Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Side 32
Ragnhildur Lóa teygir sig í eina væna kökusneið en henni við hlið situr móðir
Kristjönu, Elín Arnoldsdóttir, systir Kristjönu; Ragnheiður Blöndal, mágkona
hennar; Sigríður Ingólfsdóttir með son sinn í fanginu, Arnold Falk Gíslason.
Kristín Steinþórsdóttir fær sér af gulskreyttri köku en gulur var litur boðsins.
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2015
Matur og drykkir
Botn
2 ½ dl möndlur
2 ½ dl döðlur
3 msk. kakó
2 msk. kókospálmasykur
smávegis himalayasalt
smávegis hilliduft
Setjið allt saman í blandarann en tínið döðlurnar ofan í eina í einu því
þær klístrast. Hakkið saman þar til þetta er orðið svolítið slétt. Mega
samt vera pínu bitar í þessu. Setjið í hringlaga form og í frysti.
Mokkakrem
270 g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 12 tíma
1 dl kókospálmasykur
1-2 tsk. instant kaffi
2 tsk. vanilladuft eða -dropar
1 dl íslenskt smjör
½ msk. kakó
Setjið allt saman í blandarann og blandið vel saman.
Súkkulaðibráð
1 dl kókósolía, brædd í vatnsbaði
1 dl kakó
1/2 dl agavesíróp
Blandið öllu vel saman. Blandið kókosflögum, kaffibaunum og kasjú-
hnetum í poka, bankið í spað og stráið yfir.
Hrá mokkaterta með smjöri
Botn
50 g hveiti, eða 30 g glútenlaust
125 g sykur, eða kókospálmasykur
125 g smjör
1 egg
2 tsk. vínsteinslyftiduft
Blandið öllum hráefnunum saman og hnoðið vel.
takið 1⁄3 hluta blöndunnar frá. Klæðið botn og
hliðar vel smurðs hringlaga kökuforms, smyrjið
sultunni yfir botninn, magn eftir smekk, og dreif-
ið fyllingunni yfir. Deigblandan sem geymd var er
þá flött út og lögð yfir fyllinguna, meðfram börn-
unum líka. Bakið við 180°C í 40 mínútur.
Fylling
1 egg
1 1/2 dl sykur eða kókospálmasykur
2 1/2 dl kókosmjöl
Stífþeytið egg og sykur saman og blandið kókós-
mjölinu svo vel saman við.
Furstakaka ömmu í Tanga
Botnar
300 g sykur, Kristjana notaði 200 g sukrin gold
og 100 g kókospálmasykur
300 g hveiti, Kristjana notaði 210 g glútenlaust
hveiti
150 g smjörlíki eða smjör
3 egg
½ peli súrmjólk, Kristjana notaði möndlumjólk
3 msk. kakó
¾ tsk matarsódi eða vínsteinslyftiduft
Hrærið saman smjör og sykri og bætið svo
eggjunum saman við go loks þurefnum og
mjólkinni. Setjið í 1 stórt hringlaga form með
lausum botni eða silíkonbotni. Bakið í 40 mín.
við 170°C í 40 mín. Skerið í tvennt þegar hún
er orðin köld.
Smjörkrem
150 g smjör
2 bollar flórsykur, Kristjana notaði kókos-
pálmasykur
1 egg
Hrærið öllu vel saman og hafið smjörið við stofuhita.
Smyrjið á milli botnanna og svo ofan á.
Brúnterta frá ömmu í Tanga