Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.3. 2015
Græjur og tækni
Í ævisögu Steve Jobs kemur fram að eftirmaður hans í starfi,
Tim Cook, reyndi að gefa honum hluta af lifrinni úr sér þegar
sá fyrrnefndi háði erfiða baráttu við krabbamein. Jobs af-
þakkaði hins vegar kröftuglega og haft er eftir Cook í bókinni
að Jobs hafi aðeins æpt á hann 4-5 sinnum á þeim þrettán ár-
um sem þeir þekktust og þetta hafi verið eitt þeirra tilfella.
Vildi gefa Jobs hluta af lifrinni
L
æknisvísindi snúast í aukn-
um mæli um að uppfæra þá
heilbrigðu í stað þess að
lækna þá sjúku. Vísinda-
menn í Sviss vinna nú að því að
þróa snjalllinsur, augnlinsur sem
eru búnar örspeglum svo hægt sé
að efla sjónina allt að því þrefalt.
Linsan verður 1,55 millimetra þykk
og mun innihalda þunnan sjónauka
sem gerður verður úr speglum og
ljóssíum. Virkni hennar mun felast
í því að þegar ljós fer inn í augað
muni það endurkastast milli spegl-
anna og þannig muni sjáandinn
skynja viðkomandi hlut eða mann-
eskju sem stærri en annars. Von-
ast er til þess að linsan geti bætt
sjón fólks sem þjáist af aldurs-
bundinni augnbotnahrörnun (AMD)
sem er þriðja algengasta orsök
blindu á heimsvísu. AMD veldur
því að sjón fólks dvínar smám sam-
an vegna skemmda á sjónhimnu og
í dag eru ekki mörg úrræði til
staðar til að bregðast við sjúk-
dómnum. Fjallað er ýtarlega um
nýju linsuna á vef CNN. „AMD er
augljósasti sjúkdómurinn þar sem
stækkun hjálpar fólki að sjá bet-
ur,“ segir Eric Tremblay, rannsak-
andi við EPFL í Sviss. Hann fór
fyrir teyminu sem hannaði linsuna.
Hönnun hennar grundvallast á
sjónauka sem græddur er í AMD-
sjúklinga með skurðaðgerð, en sú
aðgerð felur í sér mun umfangs-
meiri íhlutun en það að nota linsu.
„Það er auðvelt að prófa sig áfram
með linsunni,“ segir Tremblay.
Lykilhluti uppfinningarinnar er
sá möguleiki að skipta milli auk-
innar sjónar og hefðbundinnar fyr-
ir atbeina gleraugna sem fylgja
munu linsunum. Gleraugun verða
knúin rafhlöðum og munu styðjast
við LCD-tækni til þess að fylgjast
með hreyfingum augans og einfalt
blikk mun geta skipt á milli þess
hvort stækka eigi ljósið sem kemur
inn í auga sjáandans eða ekki.
„Það er auðvitað aðlaðandi hugsun
að geta skipt að vild,“ segir
Tremblay.
Sjóninni breytt með blikki
Möguleikinn að geta stjórnað því
sjálfur hvort sjón þín eflist eða
ekki gerir samhæfða notkun linsa
og gleraugna hentugri í daglegu
lífi. „Þegar þú eykur sjónina þá
taparðu um leið umtalsverðum
hluta jaðarsjónar,“ segir Tremblay.
Auðkennandi blikk mun gera not-
endum kleift að beita jaðarsjón
sinni til þess að t.d. fylgjast með
bílum sem nálgast þegar þeir fara
yfir götu á sama tíma og þeir geta
þysjað að andlitum í kringum sig.
Teymið hefur einnig þróað fram
linsur sem ná yfir augnhvítuna,
þykkari og breiðari, og ætlunin er
að þær geti nýst í sérhæfðari
augnmeðferðum. „Þær ná yfir mun
meira svæði, en vandamálið sem
slíkar linsur hafa í för með sér er
að þær aftra súrefnisflæði til aug-
ans.“ Nýjasta útgáfa linsunnar,
sem sýnd var opinberlega í febr-
úar, innihélt loftgöng til þess að
auðvelda súrefnisflæði til augans
en teymið stefnir að því að bæta
hönnunina og tryggja að augað fá
nægt súrefni með linsuvökva sem
hægt væri að geyma í linsunni og
hleypa jafnt og þétt út í augað.
Linsa fylgist með
framvindu gláku
Aðeins hafa nokkrir einstaklingar
prófað nýju linsurnar en bróður-
partur rannsóknanna hefur byggst
á því að styðjast við gerviauga. Á
döfinni er að gera fleiri tilraunir og
rannsóknir með linsurnar í raun-
verulegum augum og ætlunin er að
setja að lokum daglinsur á markað
sem geta hjálpað þeim sem glíma
við sjónskerðingu í daglegu lífi.
„Við færum okkur stöðugt nær
raunveruleikanum og skynjun okk-
ar á honum,“ segir Tremblay.
