Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Blaðsíða 35
Getty Images/iStockphoto
22.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Kínverskt sprotafyrirtæki í Hong Kong
stendur nú í ströngu við að kanna hvort
hægt sé að nýta fósturvísa í sjálflýsandi
fiskum til þess að bæta öryggi í matvæla-
iðnaði. Fyrirtækið, Vitargent, þróar nú
tækni með því að nota fósturvísa í medaka-
fiskum og zebra-fiskum en í þeim kviknar
skærgrænt ljós í návist eiturefni.
Tæknin sem Vitargent notast við með
fósturvísunum getur upplýst um yfir 1.000
skaðleg eiturefni á borð við BPA, sem
finnst í plasti og DDT, efni sem hefur verið
bannað t.d. í Bandaríkjunum. Venjulegar
Vilja bæta matvælaeftirlit með fiskum
Fósturvísarnir lýsast upp þegar þeir snerta skaðleg eiturefni.
prófanir á matvælum greina aðeins um 5-10
skaðleg efni í einni prófun á matvöru.
Stofnandi og framkvæmdastjóri Vitar-
gent, Eric Chen, sagði í samtali við South
China Morning Post að fiskarnir sem um
ræðir hefðu DNA sem svipaði til DNA í
mannskepnunni, því eru fiskarnir næmir
fyrir sömu eiturefnum. Fyrirtækið vonast
til þess að geta hjálpað Kína að tryggja
betra öryggi í matvælaeftirliti en upp hafa
komið nokkur atvik að undanförnu þar sem
hneykslismál er varða mengun hafa valdið
usla.
Í ár bjóðum við upp á egg úr
68% gæðasúkkulaði frá Brasilíu
Súkkulaðið kemur allt af einni ekru og er
einungis í boði fyrir meðlimi í „Ambassador
Club“ Barry Callebaut.
Bjóðum einnig upp á súkkulaðiegg úr
„Dulcey Blond“ súkkulaði, mjólkursúkkulaði
og hvítu súkkulaði.
Eggin eru fyllt með handgerðu
konfekti og málshætti.
Súkkulaðie
gg
fyrir sælkera
MOSFELLSBAKARÍ
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík | Sími 566 6145 | mosfellsbakari.is