Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Page 22
Unglingar misreikna sig. Margoft
hefur verið skrifað um slæm áhrif
svefnleysis á námsárangur ung-
menna en af hverju sofa þau svona
lítið? Hollensk rannsókn bendir til
að það séu ekki bara tölvur og
snjallsímar eða sjónvarp sem
halda fyrir þeim vöku. Þau halda
oft að þau þurfi ekki að sofa mik-
ið, séu það sem kallast „short-
sleepers“ – einstaklingar sem séu
með það meðfætt að þurfa minni
svefn en aðrir.
Of mikill svefn og hjartaáföll. Það getur verið
flókið að lifa. Að sofa meira en átta tíma á dag
eykur líkurnar á hjartaáföllum. Þetta eru niður-
stöður vísindamanna við Cambridge-háskólann í
Bretlandi en þeir fylgdu eftir 10.000 manns í heil-
an áratug. Tvöfalt líklegra var að þeir sem sváfu
of lengi fengju hjartaáfall.
Sofið ein. Meira en 50 ára gömul bandarísk svefnrann-
sókn á samt enn fullt erindi til okkar. Niðurstöður henn-
ar voru meðal annars að það borgar sig fyrir alla, líka
hjón, að sofa í sitt hvoru rúminu. Þessi lausn er ágæt –
þar sem rúmin eru samt nálægt hvort öðru. Svefninn er
mun, mun betri og svo er líka hægt að fá sér þannig
útfærslu að færa rúmin saman þegar vill.
Lélegri starfsmaður. Rannsókn sem vísindamenn við
háskóla í München framkvæmdu gefur til kynna að vansvefta
starfsfólk sé lengur að koma sér að verki og meira en 50% þátt-
takenda viðurkenndu að sofna reglulega í vinnunni.
Of lítill svefn orsök ofþyngdar.
Margar rannsóknir hafa sýnt tengsl
milli aukinna líka á offitu og of lítils
svefns. Þess má geta að að sögn
vísindamanna við Doha-háskólann
í Katar dugar ekki að sofa extra
lengi um helgar til að bæta upp
fyrir of lítinn svefn í miðri viku.
Getty Images/iStockphoto
ÁVINNINGUR GÓÐRA SVEFNVENJA
Ekki of lítið
en ekki of
mikið
ÞAÐ ER SÍFELLT AÐ VERÐA LJÓSARA
AÐ GÓÐUR NÆTURSVEFN GETUR SKIPT
ÖLLU FYRIR LÍFSGÆÐI OKKAR. BÆÐI HEIMA
FYRIR, HEILSUFARSLEGA OG SVO ERUM VIÐ
TALSVERT BETRI STARFSMENN VEL ÚTHVÍLD.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Betra kynlíf. Stundum virðist þurfa að segja okkur hið
augljósa en hin flóknustu mál hjónalífsins má ef til vill
leysa á einfaldan hátt. Vísindamenn Michigan Medical
School í Bandaríkjunum hafa komist að því að kyndeyfð
og lítið kynlíf megi gjarnan rekja til of lítils svefns en kon-
ur voru sértaklega rannsakaðar. Niðurstöðurnar rann-
sóknar þeirra voru þær að með því að bæta einni
klukkustund við hefðbundinn svefntíma jókst kynorka
þeirra um 14%.
Minni líkur á sykursýki. Fórnarkostn-
aðurinn fyrir aðeins örlítið of stuttan
svefn getur verið mikill. Þannig kynntu
vísindamenn frá Katar niðurstöður
viðamikillar rannsóknar á ENDO-
heilsuráðstefnunni 2015. Samkvæmt
þeim eru áhrif of lítils svefns á efna-
skiptastarfsemi líkamans alvarleg. Fólk
sem sefur hálftíma of stutt, daglega í
heilt ár, hefur aukið líkurnar um 40% á
því að þróa með sér sykursýki.
Heilsa og
hreyfing
Græið ykkur í tæka tíð
*Ótrúlegt en satt, brátt verður þörf fyrir sól-gleraugu þar sem sólin hækkar hratt á lofti.Það er ágætt að vera með góðan fyrirvara,finna gleraugun til strax núna, og koma þeimfyrir í hanskahólfinu í bílnum. Þau eru þá til-tæk þegar skyndilega þarf að draga þau upp íkvöldsólinni. Best er að gleraugun séu með
UV-geislavörn, og hægt er að fá gleraugu sem
veita alveg 100% slíka vörn.