Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 46

Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 46
46 Bókasöfnin og kreppan Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir Áhrif kreppunnar í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni Í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni hefur starfs- fólk þurft að hagræða og skera niður útgjöld eins og aðrir í þjóðfélaginu. Stefnan hefur verið að skerða grunnþjónustu eins lítið og unnt er. Þar má nefna afgreiðslutíma, mönnun í afgreiðslum, aðgang að tölvum og interneti, útlán, millisafna- lán, prentun, ljósritun o.fl. Þá hefur hækkunum á gjaldskrá verið stillt mjög í hóf. Mikil áhersla var lögð á að halda Lands- aðgangi óbreyttum eftir bankahrunið og með samstilltu átaki allra hagsmunaaðila tókst að tryggja óbreyttar áskriftir út árið 2012. Unnið hefur verið að verkefnum skv. stefnu safnsins en ljóst er að sum þeirra dragast, bæði vegna kostnaðar en einnig vegna færri starfsmanna. Árið 2009 lagði ríkisstjórnin fram áætlun um jöfnuð í ríkis- fjármálum sem miðaði að því að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og jöfnuði í rekstrarafkomu ríkisins árið 2013. Áætlunin hefur verið endurskoðuð en safnið eins og aðrar ríkisstofnanir þurfa að skera verulega niður útgjöldin. Niðurskurðurinn hefur ekki verið flatur, heldur mismunandi eftir málaflokkum og hjá safninu var hann um 3% árið 2009, 6,5% árið 2010 og 10% árið 2011. Gert er ráð fyrir áframhaldandi niðurskurði um 5% árin 2012 og 2013. Þessu hefur verið mætt með ýmsu móti. Ársverkum í safn- inu hefur fækkað úr 82,55 í árslok 2007 í 76,55 í árslok 2010 eða um sex. Þar sem margir þeirra sem hafa hætt hafa verið í hlutastarfi þá hefur starfsmönnum fækkað um 11. Ekki hefur verið ráðið í störf sem hafa losnað nema brýna nauðsyn beri til. Verkefnum hefur verið skipt á aðra starfsmenn og fundnar leiðir til að gera hlutina öðru vísi en áður. Nokkrir hafa farið í lægra starfshlutfall og öll yfirvinna og vaktavinna endurskoð- uð. Kostnaður vegna ferða og funda hefur verið skorinn mjög niður og miðast við nauðsynlega fundi vegna þátttöku í sam- starfsverkefnum. Risna og veitingar á fundum eru í lágmarki, veitingar við móttökur og opnun sýninga eru mjög hóflegar og rafræn jólakort hafa verið send síðustu ár. Nýjar og hagkvæmari leiðir í upplýsingatækni hafa verið teknar í notkun, til dæmis hafa prentmál verið tekin til gagn- gerrar endurskoðunar. Áður voru 30-35 starfsmannaprentarar í húsinu en nú er ein prentmiðstöð á hverri hæð með prent- ara, ljósritunarvél, faxi og öðrum nauðsynlegum tækjum. Kostnaður og utanumhald hefur minnkað umtalsvert og pappírsnotkun minnkað um helming. Símkerfið er í endur- skoðun og verður meðal annars útvistað til að spara kostnað og utanumhald og sömuleiðis skjalastjórnarkerfið. Innkaup á efni hafa verið endurskoðuð, sérstaklega hafa áskriftir tímarita og ritraða verið grisjaðar verulega og var það í rauninni þarft verk. Þá hafa verkferlar verið endurskoðaðir til að koma í veg fyrir skörun í innkaupum. Þá hafa mjög margir samningar sem safnið hefur við ýmsa þjónustuaðila verið endurskoðaðir, svo sem ræsting og garð- yrkja, og dregið hefur verið úr rafmagnsnotkun, meðal annars með því að slökkva á öllum tölvum í húsinu á nóttunni. Stór hluti viðgerða- og viðhaldsverkefna, svo sem yfirdekking og bólstrun á stólum fer fram innanhúss. Endurnýjun á tölvum hefur verið frestað en venjulega eru þær endurnýjaðar á 3-4 ára fresti. Hins vegar hafa diskastæður sem geyma stafræn gögn verið stækkaðar en lítið hefur verið bætt við af hillum þar sem kerfisbundið hefur verið grisjað í safninu undanfarin tvö ár. Á móti niðurskurðinum hefur safninu tekist að afla aukinna sértekna, meðal annars með þátttöku í ýmsum samstarfs- verkefnum og stafrænni endurgerð. Flestir starfsmenn eru mjög meðvitaðir um sparnaðarráð og með augun opin fyrir leiðum til að spara. Sem dæmi má nefna að borga alla reikn- inga á réttum tíma til að forðast dráttarvexti, að borga marga erlenda reikninga saman eða litla reikninga með Visa korti, leita bestu verða, tilboða og samninga, nýta hlutina betur og hafa í huga að margt smátt gerir eitt stórt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.