Hér er ekki um að ræða fyrstu
snjalllinsurnar. Annars konar lins-
ur hafa verið framleiddar til þess
að fylgjast með og bæta augnheilsu
fólks, sem og heilbrigði að öðru
leyti. Alcon, fyrirtæki á sviði augn-
heilsu, hóf samstarf með Google X
árið 2014 í því skyni að þróa marg-
víslegar snjalllinsulausnir og síðan
þá hafa komið fram tækninýjungar
á borð við Triggerfish frá Sensi-
med, sem er linsubúnaður sem
fylgist með framvindu gláku. Gláka
er sá augnsjúkdómur sem veldur
næstflestum blindutilfellum á
heimsvísu og um 4,5 milljónir
manna glíma við hann. Gláka veld-
ur því að fólk blindast smám sam-
an vegna þess að sjóntaug þeirra
hrörnar. Hefðbundnar aðferðir til
þess að fylgjast með gláku byggj-
ast á því að mæla þrýsting í aug-
anu en slíkar mælingar eru ekki
þægilegar í framkvæmd. David
Bailey, forstjóri Sensimed, segir að
til þess að fylgjast vel með gláku
þurfi að fá upplýsingar allan sólar-
hringinn um það hvað er að gerast
í auganu. Triggerfish-linsan styðst
við skynjara og mæla til þess að
mæla vökvamagn í auganu svo
hægt sé að fylgjast með þrýst-
ingnum. Hægt er að nota linsuna í
sólarhring og hún sendir sjálfkrafa
gögn í gegnum bluetooth í upp-
tökutæki.
Snjalllinsur valdi straumhvörfum
í baráttu við augnsjúkdóma
VÍSINDAMENN TELJA SNJALLLINSUR GETA NÝST VEL Í
BARÁTTUNNI GEGN ALDURSBUNDINNI AUGNBOTNA-
HRÖRNUN OG ANNARS KONAR AUGNSJÚKDÓMUM.
SLÍKAR LINSUR STYÐJAST VIÐ ÖRSPEGLA TIL ÞESS AÐ
MAGNA UPP SJÓNSVIÐ ÞESS SEM ÞÆR NOTAR.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Snjalllinsumarkaðurinn er
ört vaxandi. Ný tegund
þeirra aðstoðar lækna við
að fylgjast með gláku.
Getty Images/iStockphoto
G
oogle hefur nú sótt um einka-
leyfi hjá Alþjóðahugverkastofn-
uninni (WIPO) fyrir framleiðslu
armbands sem fólk mun ganga
með um úlnliðinn og gæti mögulega drepið
krabbameinsfrumur í blóðinu. Í umsókninni
um leyfið fyrir búnaðinum, sem nefnist
„Nanoparticle Phoresis“, því lýst hvernig
tækið getur „sjálfkrafa greint og eytt einu
eða fleiri skotmörkum í blóðinu sem gætu
haft slæmar afleiðingar fyrir heilsufar“.
Slík skotmörk gætu til dæmis verið ensím,
hormónar, prótín, frumur eða annars kon-
ar mólekúl, sem gætu haft áhrif á sjúk-
dóma fólks eða heilbrigði að öðru leyti.
Búnaðurinn mun geta haft áhrif á eða
eytt frumunum með því að senda frá sér
orku af einhverjum toga inn í blóðrás-
arkerfi fólks. Slík orka gæti t.d. ann-
aðhvort verið á formi rafsegulbylgna,
hljóðbylgna eða á formi sýnilegs eða inn-
rauðs ljóss. Aðgerðin mun valda því að
breytingar verða í skotmörkunum og
markmiðið er að draga úr eða koma í veg
fyrir slæmar afleiðingar á heilsufar.
Google tók jafnframt sem dæmi að til-
tekin prótín geri að verkum að fólk fái
Parkinsonsveiki. Beita
mætti búnaðinum til
þess að eyða þess-
um prótínum og
hægja þar með á
framgangi sjúk-
dómsins. „Annað
dæmi væru krabba-
meinsfrumur. Með
því að aðgreina og gera
tilteknar krabbameins-
frumur að skotmörkum
væri hægt að breyta eða
jafnvel eyða krabbameinsfrumum og
minnka þar með líkur á að krabbamein
breiðist út,“ sagði í leyfisumsókninni.
Búnaðurinn væru ekki fyrstu skref
Google í baráttunni gegn krabbameini. Í
október 2014 kom í ljós að Google X,
rannsóknararmur fyrirtækisins, ynni nú að
þróun pillu sem gæti
greint krabbamein og
aðra sjúkdóma. Pill-
an innihéldi nanóein-
dir sem færu í
blóðrásina og gætu
þar greint krabba-
meinsfrumur sem
gefa snemma frá sér
lífefnafræðileg merki þeg-
ar þær sýkjast. Ætlunin
með pillunni væri þá að
„merkja“ sýktar frumur á
ferðalagi þeirra um líkamann. Nanóeindirn-
ar eru segulmagnaðar svo að búnaður á
úlnliði gæti framkallað segulsvið til þess
að kalla til sín eindirnar, sem myndu þá
draga krabbameinsfrumurnar með sér, á
stað þar sem hægt væri að greina þær og
telja. Á þeim tíma sögðu talsmenn Google
að fyrirtækið væri að minnsta kosti fimm
ár frá því að koma fram með tækninýjung
sem læknar gætu nýtt sér.
Bill Maris, yfirmaður fjárfestinga hjá
Google, lét jafnframt nýlega hafa eftir sér
að menn myndu í framtíðinni verða 500
ára gamlir og að krabbameinsmeðferðir
samtímans myndu senn þykja frumstæðar.
Hann opinberaði jafnframt að Google hefði
ráðið til sín vísindamenn í því skyni að
koma auga á sprotafyrirtæki sem gætu
komið fram með lækningu við krabba-
meini.
Google-armband gegn krabbameini?
GOOGLE ÆTLAR SÉR STÓRA HLUTI, HVAR SEM ÞAÐ DREPUR NIÐUR FÆTI, OG NÚ HEFUR
FYRIRTÆKIÐ SÓTT UM EINKALEYFI FYRIR ARMBANDI TIL AÐ BERJAST GEGN KRABBAMEINI.
Microsoft-armbandið kom á
markað í október síðastliðnum og
er búið ýmiss konar skynjurum.