Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 66
66
bókasafnið 35. árg. 2011
Áslaug Agnarsdóttir er sviðsstjóri á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Baldur Sigurðsson er dósent og forstöðumaður ritvers á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Bragi Þorgrímur Ólafsson er sagnfræðingur og fagstjóri í handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Eva Ósk Ármannsdóttir útskrifaðist með BA-próf í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands í júní 2010.
Hún starfar sem bókasafns- og upplýsingarfræðingur hjá Þjóðskrá Íslands.
Eyrún Ýr Tryggvadóttir stundaði nám í bókasafns- og upplýsingafræði við HÍ 1998-1999, útskrifaðist sem iðnrekstrarfræðingur
frá HA 2001, lauk kennslufræði til kennsluréttinda frá HA 2005 og diploma í opinberri stjórnsýslu frá HÍ 2010. Hún hefur starfað
sem forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík (Bókasafns Suður-Þingeyinga) frá 2002 og gefi ð út 3 skáldsögur: Annað tækifæri, 2004,
Hvar er systir mín, 2008, og Fimmta barnið, 2009.
Guðbjörg Garðarsdóttir er BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem forstöðumaður bókasafns
Breiðagerðisskóla.
Guðrún Hannesdóttir er bókasafnsfræðingur og starfar við Bókasafn Myndlistaskólans í Reykjavík. Hún hefur samið og
myndskreytt fj ölda barnabóka og gefi ð út tvær ljóðabækur, Fléttur, 2007, og Staðir, 2010. Hún hlaut bókmenntaverðlaunin
Ljóðstafur Jóns úr Vör árið 2007.
Hólmkell Hreinsson er amtsbókavörður á Akureyri.
Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur MA, stjórnsýslufræðingur MPA og er landsbóka vörður
frá 2007.
Jasmín Soff ía Siggeirsdóttir er grunnskólanemi.
Kolbrún Björk Sveinsdóttir er með BA-gráðu í ensku og stundar mastersnám í ensku með starfi sínu sem deildarstjóri
á Bókasafni Reykjanesbæjar.
Sigríður Kristinsdóttir er sjúkraliði.
Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir er fyrrverandi landsbókavörður og prófessor í bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Sólveig Þorsteinsdóttir er MALS í bókasafns- og upplýsingafræðum frá University of Michigan, Bandaríkjunum, 1980
og með BS-gráðu í bókasafns- og upplýsingafræðum frá Eastern Michigan University, Bandaríkjunum, 1979. Hún starfar
sem deildarstjóri Heilbrigðisvísindabókasafns Landspítala.
Steinvör Almý Haraldsdóttir lauk MLIS-námi í bókasafns- og upplýsingafræði í febrúar 2010. Hún vinnur sjálfstætt og tekur
að sér verkefni við skjalastjórn og vefsíðugerð.
Svanhildur Eiríksdóttir er með BA-gráðu í almennri bókmenntafræði, diplómu í opinberri stjórnsýslu og stundar nú mastersnám
í opinberri stjórnsýslu með starfi sínu sem deildarstjóri á Bókasafni Reykjanesbæjar.
Sölvi Sveinsson er skólastjóri Landakotsskóla.
Þórhallur Þórhallsson er ljóðskáld og bókavörður við Borgarbókasafn Reykjavíkur – Sólheimasafn. Hann hefur gefi ð úr nokkar
ljóðabækur, síðasta bók hans er Feigðarleikur, 2010.
Höfundar efnis