20 þúsund evr-
ur mun innan skamms innleiða hina nýju til-
skipun sem kveður á um 100 þúsund evra lág-
markstryggingarvernd!
Innleiðingarhalli er ekki áhyggjuefni heldur
miklu frekar hin stjórnlausa innleiðing. Rétti-
lega hefur verið bent á að Ísland hefur á að
skipa færri embættismönnum í Brussel og í
ráðuneytum heldur en til dæmis Noregur. Er
sanngjarnt að búast við öðru? Ísland gæti
seint staðið jafnfætis Noregi hvað umfang
stjórnsýslu varðar, sem betur fer. Hins vegar
er fyrir löngu ljóst að áherslur íslenskra emb-
ættismanna í EES samstarfinu þurfa að breyt-
ast. Ísland fullgilti EES-samninginn ekki
vegna samstarfsins sem slíks heldur vegna
hagsmuna þjóðarinnar. Fyrst og fremst þarf
að gæta að þeim hagsmunum. Keppnisskapið í
samstarfinu má ekki draga úr því hlutverki
embættismannanna.
Evrópumótið í innleiðingu
* Látum kappið ekki berafegurðina ofurliði. Ein-kunnarorð Valsmanna eiga
vel við í EES-samstarfinu.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridur.is
Valentína Björnsdóttir, eigandi
Krúsku og Móður náttúru, átti án efa
frumlegustu en um leið gagnslausustu
sólmyrkvunarhlíf gærdagsins en hún
batt kínakál utan um höfuðið á sér.
Guðni Einarsson, blaðamaður Morg-
unblaðsins, límdi framköllunarfilmur
framan á sólgleraugun sín og horfði á
sólmyrkvann úr Hádegismóum.