Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 9

Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 9
9 Inngangur „Hver sem er getur sett vefsíðu á Veraldarvefinn án gæða- stjórnunar eða annars eftirlits“ (Kristín Ósk Hlynsdóttir, 1997, bls. 16). Eftir að almenningur fór að nota Internetið árið 1995 varð sprenging í magni gagna sem sett voru á netið. Sambandið á milli innihalds (e. content) og samhengis (e. context) upp- lýsinganna gleymdist oft eftir því sem upplýsingarnar urðu flóknari og magn þeirra jókst. Þegar fólk fór að reiða sig á upp- lýsingarnar skapaði þetta vandamál fyrir notendur (Cumming, 2009). Fyrirtæki fóru að nota vefsetur (e. web site) til að kynna starfsemi sína og notkun tölvupósts varð hluti af vinnu skrif- stofumannsins (Cronin, 1995). Um aldamótin fór að bera á of- gnótt upplýsinga á vefnum og með Internetbólunni (e. Inter- net boom) varð gríðarleg aukning á vefsíðum (e. web pages) með lítilli stjórnun á innihaldi þeirra (Cumming, 2009). Buttler Group er tölvufyrirtæki sem sérhæfir sig í rann- sóknum á sviði upplýsingatækni. Í rannsókn sinni komust þeir að því að þegar upplýsingaleitir starfsmanna skila ekki árangri hefur það bein áhrif á samkeppnisstöðu fyrirtækja. Þetta bæði skaðar fyrirtækin og setur þau í hættu. Allt að 10% af launa- kostnaði fer í að greiða fyrir ómarkvissa leit starfsmanna að áreiðanlegum upplýsingum. Rannsakendurnir segja að starfs- menn þjáist bæði vegna ofgnóttar upplýsinga sem og einnig vegna skorts á upplýsingum. Niðurstaðan er sú að hinn venju- legi starfsmaður eyðir hátt í einum fjórða á hverjum degi í leit að réttum upplýsingum til að geta unnið vinnuna sína (Dubie, 2006, Time spent searching cuts into company productivity). Niðurstöður annarrar rannsóknar sem Delphi Research fram- kvæmdi árið 2004 sýnir sömu niðurstöður (Palarchio, 2004). Uppspretta góðrar þekkingar kemur með góðum upplýs- ingum (Wurman, 1989). Í dag er aðgengi að allskonar gögnum nánast ótakmarkað en þar fara gæði og magn ekki endilega saman og við mikið magn upplýsinga að glíma. Ef notandinn veit ekki svarið við ákveðinni spurningu þá „gúgglar“ hann það bara. En hvernig eru gæði þeirra upplýsinga sem við fáum við upplýsingaleit, til dæmis á netinu? Finnum við alltaf það sem við leitum að? Upplýsingaarkitektúr og tilgangur hans Upplýsingaarkitektúr snýst um að umbreyta gögnum í upp- lýsingar og gera þær aðgengilegar. Peter Morville og Louis Ro- senfeld (2006) útskýra upplýsingaarkitektúr á eftirfarandi hátt: • Hönnun á upplýsingum sem er deilt, til dæmis á Internetinu. • Samþætting á leit, leiðakerfi og nafnakerfi á vef setrum og innraneti. • Listin og vísindin við að aðlaga upplýsingar og reynslu til að styðja við nytsemi og auka líkur á að finna efni á Veraldarvefnum. • Styðst við meginreglur hönnunar á rafrænum miðlum, svo sem vefsetrum, gagnasöfnum og fleira. „Upplýsingaarkitektúr snýst um að búa til áætlun um og skipuleggja uppsetningu gagna til að notendur geti náð mark- miðum sínum á skilvirkan hátt með gagnsæu notendaviðmóti“ (Anna Sveinsdóttir munnleg heimild glærur, 24. janúar 2008). Wurman lýsti upplýsingaarkitektúr svona árið 1996 í bók sinni Information Architects: Upplýsingaarkitekt. 1) Einstaklingur sem skipu- leggur mynstur sem felst í gögnum eða gerir það flókna skýrt. 2) Einstaklingur sem býr til, byggir upp eða kortleggur upplýsingar sem gerir öðrum kleift að finna þeirra eigin veg í átt að vitneskju. 3) Vaxandi fagstétt 21. aldarinnar sem tekst á við öld þarfarinnar sem einblínir á skýrleika, skilning manneskjunnar, og vísindin á bak við flokkun upp- lýsinga. (Morville og Rosenfeld, 1998, bls. 10). Eva Ósk Ármannsdóttir Upplýsingaarkitektúr Þú getur ekki notað það sem þú finnur ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.