Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Side 17
* Þú þarft að skilja fortíðinaeftir í fortíðinni 22.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Falleg handskrifuð bréf Hvar og hvenær? Borgarbókasafninu, Grófinni 1, sunnudag kl. 15-16. Nánar: Í smiðj- unni á bókasafninu verður allt efni til staðar fyrir fjölskyldur til þess að skrifa sendibréf til ástvina. Slík bréf eru fátíð en afar sjarmerandi. Þegar sendibréfið er tilbúið fær hver og einn frímerki og mun pósturinn sjá um að koma því til skila en póstkassi verður á staðnum. Tímon og Púmba Lára Björg Björnsdóttir, ráðgjafi hjá KOM almannatengslum og rithöf- undur, og Tryggvi Tryggvason við- skiptafræðingur eiga tvo syni, Björn Óttar þrettán ára og Ólaf Benedikt þriggja ára. Fjölskyldan býr í Vestur- bæ Reykjavíkur og segir Lára að yngsti fjölskyldumeðlimurinn stjórni hvað sé horft á þegar menn skelli sér í sófagláp. Þátturinn sem allir geta horft á? Nýj- asta æðið á heimilinu er Unbreakable Kimmy Schmidt. Þættirnir fjalla um þrítuga konu sem flytur til New York- borgar eftir að hafa verið föst í neð- anjarðarbyrgi frá því hún var 15 ára. Tina Fey úr 30 Rock bjó þættina til og framleiðir þá líka. Þeir eru stórkostleg skemmtun og hellaðri en 30 Rock ef hægt er. Ef litla þriggja ára dýrið er ennþá vakandi þá ræður hann auðvitað og allir horfa á Toy Story. Eða Madagasc- ar. Nú eða Nemo. Og já, við kunnum myndirnar utan að. Og nei, þetta verður aldrei þreytt (ég er að ljúga). Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Ekki séns. Þess vegna er eldamennskan á heimilinu oft mjög mikið vesen, drengirnir fá hvor sinn réttinn og svo er eitthvað annað fyrir okkur hjónin. Og veistu hvað? Ég er ekki með uppþvottavél. Eg vaska allt upp. Alltaf. Eins og ekkert sé eðlilegra. Þú veist hvernig fólk lætur sem fer í útilegur eða í bústaðinn og er bara: „Ó, það var engin uppþvottavél, varð að vaska allt upp eins og í gamla daga … hehe.“ Þannig er líf mitt alltaf. Skemmtilegast að gera saman? Okkur finnst ágætt að rölta út á Kaffitár á Þjóð- minjasafninu um helgar. Sérstaklega þegar Birna Anna, systir mín sem býr í New York, er á landinu með litlu dætur sínar tvær (þær heita báðar í höfuðið á mér) og manni sínum. Þá hittumst við nánast undantekningarlaust á Kaffitári með foreldrum okkar og öllu barnastóðinu. Við þömbum þrefalda latte, borðum ristað brauð og kvörtum í foreldrum okkar yfir því hvað við erum þreyttar og bugaðar eftir slitróttan nætursvefn út af ungbörnunum (lúmsk leið til að fá pössun sama dag og/eða kvöld og málið dautt). Borðið þið morgunmat saman? Þú hlýtur að vera að grínast. Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Við reynum að vera ekki hvert fyrir öðru. Er komið plan fyrir sumarið? Nei. Eins mikið skipulagsfrík og ég get nú verið þá hef ég aldrei planað sumarfrí með löngum fyrirvara. Það er eitthvað þrúg- andi við að þurfa að hugsa um flugferð marga mánuði fram í tímann. Og allt sem gæti farið úrskeiðis líka. Síðan fær maður líka svo mikla samúð og vorkunn frá öllum allt vorið þegar maður dæsir: „Já nei nei, ætli maður fari nokkuð í sumar …“ Og svo stekkur maður kannski til Kanarí með þriggja daga fyr- irvara. Og þá er lykilatriði að láta engan vita. EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Vaskar allt upp, eins og ekkert sé eðlilegra Ofverndun foreldra í garð barna sinna getur orðið til þess að barnið hreyfi sig minna og stundi síður hvers kyns íþróttir. Þetta kemur fram í apríl-útgáfu Preventive Me- dicine í Bandaríkjunum. Rannsóknin var unnin frá árinu 2002-2007 í Queen’s-háskólanum í Ontario í Bandaríkjunum og voru 724 for- eldrar skoðaðir sem áttu börn á aldrinum 7-12 ára, voru frumburðir þeirra og fædd í Bandaríkjunum og Kanada. Rannsóknin sýndi fram á það að börn sem áttu