Reykjalundur - 01.10.1979, Blaðsíða 14

Reykjalundur - 01.10.1979, Blaðsíða 14
Á reynslutímanum falla örorkubætur til ör- yrkjans ekki niður encla þótt Tryggingastofn- unin taki þátt í launagreiðslum þann tíma, sbr. 4. gr. Fylgi sérstakur kostnaður reynslu- tímanum, t. d. vegna námskeiðs, má greiða uppbót á lííeyri öryrkjans með liliðsjón al venjulegum reglum um uppbætur. 4. gr. Að loknum reynslutíma og að jafnaði inn- an 3 mánaða skal gengið frá vinnusamningi, sem undirritaður skal af vinnuveitanda og af jdeildarstjóra lífeyrisdeildar f.h. Trygginga- stofnunar ríkisins. Öryrkinn áritar samþykki sitt á samninginn. Vinnusamningur skal gerður til þriggja ára og í honum tekið fram, að Tryggingastofnun endurgreiðir vinnuveitanda 75% af fasta- kaupi öryrkjans fyrsta árið, 50% annað árið en 25% hið þriðja. Verði um vaktaálag, bón- usgreiðslur eða yfirvinnu að ræða, tekur Tryggingastoínunin ekki þátt í henni, nema í sérstökum undantekningartilfellum, sem metin eru af deildarstjóra lífeyrisdeildar Tryggingastofnunarinnar. í atvinnusamningi skal greint það starf, sem öryrkjanum er ætlað að leysa af hendi og vinnustaður, svo og við livaða taxta eða kjara- samning kaup skuli miðað. Auk fastakaupsins og annarra kjara, sem skal vera það sama og gildandi er á hverjum tíma milli launþegasamtaka og atvinnurek- enda í viðkomandi starfsgrein, skal Trygginga- stofnunin greiða til atvinnurekanda sama lilut- fall og að framan greinir á öllum launatengd- um gjöldum, sem atvinnurekandinn greiðir vegna öryrkjans. Vinnusamningur er óuppsegjanlegur af hálfu öryrkjans og Tryggingastofnunar ríkis- ins á meðan atvinnurekandi stendur við hann. Af hálfu atvinnurekenda er samningurinn óuppsegjanlegur nema öryrkinn verði til fram- búðar ófær um að gegna starfinu að læknis áliti, staðfestu af tryggingayfirlækni. 5. gr. Tryggingastofnun ríkisins endurgreiði at- vinnurekanda hlutfall af launum öryrkjans skv. 4 gr. gegn framvísun launakvittunar und- irritaðri af launþega eftir hverja útborgun. Hlutlallsgreiðslu af launatengdum gjöldum vegna launþegans endurgreiðir Trygginga- stofnunin eftir á eftir eitt ár í senn gegn framvísun kvittana þar að lútandi og afriti af launaseðlum og tilskyldum gögnum send- um skattyfirvöldum. Jafnframt gefur Tryggingastofnun skatt- yfirvöldum upp endurgreidd vinnulaun til at- vinnurekenda eftir hvert ár. 6. gr. Meðan vinnusamningur stendur og Trygg- ingastofnun greiðir til atvinnurekenda skv. 4. gr., falla örorkubætur til öryrkjans niður. Aðrar tengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins, svo sem barnalífeyrir, falla ekki nið- ur nema skv. sérstakri ákvörðun trygginga- ráðs. 7. gr. Vinnusamning sanikv. framansögðu má gera um hluta úr heilsdags starfi. Tryggingastofn- un greiðir þá sarna hlutfall og í 4. gr. segir af greiddum launum og launatengdum gjöld- um. Hálfar örorkubætur falla niður, ef um liálft starl' er að ræða. Ekki má gera vinnu- samninga við fleiri en einn atvinnurekanda í senn um hluta úr starfi. 8. gr. Komi upp ágreiningur á milli atvinnurek- anda og öryrkja um framkvæmd vinnusamn- ings, skal lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins kynna sér málavöxtu. Heimilt er þá að rifta samningnum el’ sýnt þykir, að ósant- konnilag sé milli áðurnefndra aðila í þeim mæli, að ólíklegt sé, að öryrkinn muni hald- 12 REYKJALUNItUR

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.