Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 25

Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 25
25 bókasafnið 35. árg. 2011 Það má túlka þessa grein um að skipta megi félaginu upp í deildir sem fyrirboða þess að menn hafi frá upphafi talið að verkefni og viðfangsefni félagsmanna væru svo ólík að erfitt gæti verið að láta eitt og sama félagið annast þau öll enda voru í upphaflega hópnum starfandi bókaverðir í almennings- söfnum, bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu, á Lands- bókasafni, Háskólabókasafni og skjalaverðir í Þjóðskjalasafni. Rætt var um hvort skjalaverðir skyldu fá að vera félagar og virtust engar mótbárur hafa komið upp gegn þeirri tilhögun enda segir í 4. grein að skjalavörðum sé heimil þátttaka. Í fyrstu stjórn Bókavarðafélagsins var Herborg Gestsdóttir kosin formaður, Haraldur Sigurðsson ritari, Anna Guðmunds- dóttir varaformaður, Ólafur Hjartar féhirðir og Hilmar Jónsson meðstjórnandi, það er tveir frá Landsbókasafni og þrír al- menningsbókaverðir. Á þessum fyrsta fundi var jafnframt samþykkt ályktun til stuðnings frumvarpi um almenningsbókasöfn sem lagt hafði verið fram á Alþingi. „Skora fundarmenn á ríkisstjórnina að leggja fyrrgreint frumvarp fyrir Alþingi það sem nú situr og tryggja því framgang.“15 Má telja víst að þessi ályktun eigi rætur að rekja til áhuga Guðmundar G. Hagalíns á málefnum almenningsbókasafnanna. Í fundargerðabók Bókavarðafélags Íslands fyrstu 10 árin kemur fram hver voru helstu áherslumál stéttarinnar og má leiða að því líkur að þau hafi verið það sem mest brann á bókavörðum á Íslandi á þessum tíma og verða hér talin nokk- ur fyrstu verkefnin sem eru býsna metnaðargjörn. Flokkun og skráning Á stjórnarfundi í febrúar 1961 lagði Björn Sigfússon fram beiðni um „kosningu undirbúningsnefndar til þess að ganga frá reglum um samræmingu tugakerfisins fyrir íslensk bóka- söfn.“ Þá þegar var skipuð nefnd til að vinna að þessu verkefni og í nefndina völdust Björn Sigfússon Háskólabókasafni, Ólaf- ur Hjartar Landsbókasafni, Anna Guðmundsdóttir Bókasafni Hafnarfjarðar og Hulda Sigfúsdóttir Borgarbókasafni. Haustið 1969 virtist flokkunarkerfið vera tilbúið til útgáfu en þá kom upp mikil misklíð um í hvaða formi skyldi gefa það út, hvort það ætti að vera í lausblaðaformi eða prentað. Talsverður hiti var í stjórnarmönnum varðandi þetta mál og gengu tveir úr stjórn þegar ákveðið var að prenta flokkunarkerfið. Flokkunar- kerfi fyrir íslenzk bókasöfn var síðan gefið út, prentað af Bóka- fulltrúa ríkisins, árið 1970. Á aðalfundi Bókavarðafélagsins 1961 var borin upp tillaga frá Hilmari Jónssyni, Bókasafni Keflavíkur, um að huga að skráningarreglum sem fylgi flokkunarkerfinu. Þessi tillaga er samþykkt einróma en ekki var skipað í þessa nefnd fyrir en 1966. Í grein sem Ólafur Pálmason skrifaði í Árbók Landsbóka- safns16 segir hann að í nefndinni hafi starfað Einar Sigurðsson Háskólabókasafni, Gróa Björnsdóttir Borgarbókasafni og Ólafur Pálmason Landsbókasafni í alls fjögur ár. Aðaltilgangur útgáfunnar var að samræma skráningarhætti íslenskra bóka- safna. Skráningarreglurnar voru gefnar út í lausblaðaformi sem bráðabirgðaútgáfa árið 1970. Fræðsla og menning Mjög fljótlega eftir stofnun félagsins voru flutt menningarleg og fræðandi erindi um hin ólíkustu málefni. Má þar nefna Guð- mund Böðvarsson sem flutti erindi um bóklestur og menn- ingu og hlutverk bókasafna á því sviði. Haraldur Sigurðsson flutti erindi um elstu frásagnir af Íslandi og helstu ferðabækur sem um Ísland fjalla til loka 17. aldar. Guðmundur G. Hagalín Fjórir formenn Bókavarðafélags Íslands. F.v.: Else Mia Einarsdóttir (1971­1973), Herborg Gestsdóttir (1960­1963), Haraldur Sigurðsson (1965­1969), Óskar Ingimarsson (1970­1971). 15. Fundargerð Bókavarðafélags Íslands. Stofnfundur. 16. Ólafur Pálmason, Skráningarreglur bókasafna, Árbók Landsbókasafns 1970, s. 157-167.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.