Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.03.2015, Page 41
22.3. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
L
ífið getur verið svo dásamlega svart/hvítt og stundum er bara ekki
vinnandi vegur að halda sig á mottunni, jafnvel þótt maður sé al-
veg að komast í fullorðinna manna tölu.
Í miðjum sparnaðaraðgerðum undirritaðrar, þar sem öll út-
gjöld eru skrifuð samviskusamlega niður og engu eytt í rugl, var gamla
skyndilega sest upp í sinn einkabíl og keyrði á 200 inn í Hafnarfjörð.
Ferðin í Hafnarfjörð var nú alls ekki farin til að gera góð fatakaup eða til
að stelast í lúgusjoppu … Nei, leiðin lá í skartgripaverslun þar sem und-
irrituð hafði fengið spurnir af því að þar starfaði demantadrottning sem
gæti breytt vatni í vín …
Sjálfstæðar konur sem vita hvert þær eru að fara geta ekki beðið eftir
því endalaust, allavega ekki ef þær
eru í hrútsmerkinu, að þeim séu
gefnir einhverjir hlussu-gimsteinar
og fínirí. Það skapar bara vonda
stemningu og gremju ef konur eru
alltaf að bíða eftir að prinsinn á hvíta
hestinum komi færandi hendi með
eitthvert góss. Og vondu fréttirnar
eru að konur verða alveg hryllilega
leiðinlegar og óspennandi þegar þær
eru í stöðugri skorthegðun. Tala nú ekki um
þegar þeim finnast hinar guggurnar í kringum
þær vera miklu betur trítaðar en þær sjálfar.
Það er líka farsælla að konur séu það sjálf-
stæðar að þær geti framfleytt sér sjálfar og
staðið sjálfar undir eigin lífsstíl. Það er ekki
ávísun á farsæld þegar konur treysta á að
„karl“ skaffi þeim ákveðin lífsgæði. Í einstaka
tilfellum heppnast það – ekki alltaf, því miður.
Þótt undirrituð hafi vanið sig á að kaupa sjálf
það sem hana langar í þá er mikilvægt að
koma því á framfæri að hún fúlsar ekki við
fíniríi og býst jafnvel við einhverju fíniríi á
mánudaginn þegar sjálfshátíð hennar
mun standa sem hæst.
Ferðin í Hafnarfjörð var svo sem engin
skyndihugdetta. Þetta byrjaði allt síðasta
sumar þegar við vinkonurnar vorum staddar
erlendis í fríi. Þegar svona „first
class“ guggur fá frí frá daglegum
störfum og ná að slaka á fyrir all-
an peninginn þá gerast hlutirnir.
Þessar tvær komust að því að
hver kona þyrfti að eiga einn
veglegan og fínan hring með
gimsteini … Sem nota bene hefði ekkert með hjúskaparstöðu að gera.
Sem áhugakona um fallega skartgripi tók hjarta undirritaðrar vægt
aukaslag þegar „first class“ vinkonan rétti fram höndina og sýndi nýjasta
djásnið. Án þess að tala við kóng eða prest hafði hún látið búa til dem-
antshring úr góssi sem hún átti heima hjá sér, látið stækka demantinn að-
eins og bæta fíniríi við þannig að útkoman var ólýsanleg.
Auðvitað á maður ekki að fá hjartastopp yfir dauðum hlutum en það
var eitthvað við hringinn sem kveikti bál í hjartanu. Líkt og undirrituð
væri á leikskóla … þurfti hún náttúrlega líka að fá …
Það að vera búin að vera í öflugu sparnaðarátaki kom sér nú aldeilis vel
og þegar gripurinn verður tilbúinn verður hægt að sperra sig. Það verður
náttúrlega allt annað líf að drekka sítrónuvatnið á morgnana og borða
soðnu ýsuna og hamsatólgina ef maður getur horft á eitthvað fallegt á
meðan og ekki verra ef það er á fingri annarrar handar. Sælir eru einfald-
ir … martamaria@mbl.is
Hér er búið að setja
nokkra demanta saman.
Fallegir demantshringar.
„First class“
guggur í
Hafnarfirði
Marilyn Monroe.
Demantar fara ákaflega
vel við allar húðgerðir.
Marilyn
Monroe
hafði smekk
fyrir fíniríi.
Since 1921
Frískandi Cítrus svitalyktareyðir!
Cítrus svitalyktareyðirinn er mjög mildur og húðvænn.
Samsettur úr náttúrulegum hráefnum.
Inniheldur ekki aluminium salt (Ál) Þægilegur sítrónuilmur.
Í samhljómi við mann og náttúru.
Útsölustaðir Weleda eru heilsuverslanir og apótek um allt land.
Velkomin að skoða nýja heimasíðu www.weleda.is
www.facebook.com/WeledaIceland
Gjafir sem gleðja
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Fermingagjafir
á frábæru verði
Líttu við og
skoðaðu úrva
lið
Verð 6.950,-Verð 4.700,- Verð 5.800,-
Verð 6.700,-Verð 11.500,-
Verð 17.900,-
Verð 8.200,-
Verð 5.900,-Verð 5.900,- Verð 7.500,-