Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Side 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Side 21
22.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Hvergi er meira um þrumuveður en í Pýreneafjöllunum og Ásta segir þau geta orðið mjög hættuleg. Nauðsynlegt sé að leita skjóls um leið og þrumurnar nálgast. „Við lentum í einu slíku veðri þegar vika var eftir af ferðinni. Það varð okkur til happs að hjón frá Katalóníu voru að ganga með okkur og þau sögðu okkur að tjalda undir eins þegar þau skynjuðu hvað var í aðsigi. Við fundum smá grasbleðil og rétt náð- um að troða tjöldunum niður áður en eggjastór haglél dundu á okkur. Þetta var algjört gjörningaveður. Án tjaldsins hefðum við orðið blá og marin.“ Rétt náði að grípa í stein Þau þáðu ekki bara holl ráð, voru líka svo lánsöm að geta liðsinnt öðr- um. Það voru hollensk feðgin, mað- ur og tvær ungar dætur hans, sem voru í sjálfheldu í brekku í einu skarðinu. Þá sporaði Ásta fyrir þrjá Spánverja sem voru illa búnir til að fara gegnum brattan snjó á gömlum hvilftarjökli á leiðinni. „Þeir voru bara á léttum hlaupaskóm sem höfðu ekkert bit á ísnum og voru mjög þakklátir.“ Minnstu munaði að Ásta stórslas- aði sig við þetta góðverk en henni skrikaði fótur efst í snarbrattri snæviþakinni hlíð og rétt náði að grípa í stein á síðustu stundu. Þá má geta þess að Halldór bjargaði skjaldböku, Hermanni að nafni, frá bráðum bana. Færði hana af vegi áður en stór trukkur ók þar hjá. Mikið dýralíf er á leiðinni, má þar nefna múrmeldýr, gemsur, fiðrildi, naut, fjallageitur og þá er hermt að einn skógarbjörn sé þarna að finna. „Sem betur fer rákumst við ekki á hann,“ segir Ásta. Gangan tók að vonum verulega á og þess má geta að Halldór léttist um tuttugu kíló í ferðinni. „Hann var mjög ánægður með það,“ segir Ásta, „langaði mest að fara GR 10 til baka og enda í kjörþyngd.“ Ásta Þorleifsdóttir og Halldór Björnsson á leið- arenda við Miðjarðarhafið eftir velheppnaða göngu. Halldór veður yfir fljót við Repumoso. Horft niður í Piñeda-dalinn. Aigüestortes i Estany de Sant Maurici-þjóðgarðinum. * Þrátt fyrirþrjátíu árafjallareynslu, kort og GPS-tæki tókst okkur að villast.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.