Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Síða 18
Ferðalög
og flakk
Samkeppni í sumar
Carrie og vin-
konur eru miklar
New York-gellur.
*Bæði Icelandair og Delta fljúga beint á NewYork frá Keflavík. Delta hefur flug 1. maí, flýg-ur fimm sinnum í viku og lendir á Kennedy-flugvelli. Icelandair flýgur sex til sjö daga íviku á JFK árið um kring og fjóra til fimmdaga í viku á Newark-flugvöll. Báðir vellirnireru álíka langt frá Manhattan, annar vestan
megin en hinn austan megin.
gengið fram á Rockefeller Center,
með frægu skautasvellinu.
Björk og beyglur
Í þar-þar-næstu götu er MoMA-
nútímalistasafnið, þar sem nú stend-
ur yfir sýning tileinkuð Björk. Ögn
lengra norður, upp fimmta breið-
stræti, er aðalverslun Tiffany’s, þar
sem rándýr djásn prýða sýning-
arskápana og Audrey Hepburn
nartaði í beyglu forðum daga.
Þaðan er örstutt í leikfangabúðina
FAO Schwartz, þar sem enn er spil-
að á risa gólf-píanó rétt eins og í
kvikmyndinni Big, með Tom Hanks.
Nú er ferðalangurinn kominn að
suðausturhorni Central Park og
gaman að rölta þar um ef orkan
leyfir. Ef farið er þvert yfir garðinn
upp að 72. stræti má finna lítinn
N
ew York er ekki borg,
heldur heill heimur.
Hægt væri að skrifa
langar ferðagreinar um
hvert einasta hverfi, þar sem úir og
grúir af söfnum, sögulegum bygg-
ingum, verslunum, veitingastöðum
og skemmtistöðum. Í hverri ferð til
borgarinnar er hægt að uppgötva
eitthvað ævintýralegt og einstakt,
og upplifun út af fyrir sig að lifa og
hrærast í þessari orkumiklu borg
sem aldrei sefur.
Sjá má margar bestu hliðar borg-
arinnar á tiltölulega smáum reit og
gott að byrja árla dags á Times
Square, sem sumir kalla gatnamót
alheimsins. Sagt er að ef þú vilt
hitta einhvern þá þurfirðu bara að
standa nógu lengi á Times Square,
því fyrr eða síðar eiga allir leið um
þetta litríka torg.
Í fimmtán mínútna göngufjarlægð
þaðan er Grand Central Terminal,
ein helsta lífæð borgarinnar. Hvelf-
ingin í aðalsalnum er skreytt með
lágmynd sem sýnir stjörnumerkin,
en listaverkið var um langt skeið
hulið á bak við þykkt lag af sóti.
Ef gengið er tíu mínútur í suður
má finna Empire State-bygginguna
og taka eina góða „selfie“ með út-
sýni yfir alla borgina, en ef í staðinn
er arkað tíu mínútur í norður er
reit tileinkaðan minningu Johns
Lennons sem var skotinn þar
skammt frá. Ef, hins vegar, neð-
anjarðarlestin er tekin áfram upp
fimmta breiðstræti má heimsækja
Metropolitan-listasafnið og Guggen-
heim-safnið.
Sá sem hefur farið þennan hring
hefur frá miklu að segja en ævintýr-
ið er bara rétt að byrja: Kínahverf-
ið, söguslóðir samkynhneigðra í
Greenwich Village, Litla Ítalía, Wall
Street, Frelsisstyttan, höfuðstöðvar
Sameinuðu þjóðanna, leikhúsin á
Broadway, óperusýningarnar í Met-
ropolitan-óperuhúsinu, söguslóðir
Carrie og vinkvenna úr Beðmálum í
borginni, minnisvarðinn um World
Trade Center. Listinn er endalaus
og borgin hættir aldrei að koma á
óvart.
Ljósmyndir/Wikipedia - Scracer357 og Chenisyuan
Í leikfangaversluninni FAO Schwarz bregða starfsmenn reglulega á leik á stóru
gólf-píanói sem lék stórt hlutverk í Tom Hanks-kvikmyndinni Big.
BORG VIKUNNAR: NEW YORK
Hápunktar New York
á einum degi
Á MANHATTAN ER EKKI LANGT AÐ GANGA Á MILLI SUMRA
ÁHUGAVERÐUSTU VIÐKOMUSTAÐA BORGARINNAR.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Aðalsalur Grand Cent-
ral lestarstöðvarinnar
iðar af lífi, en alltof fáir
líta uppog sjá skreyting-
arnar í loftinu.
Times Square er einstakur staður og steinsnar frá heimsfrægum leikhúsum.
Eitt af því fyrsta sem heimamenn kenna erlendum gest-
um er að það má heimsækja sum vinsælustu söfn
borgarinnar ókeypis. Ef farið er, til dæmis, í Metro-
politan-listasafnið er vissulega birt verðskrá við miða-
sölugluggann, en þar stendur skrifað með smáu letri
„suggested admission“. Sagan segir að þetta sé vegna
gamalla lagaákvæða sem skyldi safnið til að bjóða upp á
ókeypis aðgang og auglýst verð því bara vinsamleg til-
mæli. Í sjálfu sér er aðgangseyririnn ekki dýr hjá Metro-
politan, eða 25 dalir á mann, og ágætt að styðja við
bakið á starfi safnsins en gott að vita af þessum af-
sláttarmöguleika ef fjárhagurinn er mjög tæpur.
LEYNDARMÁL HEIMAMANNA
Ekki þarf að borga í öll söfnin