Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 45
45
bókasafnið 35. árg. 2011
færri en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum en fjöldi birtinga
er mikill ef tekið er mið af höfðatölu. Alþjóðlegar greinar frá
Landspítalanum eru skrifaðar á ensku. Greinar í Læknablaðinu
eru einu íslensku greinarnar sem eru skráðar í erlenda gagna-
grunna. Þær eru skrifaðar á íslensku með útdrætti á ensku.
Læknablaðið hefur ekki mikil áhrif í alþjóðlegum gagna-
grunnum en er vel tekið á Íslandi. Alþjóðlegt samstarf er mikil-
vægt í vísindastarfi og birtingu vísindagreina. Vísindagreinar í
opnum aðgangi eru færri á Íslandi en á alþjóðavísu. Klínísk vís-
indi eru öflug á Landspítalanum og samstarf við erlenda aðila
er mikið og áhrifastuðull vísindagreina er hár á alþjóða vísu.
Niðurskurður á Heilbrigðisvísindabókasafni Landspítalans er
mikill og hversu mikil áhrif sá niðurskurður hefur á rannsóknir
og klínískt starf á sjúkrahúsinu á eftir að koma í ljós.
Heimildir
1. Rannsóknir og þróunarstarf á Íslandi 2009. Rannsóknarmiðstöð
Íslands - Rannís; 2009
2. Ritrýndar birtingar og áhrif þeirra, samantekt um árangur Íslands.
Reykjavík: Rannsóknarmiðstöð Íslands - Rannís; 2010.
3. Vísindastarf LSH 2009: Landspítali 2010.
4. Scalas E, Björk B-C, Welling P, Laakso M, Majlender P, Hedlund T, et
al. Open Access to the Scientific Journal Literature: Situation 2009.
PLoS One. 2010;5(6):e11273.
5. Tenopir C, King D, Mays R, Baer A, Wu L. Measuring value and
return on investment of academic libraries. Serials. 2010; 23
(3):182 - 90.
Guðrún Hannesdóttir
Aðföng
ég hef hlustað
með öðru eyranu
á ljúfan söng
úr skugganum
við bókaskápinn
á slitrótt stef
um lítil sundfit
heyrist mér
móðurást
dúnmjúka bringu
sveip í krúnu
hrjúfa klaufska
unaðstungu
svo rennur upp stundin
er hljóð taka að skýrast
og mér fipast við lesturinn
það kveður við
nýjan skerandi tón
sarg og dauðahryglu
brotnir hálsar
brostin augu
rifnar fanir
og fjaðurstafir
rjúkandi húðum
og stýfðum vængjum
er staflað á völl
blóðkollum hlaðið
í háan haug
undan brekkunni
níðingsverkin komin á fullan skrið
löngu áður en stafur er kominn á bók
ég græt þau
þurrum tárum
læt fórnarblóðið
sem vind um eyru þjóta
les sögurnar fagnandi
aftur og aftur...
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Landsbokasafn-Islands-
Haskolabokasafn/49834298059
Handritasafn
http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Handritadeild-Landsbokasafns-Islands-
Haskolabokasafns/358872531088
Tón- og myndsafn
http://www.myspace.com/ton_og_myndsafn