foreldra sem voru mikið innvinkaðir í líf þeirra, bæði í námi, félagslífi og íþróttum, voru líklegri til þess að eyða minni tíma utandyra. Börnin hjóluðu eða gengu síður í skólann, enda for- eldrar til staðar sem gátu skutlað þeim. Börnin heimsóttu síður vini sína og eyddu síður tíma á leik- völlum í nágrenninu miðað við þau börn sem áttu foreldra sem voru síð- ur innvinklaðir í líf barna sinna. Um 64% barnanna í rannsókninni vildu helst leika sér í garðinum heima við eftir skóla, að minnsta kosti þrisvar í viku. Aðeins 12% léku sér úti á götu og nokkrir áhættu- seggir eitthvað frá heimilinu. Um fjórðungur hjólaði eða gekk í skól- ann eða í heimsókn til vinar og að- eins færri léku sér á leiksvæðum í grenndinni. Þátttaka í hvers kyns íþróttum eftir skólatíma var um 26%. Ofverndun barna eða „hyper- parenting“ hefur góða meiningu og hugsun slíkra foreldra er iðulega sú að börnin fái óskipta athygli foreldra sinna og eyði meiri tíma með þeim. En að mati rannsakenda sýnir rann- sóknin fram á að slík uppeldisleið geti haft þveröfug og fremur nei- kvæð áhrif á heilsu barna. NÝ RANNSÓKN UM SAMSKIPTI BARNA OG FORELDRA Ofverndun foreldra upp- skrift að hreyfingaleysi? Ofverndun foreldra eða „hyperparenting“ í garð barna sinna getur orðið til þess að barnið hreyfi sig minna og stundi síður hvers kyns íþróttir. Morgunblaðið/Eggert Hin Alþjóðlega Barnakvikmyndahá- tíð verður haldin í þriðja sinn í Bíó Paradís, dagana 19.-29. mars. Ýmsar vandaðar barna- og unglingamyndir víðs vegar að úr heiminum verða sýndar á hátíðinni sem flestar eru annars ekki teknar til sýninga á Ís- landi. „Tilgang- urinn með Al- þjóðlegu Barnakvikmynda- hátíðinni er að efla kvikmyndalæsi barna á Íslandi, ásamt því að bjóða upp á fjölbreytta og alþjóðlega dagskrá fyrir börn og unglinga í Reykjavík,“ segir Helga Bryndís Ernudóttir, framleiðandi hátíðarinnar. Kvikmyndirnar á há- tíðinni henta börnum frá þriggja ára aldri og upp úr en auk þess verða fjölbreyttir viðburðir á dagskrá. „Fyrsta námskeiðið í leiklist fyrir kvikmyndir verður haldið í dag, laugardag, en það er leikstjóri opn- unarmyndarinnar AntBoy, Ask Has- selbalch, Bragi Þór Hinriksson, leik- stjóri Algjör Sveppi myndanna og Ólafur S.K. Þorvaldz, leikari og leik- stjóri, sem stýra námskeiðinu.“ Þá verður teiknimyndagerð- arnámskeið haldið næstu helgi, 28. mars, sem Hilmar Sigurðsson og Gunnar Karlsson, teiknimyndagerð- armenn stýra. Hægt er að ská sig á www.bioparadis.is. Fleira verður á döfinni og má nálgast helstu upplýs- ingar á heimasíðunni. Í ár er þema hátíðarinnar friður en hugtakið hefur ávallt verið áber- andi í barnakvikmyndum. Hér er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur að eiga notalega stund í skemmtilegri bíóferð utan skólatíma. Verndari hátíðarinnar er frú Vig- dís Finnbogadóttir. The Neverending Story eða Sagan endalausa verður sýnd á hátíðinni. Vilja efla kvikmyndalæsi barna og unglinga Ottó nashyrningur er dönsk teiknimynd eftir bók Ole Lund Kierkegaard. FRIÐUR RÍKJANDI Í BARNAKVIKMYNDUM Helga Bryndís Ernudóttir „Hundurinn minn var búinn að vera í meðferðum hjá dýralækni í heilt ár vegna húðvandamála og kláða, þessu fylgdi mikið hárlos. Hann var búinn að vera á sterum án árangus. Reynt var að skipta um fæði sem bar heldur ekki árangur. Eina sem hefur dugað er Polarolje fyrir hunda. Eftir að hann byrjaði að taka Polarolje fyrir hunda hefur heilsa hans tekið stakkaskiptum. Einkennin eru horfin og hann er laus við kláðann og feldurinn orðinn fallegur.“ Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi Sími 698 7999 og 699 7887 Náttúruolía sem hundar elska Við Hárlosi Mýkir liðina Betri næringarupptaka Fyrirbyggir exem Betri og sterkari fætur NIKITA hundaolía Selolía fyrir hunda

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.